Þjóðólfur - 21.01.1873, Page 4
48 —
sjóliðsforingja á hinu enska herskipi Valorous, er
hann í grein nokkurri í sama blaði heflr lagt þann
dóm á yfirsýn og útlit íslands yfir höfuð að tala,
«að ekkert muni neinstaðar annarstaðar finnast í
heiminum, sem taki íslandi fram að einkennilega
villtri og hrikalegri náttúrufegrðn.
SKÝRSLA
um fjárhag P r e s t a e k k n a s j ó ð s i n s 1872.
Sjóðr við nýár 1872, sbr. þjóðólf Rd. Sk.
24. ár Nr. 11—12 ...................... 5058 14
Síðan hefir honum bæzt:
1. Árstillög og gjafir, sem fyr er fráskýrt1 2 91 36
2. Árstillag undirskrifaðs fyrir þ. ár . 10 »
3. Ágóði við Bazar næstliðinn vetr . . 93 19
4. Inn komið fyrirseldar «Blómsturkörfur» 15 64
5. Rentur á árinu 1872 193 65
6. Fyrverandi sjóðr uppgjafarpresta á ís-
landi2, að upphæð um nýár 1872, sbr.
J>jóðólf 24 .ár, Nr. 11—12, I42r. 15s.
Síðan hafa honum bæztrent-
ur til 11. júní 1872 . . 4- 76-
en frá þessum samtals 146- 91-
dregst fyrir auglýsingu á
reikningi sjóðsins 1870 og
1S71 ................. 49- J46 42
Frá þessum samtals 5608 48
dregst: fyrir auglýsingu viðkomandi
Bazarnum................. 60s.
útdeilt á synodus
1872 ............60- »- 60 60
Er þá eptir sjóðr við árslok 1872:
1. í 4°/0 kgl. ríkisskuldabréfum 800r. »s.
2. - 4°/„ veðskuldabréfum ein-
stakra manna .... 4504- »-
3. - arðberandi gjafabréfum . 150- »-
4. útistandandi rentureinstakra
manna...................48- »-
5. geymdir í peningum . . 45- 84- 5547 84
Auk þessara 5547 rd. 84 sk. tilheyra sjóðn-
um nokkur expl. af «Blómsturkörfunui», sem enn
eru óseld. f>ess má geta, að hra málaflutningsmaðr
J. Guðmundsson hefir enn sem fyrri Iátið borgun
fyrir auglýsingu á reikningi sjóðsins og gjafalista
falla niðr, og mundi hún í þetta sinn hafa numið
4 rd. 40 sk.
Skrifstofu biskupsios yflr fslaudi í Keykjavík, 31. Des. 1872.
P. Pjetursson.
1) Sbr. „skýrslu11 hr. blskupsins „yflr árstillög og gjaflr1
í síbasta bl. 38.-39. bis. / Ritít.
2) Eftir ákvörlnn stofnandans, síra Jóns Yngvaldssonar
á Húsavík, er sjúbr þessi ná lagbr vib prestaekknasjúliinn.
Uöf.
BARNASKÓLINN Á VATNSLEYSUSTRÖND.
Með þvi að eg hefi orðið þess vís, að all-
flestum utan þessa hrepps er ókunnugt um stofn-
un þessa, gef eg hérmeð þessar fáorðu upplýs-
ingar.
Upptök skólans eru þessi: Prestrinn sira St.
Thorarensen lét ganga boðsbréf um sóknir sínar
haustið 1870 um samskot til barnaskóla; gáfust
þá innan sóknanna loforð um nálega 700 rd. á
einni viku. Árið 1871 var tekið megnið aftimbr-
inu til skólans, en byggingunni var frestað til
næsta árs, sökum þess að nokkra máttarviði vant-
aði til hússins, er þá fengust hvergi. Sama ár
(1871) var keyptr jarðarpartr í Brunnastaðahverfi,
undir skólann til ábúðar fyrir skólahaldara (fram-
vegis). Sumarið 1872 var húsið bygt af smiðum,
er allir eiga heima í hreppnum ; það er 10 álnir
á breidd, 14 álnir á lengd og 5 áln. rúmar undir
loft; sakir vanefna er húsið hvergi nærri fullbygt;
kenslustofan er í öðrum enda hússins, og Dær
yfir það þvert (10 áln. á lengd og hérum 7 áln.
á breidd); í hinum endanum eru tvö herbergi
fyrir kennarann; eldhús er í skólanum með elda-
vél; uppi á lopti er stórt herbergi, einkum ætlað
Thorchilliibörnum, og fyrir setulopt sér í lagi, þá
börnum er kend handvinna; að öðru leyti er ann-
að óbygt uppi, en í áformi að gjöra í öðrum enda
kenslustofu, ef þörf gjörist síðar meir. Efnahagr
skólans er bágr mjög; til þessa dags hafa honum
gefizt hérum 1000 rd. (hafa utanhreppsmenn gefið
allt að 200 rd.), en fyrir húsasmíðið, jarðarkaupin
og annan kostnað er skólinn í skuld, um allt að
1000 rd. Skólanum er nú sem stendr stjórnað
af nefnd í hreppnum; prestr er forseti þessarar
nefndar við fimta mann. Á almennum hrepps-
fundi hefir verið samþykt reglugjörð fyrir skólann;
er svo lil ætlazt, að í skólanum sé kent bæði ó-
fermdum börnum (lestur, lærdómskver, biblíusögur,
skrift, reikningr), og að einnig gefist fermdum
unglingum færi á að nema þar (skrift, réttritun,
reikning, dönsku, ensku, landafræði 0. s. frv.),
tvær stundir á dag eftir það að hinni almennu
kenslu er lokið, sem varir fjórar stundir á dag;
þar er og ákveðið, að kenna skuli handvinnu
stúlkubörnum.
Fundrinn nefndi skóla þenna: «Thorchillii-
barnaskóla í Vatnsleysu$trandarhreppi<>; því að
svo er til ætlazt, að öll þau börn í hreppnum, er
njóta styrks af Thorchilliisjóði, verði framvegis
heimilisföst fóstrbörn skólans; sömuleiðis skal ut-
ansveitarbörnum ekki neitað um legurúm á skól-