Þjóðólfur - 30.10.1891, Blaðsíða 6

Þjóðólfur - 30.10.1891, Blaðsíða 6
210 er ekki, er stefnt saman mönnum og leit haíiu. Eptir allmikla leit finnst stúlkan örend í svokallaðri Svartá, sem rennur hjá Svartárkoti. ■— En svo jtykir strax kynlegt, að þar sem stúlkan finnst í ánni, eru hjer um bil engar líkur til, að hún hefði getað drekkt sjer viljandi nje af slysum, og eigi lieldur, að hún hefði getað borist eptir ánni úr þeim stöðum sem dýpri voru. Engum, sem kunnugur var stúlkunni, þótti heldur líklegt, að hún hefði viljandi fyriríarið sjer. Kviknaði skjótt grunur og ótti um, að Jón þessi mundi á einhvern hátt valdur að dauða stúlkunnar. Var nú sent til sýslumanns og brá hann skjótt við til að rannsaka málið. Ljet liann og sækja lækui til þess að skoða lík stúlkunnar. Ljet læknir það álit í ljósi, þegar hanu hafði krufið stúlk- una, að hún hefði eigi drukknað, en eng- in merki til misþirminga sáust þó á henni. Eptir að sýsiumaður hafði nákvæmlega rannsakað allar kringumstæður, fór hann að yfirheyra Jón, og meðgekk Jón þá, að hann liefði grandað stúlkuuni á þann hátt, að liann lijelt fyrir vit henni, þangað til hún kafnaði, og bar hann liana síðan í ána. Atburður þessí hefur slegið ákaflega mikilli hrellingu yfir hugi manna hjer um slóðir, enda er hann svo mikið eins dæmi í sinni tegund, að núlifandi menn þekkja ekki svo mikið sern tilræði í þessa átt, því síður annað meira. í öðru brjefi er oss skrifað að morð- inginn sje í haldi á Húsavík og bíði þar dóms síns. Refsingin fyrir morð er líflát, ef morðið er drýgt „með ráðnum huga“, clla æfilöng hegningarvinna eða minni refsing, ef málsbætur eru. Strandferðaskipið Thyra kom hingað 24. þ. m. norðan og vestan um land, 9 dögum á eptir áætlun, og með því um 350 farþegar. Það fór aptur hjeðan í fyrra dag til Hafnar og með því allmargir farþegar: Guðmundur Magnússou cand. med. & chir. með konu sinni, N. Chr. Gram frá ísaf., Björn Sigurðsson í Flatey, frú Jófríður Guðmundsson í Flatey með börn- um sínum, frú Sigríður E. Magnússon, fröken Anna Jörgeusen, Kristján Jónasar- son verslunarm., Daníel Daníelsson ljós- myndari, E. Tvede lyfsali, Björn Kristjáns- son kaupmaður, Ágúst Bjarnason o. fl. Ný Lög. Af lögum frá síðasti, þingi voru þessi 6 staðfest, er Thyra fór frá Höfu: 1. Lög um að íslensk lög verði eptir- leiðis að eins gefin á íslensku. 2. Fjáraukalög fyrir árin 1888—89. 3. Lög um viðauka við útflutniugslögin 14. jan. 1876. 4. Lög um lækkun á fjárreiðslum þeim, er hvíla á Höskuldsstaðaprestakalli í Húna- vatnsprófastsdæmi. 5. Lög um bann gegn eptirstæling frí- merkja og annara póstgjaldsmiða. 6. Viðaukalög um lög um brúagerð á Ölvesá 3. maí 1889. Verslunarfrjettir frá Khöfn 23. sept: TJll hefur í Englandi selst án umbúða á 8 pence (60 a.) sunnlensk, en norðlensk 9 pence (67x/2 a.). Hjer í Höfn hefur sunulensk hvít ull selst á 60—62 með um- búðum. Norðlensk ull besta tegund 70 a., lakari 65 a. með umbúðum; mislit ull seld á 45 ^/2—47 a. og svört 55 a.; hvít óþveg- inn haustull 48 a. — Lysi selt á 35 kr. gufubrætt og 32—34 kr. ljóst soralaust pottbrætt hákarlslýsi. Ljóst þorskalýsi 30—32 kr., dökkt þorska- og hákarlalýsi 26—30 kr. (210 pd.). — SaltfisJcur hnakka- kýldur seldist á 67 kr., óknakkakýldur 48—50 kr., smáfiskur 42—44 kr., ýsa 36—37 kr. Fyrir vestfirskan saltfisk kom- inn á skip á íslandi á Spáni boðin 68 ríkismörk. Smáfiskur frá Vesturlandi seld- ur til Genua á 46—47 kr. kominn á skip á íslandi. — Harðfishur hefur lækkað í verði, er seldur á 150 kr. skp. og útlit fyrir meiri verðlækkun. — Sundmagar, besta tegund, seldir á 50 a. pd. — Af œð- ardún liggja lijer um 3000 pd., sem fást á ÍO1/^—lla/2 kr. eptir gæðum. — Síld seld á 141/,—18 kr. tunnan eptir gæðum. Kindakjöt boðið á 45 kr., án þess að út gangi (224 pd.), og útiitið allt annað en gott á verði á því. — Tólg 28—30 a. pd. Gœrur 4x/4—ö1/^ kr. hverjar tvær eptir vigt. Strandferðirnar næsta ár. Það hef- ur f'rjetst, að sameinaða gufuskipafjelagið danska ætli ekki að ganga að neiuum þeim kostum, sem alþingi setti fyrir fjárveiting- unni til strandferða, heldur láta Thyru fara styrklaust 3 strandferðir með líku fyrirkomulagi og 1888—89. En livort aðr- ir verða til þess að ganga að kostum þeim, sem þingið setti, er enn óvíst, því að eigi mun hafa verið gert mikið í þá átt eun sem komið er, sem varla er heldur von, tímans vegna, þótt ekki sje annað. Crufuskipið Vaagen, sem fór hjeðan 22. f. m. vestur og norður um land til Seyðisfjarðar og ætlaði að koma hingað aptur um liæl með Snntilendinga frá Aust- fjörðum, lireppti versta veður á leiðinni austur, og hraktist frá Melrakkasljettu til ísafjarðar og var þá orðið kolalaust. Það var komið aptur til Akureyrar, er Thyra fór þar um, og allir þeir, sem með Vaag- en ætluðu af Austfjörðum, fóru með Thyru. 0. Wathne 1 jet þá hafa 500 kr. fyrir að geta ekki fullnægt samningunt við þá. Ilinn nýi kvennaskóli í Vina Minni hjer í bænum var settur í fyrra dag af biskupi Hallgrími Sveinssyui; forstöðukona er Þóra Björnsdóttir frá Brekkuborg í Breiðdal. 15 námsmeyjar komnar í skól- ann. Prestaköll veitt: 22. þ. m. Höskulds- staðir prestaskólakandídat Jóni Pálssyni eptir yfirlýstum vilja safnaðarins og 24. þ. m. Rafnseyri prestaskólakand. Rikarði Torfasyni eptir kosningu safnaðarins. Prestvígðir voru á sunnnudaginn var ofannefndir 2 kandídatar og kand. Ingvar Nikulásson aðstoðarprestur sjera Jóns Björnssonar á Eyrarbakka. Laus prestaköH eru nú að eins þessi þrjú: Meðallandsþing metin 998 kr., Ey- vindarhólar metuir 1018 kr. og Þórodds- staður metinn 1005 kr., auk tveggja presta- kalla, sem eru nndir veitingu: Kvíabekk- ur og Ásar í Skaptártungu. Slysfarir. 17. f. m. hvolfdi bát í Jökulfjörð- um í ísafjarðarsýslu og druknaði þar Jón E. Jóns- son frá Hrafnfjarðareyri. — Á ísafirði drukknaði fyrir skömmu maður fram af bryggju í myrkri um kveld; maðurinn hjet Kristján Sigurðsson og var skipstjóri. Annar maður var með honuin, en gat ekki hjargað honum, enda báðir sagðir ölvaðir. Skip strandaði 19. þ. m. á höfninni í Skarðs- stöð; skipið lijet Amold og var eign Flateyjar- verslunar. Avocet, fjárflutningaskip Zöllners, er laskaðist á innsiglingu til Borðeyrar, var talið hafíært og er farið með allan fjárfarminn til Englands. Suðurþingeyjarsýslu 1. okt.: „ Tíðar- far liefur verið ágætt í haust allt þangað til fyrir 5 dögum að brá til norðanáttar með snjókomu, og lítur ekki út fyrir, að veruleg uppbirta sje í nánd. Ekki eru hríðar þessar svo miklar, að nokkur hætta sje á, að þær hafi grandað fje. Heyfengur manna varð yfir höfuð í góðu lagi; nálega hvergi neðan við meðallag en állvíða ágætur. Má einkum þakka það á- gætu tíðarfari og nýtingu.

x

Þjóðólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðólfur
https://timarit.is/publication/72

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.