Ný tíðindi - 29.07.1852, Side 5
65
um aftvelja til slíks starfa. Heyrum vjer, aö
Norðlendingar muni bráðum halda fund meö
sjer um það, hvernig þeir megi gjöra sjer
prentsmiðjuna að fullum notum, og er ætlandi,
aö Norðlendingar inuni þá ekki standa á baki
Sunnlendinga framarí blaða-og bókakaupum.
—16. d. m. ráku menn bjer í og við Reykja-
vík upp rúmlega 60 marsvín á Kleppsfjöru
fyrir innan Laugarnes, og bafa ýmsir verið
drjúgir um óhreinlegar aðfarir þeirrá, sem að
þvi stóðu. Segja menn, að happ þetta muni
alls hafa verið hjer um bil 8 til 10 liundr. dala
virði, og er f>að mikil blessun fyrir viökom-
endur, sem voru yfir 30 að tölu. — Ileyrzt
hefur, að Breiðamerkurjökull í Skaptafellssýslu
muni nú vera hlaupinn í sjó fram, og að f>aö
sje óvíst, hvert sýslan sje fær, eða jökullinn
hafi skipt henni í sundur. — Rangvellingar
hafa í vor kannað Torfajökul, og hefur ritstj.
Nýrra Tíðinda beðið um skýrslu þar að lút-
andi, en ekki fengið hana enn. — 20. d. þ.
m. fór danska herskipið, St. Croix, burtu hjeð-
an, og með því dátarnir, sem verið höfðu í
Reykjavík í vetur. Urðu þeir fegnir mjög að
komast í burtu, og kvöddu Island með allrar
hamingju óskum, þá er þeir fóru; því þeir
Ijetu, sem sjer heíði fallið vel við landsmenn.
Og um leið og vjer óskum, aö Reykjavík fái
ekki setulið aptur, fyr en hún fiarf jiess, ósk-
um vjer og, að hún fái svo ötula lögreglu-
stjórn, að henni megi vel sæma. — Ein af
hinum helztu tíðindum hjer fiykja oss vera
jiau um hestakaup Englendinga, og með þvi
Guðmundur bóndi í Skildinganesi hefur góð-
fúslega hjálpað mjer um skýrslu viðvíkjandi
báðum ferðum fiess hestakaupandans, sem nú
hefur komið hingað tvisvar í sumar, þá skul-
um vjer fara um f>að nokkum orðum. Eng-
lendingur þessi heitir William Youny, og
keypti hann lijer fyrst hesta í fyrra sumar.
Hann er maður hreinskilinn og ókítinn um
verð; greiðir jafnan viðstöðulaust, þegar hóf-
lega er sett upp á hross eða greiða, sem hon-
um er gjörður. j>ar sem hann liefur gist þyk-
ir honum farast mannlega með borgun, því
hann gefur jafnan 1 rbd. fyrir mann hvern
um nóttina. jiað er því óhapp vort Islend-
inga, að sá maður skuli hafa orðiö á leið hans
á Kjalarnesi, sem kastað hefur skugga á gest-
risni islenzkra bænda, er þeir hafa áður feng-
ið mikinn sóma af. En það hafa menn fyrir
satt, að Vilhjálmur (William) þessi hafi dreg-
ið kolsvart óvirðingarstryk undir nafn annars
hreppstjórans í Kjalarnesshrepp í dagbók sinni,
en þvert á móti undir nafn hins hreppstjór-
ans í sama hrepp, sem nær býr Eyrarfjalii.
Kunnum vjer honum þakkir fyrir gestrisni
sína, og svo hverjum bónda, sem man eptir
því, að breyta sómasamlega við útlenda ferða-
menn, eins og þeir mundu kjósa, að sjer væri
gjört, ef líkt stæði á fyrir þeim. Enginn taki
þó orð vor svo, eins og vjer mæluinst til
gjafa handa þeim, heldur til skynsamlegrar
sölu og fljóts og góðs greiða eptir efnum. —
I fyrri ferðinni keypti Vilhjálmur 40hross,
og gaf fyrir þau öll samtals 678 rbdd., en í
seinni ferðinni 36 hross fyrir samtals 571 rbdd.
3 mörk. Hann hefur því í sumar keypt hjer
76 hross fyrir 1249 rbdd. 3 mörk, og mælt er,
að liann muni enn ætla að koma hingað i
haust, ef hann getur og má. — Annar Eng-
lendingur, að nafni Duncan, kom lijer og í
suinar að kaupa hesta. Hann keypti hjer uni
bil 70 hross, flest fyrir austan fjall, og gaf
11 rbdd. að meðaltali fyrir hvert. jþótti hann
kítinn og sípingsamur um borgunina, og yfir
höfuð viðsjáll í viöskiptum. Hann gjörði ráð
fyrir að fá leyfi til að koma aptur hingað í
hestakaup, og þá inn á Eyrarbakka.
. Aðfaranótt liins 21. þ. m. kom póstskipið
hingað frá Danmörku. Með því komu, auk
annara, landfógeti V. Finsen, og sýslumaður
Borgfirðinga Lassen. J>ar að auki koin og
með því ferðamaður einn frá Vesturheimi, sem
ætlar að ferðast um Island, og er hann nú
farinn til Jiingvalla, og Geisis í Biskupstung-
um. Með póstskipinu kom og viður í timb-
urþak, sem leggja á í sumar á skólahúsið í
Reykjavík; því helluþakið þykir núverafull-
reynt. Svo kom og með því Forfepimi o han d a
lærða skólanum, til þess að lærisveinarnir gætu
numið hljóðfæraslátt, eins hjer, og við aðra
slíka skóla í Danaveldi. — Afútlendum frjett-
um liefur oss ekki borizt, nema allt hið bezta:
árgæzka og friður, og kornið hafi lækkað í
verði í sumar. Sú fregn barst og með póst-
skipi, að í staðinn fyrir prófessor Madvig er
Simony, sem áður var Departementschef hjá
innanríkisráðherranum, nú orðinn Cultusmi-
nister. Kammerráð Kristjánsson er settur