Ingólfur - 28.07.1854, Blaðsíða 2

Ingólfur - 28.07.1854, Blaðsíða 2
126 Ieika við stafrofið í kveri þessu, aft þar vantar rneð öllu tvo algenga stafi, c og q, sem enn eiga sjer þó víða stað í íslenzkum bókum, bæði prentuðum og skrifuðum. Mynd og heiti þessara stafa er ekki svo mikið sem sýnt, fyr enn á bls. 51 innanum útlendu stafina. Vjer getum nú vel ímyndað oss, og vitum jafnvel til þess af reynslunni, að f)ó að ein- hver almúgamaður fari að kenna barni sínu að stafa og stauta á kveri þessu, þá láti hann ekki barnið þræða það orð fyrir orð aptur fyrir 51. blaðsíðuna; og getur svo barnið, ef til vill, orðið stautfært, að eigi þekki það c eða q, fyr enn það rekur sig á útlaga þessa í húsvit- jun hjá prestinum. En höfundarnir hafa lik- lega heldur viljað, að börnin lærðu ekki einu sinni að þekkja þessa stafi, enn að þau á síð- an skyldu óprýða bókmál vort með þeim, er þau færu sjálf að rita!? Næst á eptir stafrófi því, sem vjer höf- um nú lýst, koma, eins og lög gjöra ráð fyrir, atkvæði og atkvæðisorð í 36 flokkum og á 13 blaðsíðum. Og af því að höfundarn- ir segja í reglum þeim, sem þeir hafa gefið í formála kversins fyrir brúkun þess, „að ekki megi láta börnin ganga frá atkvæðunum, fyr enn þeim er orðið liðugt uin að lesa þau, hvar sem í þau er tekið, því það sje svo mjög á- riðandi*, þá verður oss fyrst fyrir, að biðja guð að gefa kennurunum þolinmæði, og börn- unum lyst til gott að læra, ef þeir annars leggja með ungana út í þennan atkvæðasjó. Mjer er sem jeg heyri hann Gvend Hölluson á Búr- felli vera að kenna niðursetningnum, að stafa atkvæðinþau arna í fjórða flokki atkvæðanna: ing, ugl, urg, urð, urp, ups, uml, úlp, úlf; og er þó þetta ekki nema ein lína af sex í þessum flokki. Eptir því sem jeg þekki skaps- muni Gvendar, þá gæti jeg vel trúað þvi, að Kári litli, þó hann sje kallaður Bárðarson, fengi eins mörg hnefahögg hjá honum, og hljóðstafir eru í línu þessari. Og hversu mörg * höfuðhögg haldið þjer þá ekki, höfundar, að þjer hafið búið Kára litla, áður enn Gvendur kemst með hann í 36. flokkinn, og sezt þar niður í rtröllskessusæti“? 3>rátt fyrír skoðun höfundanna á nauðsyn þessara atkvæða, erum vjer allt af betur og betur að sætta oss við þann kennslumáta, að komast megi hjáþess- uni margbrotna og meiningarlausa atkvæða- Ilestri, með þvi lika vjer sjáum, að nýustu stafrófskver Dana eru farin að sleppa, að kalla má, ölium atkvæðum, en taka í þess stað hrein og bein hluta heiti, sem næst liggja þekkingu ogskilningi barnsins, líktog Staf- rofskver h. m. m. b. — guð blessi bæði hús og menn! — hefur farið fram á. Og vjer erurn vissir um, að börnin skulu eins vel, en fljótar komast niður i bóklestri, með því að stauta fyrst, þó ekki sje nema á 2, eða 3 blaðsíðum, skrítnar smásögur með tómum eins atkvæðis orðum, eins og er t. a. m. Páll og Jón í kveri Bjarnar, eða fíarn og Mús i kveri Svein- bjarnar, heldur enn þó þau sjeu látin rugla innanum 36 atkvæðaflokka á 13 blaðsíðum í þessu kveri þeirra, Friðrikssonar og Gríms- sonar. 5egar Stafrófskver þessara manna er þannig skoðað í því tilliti, að kenna börnum að þekkja fyrst stafi og taka saman, þá álit- um vjer það ekki lagað til þess, og að það hefði rjettilega átt að heita: Efni í Staf- rófskver handa börnum, en ekki Stafrófs- kver handa peim. j>ar á móti þegar vjer skoðum það sem Lestrarkver handa ungling- um, sem farnir eru að geta fleytt sjer í lestri, þá álitum vjer það í mörgum greinum gott og fróðlegt, eins og búast var við af höfundun- um, að þeir mundu þá hitta á lagið, þegar þeir ekki tóku svo niður fyrir sig. að fara að kenna börnum að stafa og stauta; því til þess þarf sannarlega aðra köllun enn þá, sem kemur til manns frá fastri áskorun annara. •Teg -(- ^ú. Brjef til útgefara lngólfs. (Framhald.) Og það er sjer í iagi þessi kaldi og ómannúðlegi andi, sem svo opt kemur fram í Jjóðólfi, er mjer hefur einna vest fallið við; jeg gef honum það eptir, að hann hafi nokkra ástæðu til að setja út á og rífa niður sumt hvað, sem í ólagi fer; en þegar allt sýnist miða til þess, að gjöra stjórnina og yfirvöldin tortryggileg í augum alþýðunnar, sem af því einstaka—hvort sem vera kann satt eða ósatt — hættir svo mjög við að meta mennina eins í öllu, þá sje jeg ekki betur, enh að tilgangurinn sje eigi sem hreinastur, og í rauninni engum þeim verðugur, sem vill

x

Ingólfur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ingólfur
https://timarit.is/publication/79

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.