Ingólfur - 30.05.1855, Page 4
160
5að skuldbindur sig til aft veita hernum, |>ar
sem hann nú er, eða livar sem hann kann að
verða allt að 200 enskum mílum frá sjó, þrjár
fullkomnar máltíðir á hverjum degi, sem skuli
verða tilreiddar og aflientar í herbúðum sjer-
hvers herflokks: til morgunmatar skuli hver
maður fá tevatn eða kaffi, eptir því sem hver
kjósi helzt, og nýbakað brauð; til miðdegis-
matar brauð, kjöt og jarðepli, hálfan pott af
öli og vanalegan skammt af rommi; tvisvar
um vikuna skuli verða veitt nýtt kjöt, og
auk jarðepla ýms önnur aldini; svo skuli og
verða sjeð fyrir góðum kvöldmat. Verzlun-
arhúsið áskilur sjer alls enga hjálp af stjórn-
inni, biður hvorki um skip, hesta, vagna nje
menn, sættir sig við vegina eins og f>eir eru,
og lofarþó aðsjá hverjuin manni fyrir daglegum
vistum. En það vill fá bjer um bil 1 rdl.
48 sk fyrir læði hvers manns um daginn, og
þykist þó geta grætt allt að 32 sk. Enn freinur
býðst það til að sjá hernum fyrir þjettum og
hlýjum tjöldum, efstjórnin vilji bæta svo sem
10 sk við hin 9 mörkin. Með þessum hætti
gæti her, er væri 30,000 menn, fengið bæði fæði
og skýli um heilt ár fyrir hjer uin bil 1,900,000
pund sterlíng, og er það ekki nærri því fimmt-
ungurinn af því íje, sem nú er til kostað.
jþar sem blaðið Tæms minnist á þetta tilboð,
kveður það svo að orði.„ Lanðið hefði þó
altjend það gott af þessu, að hermenn þess
fengi að minnsta kosti eins gott viðurværi og
hundarnir heima.* — Jess verða menn samt
að gæta, að margt kann að hamla stjórninni
frá að þiggja tilboð þetta, hve aðgengilegt
sem það kann að þykja, þvi svo gæti farið
að þeir fjelagar gæti einhvern daginn, og ef
til vill, íleiri daga í röð ekki staðið í skilum
við herinn með það sem þeir hefði lofað, og
þá ætti stjórnin það á hættu, að allur liðsafli
hennar dæi út af í hungri.
Hinn nýi kirkjngarðnr Iiimd-
nnaborg'ar.
Fyrir nokkrum árum hefði það ráð þókt
ógjörningur að byggja kirkugarð i meir enn
20 enskra mílna fjarlægð frá Lundúnum. En
nú hefur grafmannafjelag nokkurt komið þessu
til leiðar; hefurþað keyptnýtt og betra kirkju-
garðsstæði,enn áður var kostur á að fá i forstöð-
um borgarinnar. Jafnvel þó gömlu kirkjugarð-
arnir tækju til samans yfir 282 ekrur, (ekra er
eins dags pógland,) og væru sjö sinnum stærri
enn kirkjugarðar í nokkri annari höfuðborg,
þá þókti þó grafmannafjelaginu farið að verða
heldur þröngt í þeim; líka bafði heilbrigðis-
ráðið í Lundúnum lýst því yfir, að enginn af
kirkjugörðunum þar læi svo hentugt, að menn
yrði jarðsettir þar, þegar frá liði, því ekki var
bægt að færa þá út. Grafmannafjelagið hefur
þess vegna keypt og hátiðlega látið vígja
heiði nokkra, er beldur 1700 ekrur; húner20
enskar mílur frá Lundúnum, og járnbraut
liggur fram hjá henni. Jarðvegurinn er þar
þur og sendinn og þykir hinn bagkvæmasti
til greptrunar. Jað er nú auðskilið mál, að
stærsta borg í heimi hlýtur og að hafa hinn
stærsta kirkjugarð; en mörgum kann að koma
til hugar að spyrja: hvernig geta menn kostn-
aðarins vegna notað þann kirkjugarð, sem
liggur allt að 24 enskuin mílum frá höfuð-
borginni? En grafmannafjelagið hefur sjeð um
að gjöra mönnum hægt fyrir með það. Fjelag
þetta stendur í sambandi við járnbrautarfjelag,
sem nú á hverjum morgni flytur likfylgdir frá
Lundúnum út til kirkjugarðsins. Sjerstakir
vagnar eru tilbúnir til þess bæði fyrir líkin
og fyrir alla, sem fylgja; og svo er búið að
byggja í grend við garðinn hús og herbergi
til að taka á móti öllum, sem koma; graf-
mannafjelagið hefur og vissa menn til þess
að bera líkið úr húsinu, þar sem dauðsfallið
liefur orðið, til járnbrautaripnar, svo þetta
þyngir ekki útfararkostnaðinn á hlutaðeig-
endum; lika hefur fjelagið fengið kirkjugarðs-
stæðið með svo góðu verði, þar sem það liefur
gefið 25 pund fyrir hverja ekru á heiðinni,
en í grend við borgina mundi hver ekra hafa
kostað í hið minnsta 480 pund. Jetta gjörir
þá legkaupið jieim mun minna. Jað eru líkur
til að borgirnar Southhampton og Portsmouth,
sem liggja næstar kirkjugarðinum og eiga
járnbrautir að honum, fari líka að láta jarða
þar, því heldur sem þær eru fjölmennar, og
farið rnjög að þrengjast í kirkjugörðum þeirra.
Jað hagar líka svo til þessum nýja kirkju-
garði, að hann má enn mikið stækka, svo
menn sjá fram á það, að þar þarf ekki að
þrengjast um lángan aldur. GrafmannaQelagið
er þegar nægilega búið að sýna það, að þó að