Ingólfur - 30.05.1855, Page 6
162
mörs; ár hef haftskipti vift, fyrir alla þá góft-
viltl, sem þeir bæöi í oröi og verki hafa sýnt
mjer, og sem jeg á það að jiakka, að mjer
hefur liðið vef, meðan jeg hef lifað þessu hlaða-
lífi. Og vona jeg að þessir menn sýni mjer
framvegis hið sama vinfengi, meðan jeg á í
nokkrum skiptum við þá. $ví svo getur far-
ið, að jeg enn þá einhvern tíma sendi yður í
riti kveðju mína, vinir minir! ef mjer verður
eins vel til með blek og hrafnsfjaðrir á Norð-
urlandi, eins og mjer hefur orðið það hjer
syðra. jþangað til kveð jeg yður í vinsemd
og bið yður alla vel að lifa.
Útgefarinn.
3. Landið Hanada.
Framhald. Mjög kátlegir eru ýmsir siðir
villimanna þessara við brúðkaup, hjónaskilnað
og (/reptranir. Hjónaefnin trúlofast opt þegar
á 8. ári, gefa þau þá hvort öðru margs konar
gjafir, og vottar eru hafðir við. Jieir brjóta
þá í sundur spítu í eins marga parta og vott-
arnir eru, og tekur hver sitt spítubrot. Komi
það nú fyrir að hjónin skilji, þá verður fyrst
fullur skilnaður þeirra, er búið er að brenna
upp öll spítubrotin fyrir augum þeirra. Ann-
ars er hjónaskilnaður mjög sjaldgæfur hjá
þeim. Jeim er heimilt að hafa meir enn
eina konu, en fáir gjöra það samt, því flestir
þykjast hafa nóg með að forsorga eina. Útför
hinna dauðu framfer á þann hátt, að líkið er
strokið yfir með litum, þá er það klættifullan
fatnað og látið sitja uppi; eru vopn hins
dauða lögð við hlið hans. Harmatölur og
lofræður eru haldnar, og konurnar hljóða en
karlmenn aldrei; endar sorgin optast með
þvi, að þeir setjast að veizlu, sem veitt er í
óspart bæði matur og drykkur.
Átrúnaður þessara villimanna í Kanada
pr að sönnu hreinni enn Eskimóanna, en
blandinn er hann enn þá mikilli hjátrú. 3?eir
trúa á eina veru æðsta, andann mikla, sem
þeir blóta; líka trúa þeir á mörg goð óæðri,
bæði góð og vond, og bera þeir á sjer myndir
þeirra útskornar í trje; þá trúa þeir líka á
(jaldramenn og lifi eptir dauðann, þar er
aptur finnast allir góðir drengir.
4. Eldlandið og Eldlending'ar.
Land þetta liggur fyrir sunnan Patagóníu,
sem vjer höfum að nokkru lýst hjer að framan,
og er það einhver hinn óyndislegasti bústaður
á öllum jarðarhnettinum. Sund nokkurt, sem
kennt er við Ma/elhaen, er fyrstur inanna
fann það og sigldi í gegnum það árið 1520,
skilur Eldlandið frá meginlandi Vesturálfunn-
ar, eða Patagóníu. Sund það er 80 rnílna
langt og 3 eða 4 mílur á breidd; mjög erþað
sjaldgæft að skip sigli í gegnum það, því
sigling er þar næsta hættuleg bæði vegna
storma, sem opt bresta þar á, þegar minnst
varir, og svo líka vegna sandrifa; þar að
auki er leiðin nijög krókótt og skerjótt, og
strandirnar að suridinu ineð þverhnýptum
klettum, er viða hvar gnæfa 5000 fet í lopt
upp. Eldlandið er 1522 ferliyrndar mílur á
stærð, og eru taldar mcð því nokkrar eyjar
minni, er liggja við suðurendann á Vesturálf-
unni. Aðaleyjan er talin 50 mílna löng og
40 inílna breið; en eigi hafa menn enn kannað
landið svo vel, að þeir viti, nema það á ýmsum
stöðum kunni að vera gegnum skorið afsund-
um. Landslag er þar mjög grýtt og fiöllin
graslaus og ber; fjall eitt, sem heitir Sar-
mientó, þykir líta út fyrir að vera eldfjall.
Norðanvert á Eldlandinu eru fjöllin bæði há
og brött, en austurströndin er aðgengilegri,
og eru þar sumstaðar birkiskógar. Loptslag
er þar svo kalt, að á sumrin fellur þar opt
snjór í sunnanátt, enda er þar og lítið um
allan gróður. Staðir, sem menn helzt þekkja
til á Eldlandinu, er Jölahöfnin á suðvestur-
ströndinni og Hornhöfði, sem er svo óttalegt
og þverhnýpt bjarg, að jafnvel fuglinn fljúg-
andi byggir þar ekki lireiður. Enskur skip-
herra að nafni Fitzroy, sem kannaði víða
strandirnar á landi þessu fyrir nokkrum árum,
skiptir innbúunum í 6 flokka, er hann segir
að hver tali sitt túngumál og sjeu samtals hjer
um bil 2300 fullorðnir menn. Hann lýsir þeim,
eins og nú segir: rHin helztu einkenni í
skapnaði Eldlendinga eru þessi: ennið óvenju-
lega lítið og lágt, kinnbeinin framstandandi,
nasaholurnar viðar, munnurinn stór og ófríður,
varirnar þykkar, augun litil og liggja djúpt;
þeir eru dökkeygðir og snareygðir eins og
flestir villimenn, voteygðir og rauðeygðir af
sífeldri svæluikofum þeirra; nefið er næstum