Íslendingur - 25.04.1863, Side 1
ÞRIÐJA ÁR.
25. apríl.
M
Fáeinar athugasemdir, einkum um skólamenntun á
Islandi.
(Framhald). 2. J>að, sem menn vanalega telja sem
tálmun fyrir heimakennsluna, er skortur á kennslubókum
á íslenzku, einkum, að latinska mállýsingu vanti. Menn
finna þar að auki að því, að ný kennsluaðferð hafi verið
inn leidd í latínu, og kennslan í þessu máli verði erfið-
ari, af því málið á mállýsing þeirri, sem við er höfð, sje
svo þungt. En upp á það má svara því, að fyr meir,
þegar menn lærðu svo vel latínu heima, höfðu þeir ann-
aðhvort enga eða að minnsta kosti mjög ófullkomna mál-
lýsing prentaða á íslenzku; en menn höfðu skrifað ágrip,
sem kallað var dónat, og bætti kennarinn því sjálfur við
munnlega, sem vantaði í slíkar kennslubækur. |>ar á móti
var hinn svo kallaði Nucleus Latinitatis lagður út á ís-
lenzku og gerði mikið gagn. Að því er snertir hina nýju
kennsluaðferð og það, hve mállýsing sú er þung sem við
er höfð, þá er það engin furða, þótt líttvönum kennurum
á íslandi veiti örðugt að nota hina ágætu og djúphugsuðu
mállýsing Madvigs, fyrst menn láta þá skoðun í ljós í
Danmörku, að þessi bók sje óhentug.
J>að, sem þá næst liggur fyrir, er að fá styrk til að
semja smátt og smátt kenuslubækur á íslenzku, og fyrst
og fremst Iatínska mállýsingu og latínska orðabók; og
verður þá þess að geta þar við, að slík mállýsing ætti
ekki að vera útlegging af hinni latínsku mállýsing Mad-
vigs, heldur svo stutt ágrip sem unnt væri, stuttort og
ljóst, og mætti, þegar slíkt ágrip væri samið, hagnýta
þetta ágæta verk Madvigs og um leið hafa hliðsjón af
frönskum og enskum kennslubókum, og á nú skólabóka-
safnið ekki svo litið af slíkum bókum. Sama er að segja
um aðrar kennslubækur. J>að eru til svo margar bækur,
sem stuðning má hafa af, að það gæti engan veginn á-
litizt ofætlun fyrir kennarana að semja slíkar bækur, ef
stjórnin lofaði aðstoð sinni og vernd til þess.
3. Menn tilfæra enn eina ástæðu fyrir því, hverk
vegna foreldrar eru svo ófúsir á, að láta börn sín fara í
skóla, nefnilega að skólinn er í Reýkjavík. Skólinn hafði
áður verið í Reykjavík, nefnilega, þegar hann var fluttur
frá Skálholti, en þegar hann hafði verið þar hjerum tutt—
ugu ár, þótti sá staður, sem skólinn var á, vera svo ó-
hagfelldur, jeg vil ekki segja, svo skaðsamlegur fyrir gott
siðferði, að það varð að ílyija hann þaðan suður að Bessa-
stöðum, og þar var hann frá'1805 til 1846; en þá var
það ráðs tekið að flvtja hann aptur til Reykjavíkur. Nefnd
nokkur, sem hinir helztu embættismenn landsins voru í,
hafði, af ástæðum, sem að nokkru eru mjer ókunnar,
komizt að þeirri niðurstöðu, að skólinn ætti að fivtjast
aptur til Reykjavíkur. Nokkrir málsmetundi merm í nefnd-
inni voru þó móti þessum flutningi, og þar á meðul hinn
þáverandi biskup, sem var sá einasti í nefndinni, er verið
hafði skólakennari, og á sama máli og biskupinn voru
tveir af amtmönnunum, báðir innfæddir; þeir höfðu lengi
verið embættismenn, og voru öll líkindi til, að þeir bæri
gott skynbragð á, hvað landinu hagaði bezt. Uppástung-
an um flutning skólans varð þó framgeng ahnaðhvort með
li'tlum atkvæðamun, eða, eptir því sem mjer þykir líklegra,
af því hinn þáverandi stiptamtmaður var henni meðmælt-
ur. Meiri hlutinn kvað hafa haft þá skoðun, að nú værl
sú breyting á orðin i Reykjavík, að koma mætti piltum
fyrir hjá menntuðum mönnum, eða að piltarnir að minnsta
kosti ættu kost á að koma til slíkra manna og gætu num-
ið þar kurteisi og góða siðu. En því miðtir er sú raun-
in á, að breytingin er eigi svo mikil sem menn ætluðu.
Næstum allir hinir íslenzku kauptnenn búa enn í Kaup-
mannahöfn, og koma nú sjálfir jafnvel sjaldnar en áður
til Islands. Bæjarbúar eru því, að undanteknum einstök-
um smákaupmönnum, verzlunarstjórar og þjónar hinna
dönsku kaupmanna, optastnær ókvongaðir ungir menn,
sem yfir höfuð reyndar eru vænir menn, en sumir af
þeim mundu þó heldur þurfa að læra fallega framgöngu
af öðrum, en geta kennt öðrum hana. Nú eru að vísu
fleiri embættismenn en áður í Reykjavík, því fyrir utan
skólakennarana eru þar nú þrír embættismenn í lands-
yfirrjettinum, læknir og lyfsali. En það má nærri geta,
hve lítil áhrif það hefur á, hverja piltar umgangast, þótt
nokkrir embættismenn hafi bætzt við í Reykjavík. Laun
hinna íslenzku embættismanna eru þar að auki, sem kunn-
ugt er, svo lítii, að þeir geta ekki sjerlega opt tekið á
móti ókunnugum í hús sitt. Sá hluti bæjarbúa, sem ó-
talinn er, eru nokkrar efnalitlar ekkjur, fáeinir iðnaðar-
menn og fiskimenn, og er ekki hægt að skilja, hvernig
nefndin gat ímyndað sjer, að það yrði hollt fyrir pilta,
að umgangast slíka menn. En það gera þeir þó. Hjá
þessum hluta bæjarbúa verður piltum vanalega komið fyrir
í kost, og getur það þó opt orðið fullörðugt, því einlægt
er kvartað yfir, að fæðispeningarnir sjeu ekki nógir, og
þótt ölmusurnar, sem áður voru 60 rd., sjeu nú orðnar
hundrað dalir, hrökkva þær þó engan veginn til í þá 9
mánuði, sem skólatíminn stendur yfir. Af þessu má sjá,
að þeir, sem skólapiltar hversdagslega eiga saman við að
sælda, eru engan veginn teljandi meðal hinna helztu bæj-
arbúa, og það er þvi erfiðara að sjá um hegðun pilta
þann tímann, sem þeir eru ekki í skólanum, sem þeir,
er hafa þá til fæðis, eru öldungis ókunnugir foreldrum
pilta upp til sveita, og þess vegna þykir þeim sjer ekki
koma við, að skipta sjer af hegðun þeirra, þótt þeir kann-
ist við, að þeir sjeu fjárhaldsmenn þeirra; en þessirfjár-
haldsmenn, sem piltar eiga að hafa eptir skólareglugjörð-
inni, eru að eins til málamynda, af því þeir eru þeim ó-
kunnugir, sem að piltunum standa. það er eðii ungra
manna, að þeir leita sjer skemmtana, þegar þeir hafa tóm
til, og er það eðlifegt og jafnvel lofsvert, þegar skemmt-
anirnar eru sæmilegar. En hverjar eru skemmtanirnar í
Reykjavík? Jeg hef sýnt hjer að framan, að piltar eiga
eigi kost á að koma í þau hús, sem þeir hafa gagn af
að koma í. Leikhús er ekki til, eigi heldur nokkur sá
gildaskáli, þar sem dansleikar sjeu haldnir undir umsjón
menntaðra manna, sem annarstaðar tíðkast. Hver eru þá
önnur úrræðin, en að leita sjer skemmtunar í nautn á-
fengra drykkja, sem norðurlandabúum og einkum íslend-
ingum hefur svo opt verið brugðið um? það eru jafnvel
dæmi lil þess, að piltar hafa farið að venja sig á slikar
naulnir, áður en þeir koma í skóla; og menn vita fyrir