Baldur - 08.09.1869, Blaðsíða 5

Baldur - 08.09.1869, Blaðsíða 5
65 skrám var farið fram á jafnrjetti vort við samþegna vora í Danmörku til frelsis og sjálfsforræðis. |>ar er tekið fram, að vjer beiðumst, að fá sama forræðisrjett í vorum málum, eins og Danir fengi í sínum málum. J>að er nefnilega ekki svo að skilja, að nokkrum ísiendingi dytti í hug, hvorki þá nje síðan, að skerða rjett Dana í nokkru hinu minnsta. jþessum hinum fyrnefndu bænarskrám svaraði konungur í brjefi sínu 23. sept. 1848, sem alkunnugt er, og þegar menn hafa hugfast það samband, sem er milli bænarskránna og hins konunglega svars, þá getur engum blandazt hug- ur um, að sú hafl verið meining hins hásæla konungs, að allir þegnar hans skyldi hafa jafnt frelsi og njóta sömu rjettinda hvorir í sínum málum. En um sama leyti sem þessum bænarskrám var þannig svarað af konunginum, var verið að semja frumvarp til stjórnarskrár handa Danmörku, sem komstámeð grundvallarlögunum 5. júní 1849. þess- ir menn, sem störfuðu að frumvarpinu til hinna dönsku grundvallarlaga, voru án efa þeirrar meiningar, að áríðandi væri, að halda pörtum ríkisins saman sem allra mest, og þess vegna var hugsunin sú, að reyna að koma oss Is- lendingum á þing saman við Eydani og Jóta. þar með var og ætlað sæti Slesvíkingum og Færeyingum. J>að er nú efalaust, að þessir menn, sem stungu upp á samsteypu þessari, hafa ekki œtlað, að gjöra oss þar með neipn ó- rjett; það er líklegt, að þeim hafi fuudizt sem oss mundi hljóta að þykja það mikið gott, að vera ekki svo sem ut- anveltu besefar ríkisins, heldur vera innlimaðir í það. f>að er nú og víst og satt, að þetta sýnist í fyrsta útliti álitlegt. |>að er gott að vera í góðu fjelagi, þar sem allar ástæður mæla með og sýna ljóslega nytsemd þess, en það getur líka staðið svo á, að hollara sje, að vera út af fyrir sig, en að eiga fjelag við aðra. J>að getur verið eins affara- sælt stundum að búa sjer með frjálsræði, þótt fátækur sje, en að eiga hlut með hinum ríkari. Svo ætla eg einnig vera í þessu efni, að oss geti verið eins affarasælt, að eiga bú sjálfir, þó lítið sje, en að hafa fjelagsbú með Dönum, sem eru bæði í fjarska við oss, óiíkir að háttum, máli og þjóðerni og ókunnugir, bvernig hérhagar. Þegar frumvarp til hinn- ar dönsku stjórnarskrár var nú búið til, og stefnt var til ríkisfundar í því skyni, að semja um lögtekning þessa frum- varps, þá voru fimm íslendingar kvaddir af konungi til þessa ríkisfundar fyrir hönd íslands, og meðal þeirra varjegeinn; jeg held að mjer sje því nokknrn veginn kunnugt hvort á- lit okkar var á málinu. f>að sýndist liggja næst fyrir okk- ur, að koma til þess, að mótmæla, að nokkuð yrði þar samþykkt, sem skert gæti frjálst jafnrjettisatkvæði vort ís- lendinga, því þá var enn ekki orðið kunnugt konungsbrjefið 23. sept. 1848; en þegarvið vissum af konungsbrjefi þessu, þá þótti okkur þó geta orðið gagn að því að mæta, í þeim tilgangi fyrst og fremst, að geta fengið tækifæri til, að á- skilja, að hjeldist vor löglegur rjettur óskertur, sá rjettur, sem oss var heimilaður í konungsúrskurðinum, að vjer skvldum hafa frjálst atkvæði í vorum málum. Með þessu fannst oss, að vjer ekki einungis styrktum rjett sjálfra vor heldur og einnig að vjer fengjum um leið tækifæri til, að styðja með atkvæði voru það, sem gæti orðið til, að efla þjóðfrelsi samþegna vorra í Danmörku, og það er ekki ó- líklegt, að þetta gæti ásíðan orðið rnálum vorum á einhvern hátt til styrkingar. En þar til kom enn fremur, að oss virtist, það geta orðið Dönum og öllu ríkinu jafnvel frem- ur til skaða, ef vjer kæmum fram með mótmæli sterkari, en öldungis [óumflýjanlegt væri. f>á var, eins og kunnugt er, uppreisnin í hertogadæmunum nýlega byrjuð, og ef vjer hefðum þá hafið sterk mótmæli, þá gat verið, að það hefði vakiðtöluverða eptirtekt, og enda orðið málstað Dana til nokk- urs hnekkis; en vér á hinn bóginn vildum af fremsta megni styrkja Dani í því að ná frelsi sínu, sem vjer vonuðum þá, að einnig væri vort frelsi. Einn af oss var kosinn í þá nefnd, sem skyldi rannsaka frumvarpið til grundvallarlag- anna, og eptir samkomulagi vor á meðal var það fyrir hans uppástungu borið upp á þinginu af hendi allrar nefndar- innar, að ekkert skyldi útgjöra um rjettindi Islendinga fyr en málið væri borið upp á frjálsu þingi í landinu sjálfu; því þótt svo væri að orði kveðið, að lslendingar skyldu verða «heyrðir um þetta mál, þá gat enginn skilið það loforð öðruvísi en svo, ef það skyldi trúlega efnt verða, en að stjórnarmál íslands skyldu verða útkljáð eptir frjálsum samn- ingi milli konungs og þegna hans á íslandi, svo að þing vort hefði sama samningsatkvæði af vorri hendi, eins og ríkisfundurinn af Dana hendi. Nefndin stakk líka upp á að áskilja Sljesvíkurraönnum frjálst atkvæði um hluttöku Sljesvíkurí grundvallarlögunum. En þegar til þingsins kom, og til atkvæða skyldi ganga, þá var það tekið fram, að rjettindi íslands hefði næga trygging í konungsbrjefinu 23. sept. 1848, svo að ekki þyrfti meira með, og að ekki þyrfti heldur neina sjerstaklega yfirlýsing Sljesvíkur vegna, því þeirra rjettindum væri við engu hætt. Af þessum ástæð- um felldi ríkisfundurinn báðar þessar rjettargeymslur eða rjettarforskot bæði fyrir ísland og Sljesvík. En þegar nú kom til kasta stjórnarinnar og grundvallarlögin voru sam- þykkt, þá var Sljesvík einni geymdur rjettur í sjerstakri konunglegri auglýsing, en um íslands rjett var engin aug- lýsing gefin út. Jeg þykist vera sannfærður um, að stjórn- in hefir þar með í engan máta viljað niðra rjetti vorum íslendinga, heldur mun það hafa komið til af því, að hún hefir með þessu án efa viijað gefa til kynna, að hún áliti konungsbrjefið 23. sept. 1849 vera trygging rjetti vorum. Nú var stofnað til þjóðfundar á íslandi, og datt þá víst engum íslendingi annað í hug, og gat ekki heldur hugs- að annað, eptir því sem á undan var farið, en að þetta þing væri hið sama með tilliti til íslands, eins og ríkis- fundurinn hefði verið með tiiliti til Danmerkur. Að vænta þess var ekki annað, en að vænta sanngirnis og rjettlætis; en það er engin sanngirni, að þegnar í einum hluta lands séu lagðir undir yfirráð þegnanna i öðrum hluta lands, þar sem þeir eiga engan fulltrúa, eða að þjóðþing Islendinga standi undir atkvæði ríkisþings Dana. f>á er konungur boð- aði til þjóðfundarins, tók hann fyrst svo til, eins og áður er sagt, að þetta þing skyldi verða »heyrt«, eða eins og lögfræðingarnir hafa útlagt þetta orð, að þingið skyldi vera ráðgefandi þing í þeim skilningi, að konungur eða stjórnin væri i engu bundið við tillögur þingsins, þegar það

x

Baldur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Baldur
https://timarit.is/publication/90

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.