Baldur - 08.09.1869, Blaðsíða 8

Baldur - 08.09.1869, Blaðsíða 8
68 SMÁMUNIR. Konur aem lœkncir. 300 konur hafa nú numið læknis- fræði til fulls við ýmsa háskóla í Ameríku og gegna nú læknisstörfum í mörgum borgum í Vesturheimi. Hinn fyrsti kvennmaður, er varð meistari í læknisfræði (Dr medicinae) var miss Blackwell, árið 1840. í Nýju-Jórvík (New-York), eru til þeir kvennlæknar, er hafa í árstekjur 10 tii 15 þús- undir dollars (1 dollars er nærhæfls llmörk). Við háskól- ann í Zúrich í Svisslandi er nú, sem stendnr, margarkon- ur, er leggja stund á læknisfræði. I Svíaríki er nú og bú- ið að leyfa konum rjett til læknaembætta, og eptir því sem »Aftonbladet* segir frá, er allt í undirbúningi til þess, að konur geti numið þessa fræði við Karls-skóla (karolingske Institut) og við einn annan skóla í Svíþjóð, og verður við þessa skóla nú í haust byrjað að halda fyrirlestra fyrir kon- ur, sem ætla sjer að verða læknar. — Burtfarir til Ameríku fara ávallt í vöxt frá ýmsum löndum norðurálfunnar. Einkum hafa þær aukizt talsvert seinustu 4 árin eptir því sem opinberar skýrslur frá Washing- ton segja frá. Árið 1865 komu þannig 248,120 útlend- ingar til Ameríku, árið 1866 voru þeir 318,554, árið 1867 voru þeir 298,358 og 1868 voru þeir 297,215. Elestir komu frá Englandi, frá t’ýzkalandi 845,479, frá Noregi og Sví- þjóð 58,289, og frá Danmörku 13,043. Á þessum fjórum árum hafa frá Norðurálfunni fluttzt til Ameríku 1,162,247, eður á aðra millíón manna. VÍGÐIR sunnudaginn 29. þ. mán. kand. theol. Jón Bjarna- son til aðstoðarprests hjá föður sínum sjera Bjarna Svein- syni á Stafafelli í Lóni í Austur-Skaptafellssýslu, kand. theol. Benedikt Kristjánsson til Skinnastaða í Axarfirði og kand. theol. Eggert Sigfússon til Hofs- og Spákonufells á Skagaströnd. FRAMI. 28. d. júlí-m. hefir konungur sæmt biskup landsins Dr. theol. P. prófessor Pjetursson R. af Dbr. með heiðursmerki Dannebrogsmanna og sama dag með hinu sama merki fyrrum hreppstjóra Vilhjálm Hákonarson í Kirkju- vogi í Höfnum og í’orstein Jónsson á Brekkugerði í Múla- sýslu. Sama dag er sýslumaðurinn í Norðurmúlasýslu 0. Smith sæmdur kansellíráðs-nafnbót. MANNALÁT. 16. dag júlímán. dó Sveinn Þórarinsson, fyrrum um- hoðsmaður og skrifari hjá amtmanni Havsteen, fæddur 1821 ; hann var góður maður og merkur. — Að austan er skrifað, að nýlega sje dáinn merkismaðurinn sgnr Gísli Árnason i Byggðarholti í Austur-Skaptafellssýslu; hann var sonur sjera Árna Gíslasonar prófasts á Stafafelli í Lóni (er dó 1840, sbr. «Prestatal og prófasta», Kmh. 1869, bls. 26). Sjera Árni var bróðir sjera Brynjúlfs í Eydölum, föður Dr. Gísla og þeirra Eydalabræðra. Gísli heitinn mun hafa ver- ið orðinn háaldraður maður; hann lætur eptir sig mann- vænleg börn, þar á meðal merkisbónda Ólaf Gislason í Volaseli. AUGLÝSING. NÝJAR DANSKAR BÆKUR. Hjá mjer fást keyptar þessar bækur: Maria Stuarts Henrettelse « rd. » mk. 12 sk. Marietaarnet (romantisk Fortælling) . » — » — 12 — Praktisk Kogebog af Maria Hansen . » — 1 _ 8 — Praktisk Kogebog af M. H. (Udtog) . » — » — 8 — Mestertyven Lassa Majas Levnet og Be- drifter » — „ — 12 — Frederik den VII. Liv og Levnet . . » — » — 12 — Kammerjœgeren............................ — » __ g ___ Troldmanden.............................. .. i_4 ________ Beatrice Cenci, Inquisitionshistorie . » — » — 12 — Mirakeldókt.oren......................... — » __ g __ Nökken, Fortœlling............• . » .— » — g __ Kjöbenhavns nyeste Mysterier, Eoman med Illustrationer. 312 Sider » — 3 — » — Brevebog for Hvermand, deri Breve for Elskende, af Pro/essor G. P. Olivarius » — 1 — » — Cyprianus, den fuldstcendigste Drömme- og Spaabog » — 1 — » — Den kloge Mand eller Huuslœgen af H. Hansen » — 1 — 10 — Kjöbenhavns Mysterier, 8 lukkede Bille- der for Herrer » — 1 — » — Nora Ebbesen, Kjöbenhavns Skjönhed, 8 lukkede Billeder for Herrer alene » — 1 — » — Mindeblad i Anledning af Kronprinds Frederik og Kronprindsesse Lovises For- mœling (Portrait) » — » — 4 — Verð alls = 2— 5 — 2 — En sje keypt 1 exemplar af hverju, fæst það allt fyrir 2 rd. (afsláttur 5 mrk. 2 sk.). Margar af bókunum eru með mynd- um. Fleira smávegis fæst hjá mjer, og þar á meðal stú- dentablaðið «Pjerrot», er kostar 4 mörk um 3 mánuði; og allir sem vilja geta pantað hjá mjer bækur. Kjöbenhavn. Frants Biichler, Bog- og Kommissionshandler. (£gr* Allar þessar sömu bækur fást hjá mjer fyrir sama verð, nema hvað «Pjerrot» er nálega helmingi ódýrari hjá mjer — 2 mrk. 8 sk. þrír mánuðir — sakir góðra kjara, er jeg nýt hjá bóksala Búchler. Með þvíjeg hefi útsölu á hendi fyrir hr. Búchler, geta allir snúið sjer til mín. Reykjavík, 6. dag septembermán 1869. Jón Ólafsson. EMBÆTTI. Cand. med. et chir. í*. A. Johnsen er veitt læknis- umdæmið eystra í suðuramtinu. Útgefandi: »Fjelag eitt í Reykjavík». — Ritstjóri: J. P. H. Gudjohnsen. — Skrifstofa: Tjarnargötu M 3. * Preutaími í lands-prentsmibjuum 1869. Einar þórbarson.

x

Baldur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Baldur
https://timarit.is/publication/90

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.