Tímarit - 01.01.1869, Side 2
IV
ur, og 7. œttir nú lifandi embœttismanna og heldri
manna, einkum karlleggina, o. s. frv. Skyldi ritið
koma út í 3 eða 4 heptum um árið, og í hverju hepti
vera 3. 4 eða 5 arkir, og örkin kosta að eins 6 sk.;
hugsaði eg nú, að rit petta yrði að vera alþýðu kœr-
komið.
En annaðhvort er það, að löngun álþýðu eptir
pessum fróðleik er minni en eg hafði hugsað, eða þá
sem líklegra er, að hún heldur að það se eigi mikils
fróðleiks að vœnta af mer íþessu efni, og játa eg fús-
lega, að eg er lángtum ófróðari bœði í þessu og öðru
enn eg vildi; eða þá hið þriðja, að sumir þeirra, er
eg sendi boðsritin, hafa eigi nennt, að vera að gjöra
ser það ónœði, að sýna mönnumþau, því eg hefi valla
fengið álls 300 áskrifendur, sem er lángtum of lítið
til þess eg geti verið skaðlaus, þar eð prentun og eink-
um útsendíng bóka her á landi er svo kostnaðarsöm.
En með því þó að þeir fáu leikmenn, er eg sendi
boðsritin, hafaþví nœr allirútvegað mer lángtum fleiri
áskrifendur, en eg gat vœnst, og eins prestar þeir er
fróðleik unna, hafa útvegað mer nokkra kaupendur,
hefi eg ráðist í, að láta hepti þetta út koma, sem sýn-
ishorn upp á það, hvernig ritið mundi verða, í þeírri
von, að kaupendur kunni að fjölga, ef mönnum geðj-
ast að ritinu', en fjölgi kaupendur eigi, og ritið eigi
gángi út, svo að eg af því að eins hafi skaða og
tímatöf, þá vona eg, að enginn lái mér, þó eg hœtti
við það.
Eg skal nú gjöra litla grein fyrir því, er nú er