Tímarit - 01.01.1869, Qupperneq 5
VII
við orðunum. Eg hefi leyft mer, að gjöra neðanmáls
nokkrar skýríngar og athugasemdir, þar sem mer heflr
þótt henta, og því œtla eg mer að halda áfram.
5. Par ept-ir kemur byrjun hinna fullgiltu kirJcna-
máldaga Hólabiskupsdœmis, og verður þeim haldið á-
fram, verði ritinu framhaldið. Eg vona, að allir á-
líti þetta nauðsynja verk, og því fremur, sem máldag-
arnir við biskupsdœmið eru farnir að trosna mjög og
fúna. Við bislcupsdœmið eru tvö eptirrit af máidaga-
bókunum fyrir Hólabiskupsdœmi; er annað pcirra rit-
að árið 1639, en hitt ár 1645, og er hvorttveggja rit-
að eptir frumritunum, en sá er munur á þeim, að hið
seinna er staðfest af tveim skilríkum mönnum, en hið
fyrra er óstaðfest. Það er auðseð, að þau bœði eru
rituð með hinni mestu nákvœmni, en þó er stafsetn-
íngin á þeim nokkuð mismunandi, og hafa pau liklega
hvorigt fylgt stafsetníngu frumritanna-, þó hafa þau,
þar sem frumritin hafa haft einhverja frábreytilega
stafsetníngu á einhverju orði, tékið hana upp. Her er
orðrett prentað eptir seinna eptirritinu og með þeirri
stafsetningu, sem þar er, nema hvað böndin eru Jeyst.
Eg kalla þetta eptirrit A, en hitt B. Frá orðamun
er sagt neðanmáJs.
6. Seinasta ritgjörðin í hepti þessu, er eptir ýng-
ismann nokkurn, er heitir BrynjóJfur Jónsson ogheima
á á minna Núpi í Gnúpverja hreppi í Árness sýslu.
Bitgjörð pessi er prentuð með öJlu, eins og hún er
komin frá höfundinum, og vona eg, að hverjum manni
þyki hún serlega fróðJeg. Ilún Jýsir því bezt, Jiversu