Heilbrigðistíðindi - 01.11.1879, Blaðsíða 5

Heilbrigðistíðindi - 01.11.1879, Blaðsíða 5
»5 sterkasta, sem jeg hef nokkru sinni vitað. — Hvað meðhöndlun þessa sjúkdóms áhrærir, þá hefir hún verið hin sama, sem áður. — Salmiak-brjóstmixtura með lakkríssafti í hefir verið hið almennasta meðal og dugað flestum. Hafi hlustarverkurinn verið mik- ill og viljað grafa í eyranu, hef jeg viðhaft á einum tveimur chloral-hydrat-vökva, sem jeg hygg, að muni reynast Vel; hjá sumum, einkum börnum, hefit og bulme-jurtar-olía (oleum hyoscyami coctum) sýnt tals- verða linandi verkun. Hlustarverkurinn getur orðið mjög slæmur, sje ekkert við hann gjört, og því er allajafna vissara, að reyna til að lina hann í tíma, en það skeður bezt á þennan hátt: Menn taka sem svari eitt lóð af chlor-hydrat-salti, eins og það fæst í lyfjabúðum, þetta uppleysa menn i sem svarar 3. pela flösku af hreinu vatni. í þessu væta menn nú kompressur, og leggja yfir eyrað. þetta er vant að lina, og er alveg hættulaust meðal. þessari kom- pressu skiptir maður, þegar hún þornar, og vætir hana aptur í hinum sama vökva, og heldur þannig áfram, uns verkurinn svíar. því næst leggja menn langvarandi spanskflugu bak við eyrað, og láta grafa undir um tima, til þess að draga frá bólgunni í heyrnar- himnunni (membrana tympani). Líka mun þá ráð- legt, að gefa sjúklingnum inn svitameðul, og má til þess hafa, eptir því sem á stendur, ýmist Hylde- the, drukkið heitt, eða svitadupt (Doverspulver), og 20—30 kamphorudropar, en börnum minna. Komi bijóstbólga, að taka ungum hraustum mönnum blóð, því samkvæmt nýjari tíma reynslu er það statt og stöðugt, að verulegar brjóstbólgur (hvort heldur er brjósthimnubólga eða lungnabólga) batna fljótar eptir mátulegan blóðmissi, ef hann er um hönd hafður í tækan tíma, en ella. En eins og blóðtakan í öllum

x

Heilbrigðistíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heilbrigðistíðindi
https://timarit.is/publication/94

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.