Tíminn - 30.05.1872, Síða 5

Tíminn - 30.05.1872, Síða 5
49 FYRIRSPURN. J>ar sem herra Dr. J. Hjaltalín í «Heilbrigðis- tíðindum» sínum, varar oss íslendinga við hinum miklu og skaðlegu kaffi-kaupum, sem aldrei er of gjört, og þar með áminnir oss að nota okkar eig- in jurtir svo sem blóðberg o. s. frv. til að drekka af, þegar þau fara að lifna með vorinu, en þá viljum vjer nú spyrja herra landlæknirinn um: eig- um vjer þá ekkert að drekka að vetrinum, þar liann hefir ekki enn kennt oss að verka þessi grös frá sumrinu og geyma til vetrarins, vjer rit- um þetta í þeim tilgangi að hann nú komi með grein um hirðingu slíkra grasa, eins og honum mun verða ljúft þar hann vill oss mikið vel í þessu atriði sem fleirum. apað er bezt að sníða sjer staltli eptir vexti». Vjer íslendingar erum fátæk þjóð, sem allir vita; það má líka játa það, en þó má kenna oss að miklu leyti um örbyrgð þá, er á oss hvílir; það er nú eitt meðal annars, sem eyðir efnum vorum, sem vjer tökum eptir útlendri venju, nfl. sumt kaupslaðarlífið, sem komið er inn hjá oss, í ýms- um greinum, og þessi útlendi sælkeraháttur; þetta mun þykja harðorðað, en týna má til ýms dæmi til sönnunar; það er eitt: að konur og karlar af bændastjett, handiðnamenn, og enda fleiri á sama stigi, vilja klæðast úllendum búningi, haldlitlum og óhollum eptir loptslagi voru, og í annan stað svo afkáralega að slíkt er til athlægis; þar næst má telja: heimboð sí og æ, og daglegt ráp hver til annars, sem eigi leiðir annað af sjer, en of- neyzlu í kaffi og áfengnm drykkjum, iðjuleysi og þreytu fyrir þá, er að því eiga að standa, þvt allt verður að vera á reiðuin höndum, borðbúnaðttr og annað, er til þess heyrir, er eigi kostar svo lílið, ef allt skal líkjast kaupstaða«móð» og útlendum; þetta tjáir eigi hjá oss, þar sem allt þarf að spara og færa sjer hin litlu efni sem hyggilegast í nyt, og verja hverri stundu til að iðja eitlhvað þarft, en hvíldardeginum til andlegrar og líkamlegrar endurnæringar. Af þessu litla, af möt'gti, vil jeg í bróð- erni ráða ykkur kæru landar! «til að sníða yður stakk eptir vexti». Bróðurlegur vandlœtari. ELDGOS ÚR VESÚV 1872. (Eptir norskum blöðum). Eldfjallið Vesúv liggur á Suður-ftalíu, skammt fyrir sunnan og austan borgina Neapel; það er 3800 feta hátt. Það gaus hið fyrsta sinn árið 79 e. Iír. Síðan hjelt það áfram að gjósa öðru hverju allt fram að 1200. í*á varð hlje á eldgosunum um 400 ár. Eptir 1600 tók fjallið aptur að gjósa, og síðan hefir það haldið því áfram við og við fram á vora daga. Sum af eldgosum Vesúvs hafa verið hin mestu eldgos, er menn hafa sögttr af, og hafa valdið afarmiklu tjóni, einkum gosin á árunum79, 1631, 1794 og 1861. Síðan 1867 hafa verið sífelld eldsumbrot í Vesúv; hafa menn jafnan um daga sjeð reykjar- mökk mikinn yflr gýgnum, en eldstöpul um næt- ur; en eldstöpull þessi hefir ei annað verið en reykjarmökkurinn, er borið hefirbjarmaá í dimm- unni af eldinum niðri f fjallinu. Næstliðinn vetur hafa eldsumbrot þessi farið mjög í vöxt, og hafa menn þótst sjá ýms merki þess, að innan skamms væri eldgos í vændum; þetta rættist og; nóttina milli þess 24. og 25. f. mán. tók fjallið að gjósa ákaf- lega; um morguninn (á sumardaginn fyrsta), stóð fjallið allt í björtu báli, og eldflóðið rann niður í allar áltir; hjelzt gosið þann dag allan, og svo nóttina. Hinn næsta dag var gosið enn ákafara, og fór sívaxandi allt til kvelds; urðu þá jarðskjálft- ar miklir, og ógurlegar dunur heyrðust í jörðu niðri margar mílur á braut þaðan. Eidflóðið stefndi nú í suðvestur, að sjó fram, og var hin mesta hætta búin bæjunum Portici, Resina, Torre del Greco og Torre dell’Annunciata, er liggjaþar milli fjalls og fjöru; tóku íbúar bæja þessara og hjeraðanna þar t' grennd, óðum að flýja. Þegar síðast spurðist (að kveldi hins sama dags) höfðu

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/96

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.