Tíminn - 30.05.1872, Page 7
51
aðgæta þegar 1 kvartil tungls sjest á himni, eða
síðasta kvartil þess, sem er allt hið sama, t. d.
set jeg á mig þann dag, sem jeg sje fyrsta og
seinasta kvartil tungls á himni, af því þekkjast
eyktamörkin. t*ví að ætíð skuln 6 stundir milli
sólar og tungls þann sama dag er kvartilaskiptin
eru, svo þá sól er í hádegisstað, á 1. kvartili
tungls, þá er það í miðsmorguns stað. Sjáist sól
á 1. kvartili tungls í nónstað, þá er það í dag-
málastað, o. s. frv. Sjáist tungl í hádegisstað á
1. kvartili þess, þá er sól í miðsmorgunsstað, eð-
ur kl. 6. t’á tungl er í nónstað, er sól í dagmála-
stað. Beri út af því sem hjer er sagt, þá eru
eigi rjett eyktamörk haldin, en beri saman, eru
þau rjett.
SCMARKOMA.
Vetrinum burtu vorið svipti
að vanda sínum, en oss í vil
hefir nú foidin fataskipti
og fer í hin beztu, er á hún til.
Litur breylist því líf er nýtt
landið er grænt, en var þó hvítt.
2.
Nú eru skip úr naustum dregin,
nú byrjar sumar gæftum með;
nú er landbóndi líka feginn
og lætur ekki hýsa fjeð;
ei þarf hann heldur að orna sjer
því úti nógur hitinn er.
3.
Lífið sem áður lá í dái
lifnar nú við og hreifir sig
ást guðs af hverju streymir strái
og straumar þeir verða að hreifa sig,
þú veizt það iíka vinur minn!
að vorblóminn fær á anda þinn
4.
því skal oss fyrst það verða að vegi
í vor, úr því að jörð er þíð
og sóleyjar glóa á grænum teigi
en grösin marglit í hverri hlíð
að fara og skoða hin fögru hnoss
er faðir náttúru býður oss.
5.
Því skulum vjer í skógarrunnum
skoða hvað lífið fagurt er,
svo að vjer líka líta kunnum
fyrst iaufin visna og blóminn þver,
ei ber með von um langa leið
að leggja út á mjög óvíst skeið.
6.
Opt kemur dauði og aldur stittir
ekki neitt hann um blóma spyr.
Allt ræðst hann á, sem að hann hittir
eins ber á kots- og hallardyr.
Vinnnm því það sem vinna ber
því vinnutíminn stuttur er.
ÁGRIP AF FRJETTUM
verður stutt í blaði þessu, því hjer er allt tíðinda-
lítið, og ferðir fáar lengra að. Síðan «Tíminn»
kom út seinast, hefir mátt heita hjer sunnanlands
stillt veðurátta, en fremur köld, sökum hafíshroða
sem enn er sagður liggja við norðuriand. Nætur-
frost voru hjer allt að 3—4°, bæði kringum hinn
9. og 18. þ. m. hefir því gróður farið lítið fram,
þar til vikuna sem leið, er veðuráttunni brá til
vestanáttar með hægri úrkomu. Fiskilítið er talið
af suðurnesjum, en hjer á Seltjarnarnesi hafa
sumir aflað allvel af ísu eptir það þeir tóku upp
lóðir.
Þessergetið eptir útlendum blöðum, að múr-
meistarar og ýmsir aðrir handiðnamenn hafi gjört
upphlaup í Kaupm.h. og skríllinn hafieinnig fylgst
með, því þeir vilja vera einráðir með vinnubrögð,
daglaun og frjálsræði, en upphlaup þetta var
sefað brátt aptur.
MANNALÁT.
Veturinn 1870, blaut presturinn til Möðru-
vallaklausturs, síra Þórður Jónassen, að sjá á bak
ástkærri eiginkonu og efnilegri einkadóttir, og nú
24. þ. m. andaðist hjer eptir langa sjúkdómslegu,