Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Page 16

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Page 16
16 um, litlu neðar en móts við Hafradal. Þar er nú tóft kotsins, en allar aðrar byggðarleifar horínar. Hurdarbak á að hafa verið í hvarfi litlu skammt fyrir innan Borg. Þar sjást engar rústir, og mun gil hafa sljettað yf- ir þær. Torfastadir er óvíst hvar verið hafa. Jón hafði ekki heyrt nein munnmæli um það. Mjer kom í hug að gizka á, að þeirhafi staðið sunnau undir svo nefudum Rauðhól. Það er grjóthóll úr mórauðu biecciu-grjóti, sem skagar austur 1 dalinn innarlega úr hlíðinni sem er fyrir innan Hafradal. Meðan allar hlíðar voru grónar og skógi vaxnar, hefir þar verið einna fegurst í dalnum, og líklegt að landnámsmaðurinn hafi þar byggt. Sennilegt er líka, að Torfastadir sje sama bæjarnafn sem Torfhvalastaðir, sem víst er eitthvað aíbakað. Verið getur að bærinn hafi ýmist ver- ið nefndur Torfastaðir eða Torfahváll (hafi hann staðið við hól- inn); hafi svo sögurítarinn, eða þó heldur einhver atskrifari, mis- ritað: «Tórfhvalastöðúm« í staðinn fyrir: »Toríahváli eða Torfastöð- um«. Um þetta verður ekkert fuliyrt. Sópandi á að hafa verið undir múlanum milli Sópandaskarðs, — er liggur norður úr dalnum, — og Víðdals, er liggur austur úr norðurenda hans. Lækur kemur þar ofan úr Sópandaskarði um gljúfur djúpt, og er líklegt að bærinn hafi verið þar nálægt sem lækurinn kemur. fram úr gljúfrinu. Nákvæmar erekkihægt að gizka á það. Þó segja Hörðdælir, að Sópaudi hafi staðið und- ir Þrúðutelli, uppi í skaiðinu; en það er ólíklegra, og sjást held- ur engin merki. 11. Sanddalui*. Svo segir Landnáma, II. 3., »Örn enn gamli nam Sanddal ok Mjóvadal ok svá Norðrárdal« .... Sanddalur liggur til norð- urs út úr Norðurárdal spölkorni fyrir innan Hvamm. Þar eru nú 3 bæir utarlega í dalnum; en þaðan liggur hann afarlangt til norðurs, og i r sagt að áður hafi verið byggð inni í honum. Eru nefndir 2 bæir: Ormarstaðir og Ljósbleiksstaðir. Þeirra er get- ið í jarðabók Arna Magnússonar, og þeir eru sýndir sinn undir hvorum múla innan til 1 miðjum dalnum. Þar eru nú upphækk- uð þúfnabörð, sem bæirnir hafa verið og jörð er þar grænni en annarstaðar. Mjóidalur liggur útnorður úr Sanddal. Þar hjet býli Brandarkot. Þangað fór jeg ekki. — Ennfremur segja munn- mæli að i Sanddal bafi verið Óttarstaðir, Þar sem Ottar bjó faðir

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.