Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Qupperneq 19
Fornleifar á Fellströnd
skoðaðar aí'
Brynjúlfi Jónssyni
sumarið 1895.
----NS--
Þann 1. ágúst 1895 fór jeg frá Hvammi i Hvamrassveit út
á Fellströnd, til að skoða þar fornleifar. Sjera Kjartan Helga-
son í Hvammi fór með mjer, og fjekk hann okkur til fylgdar
Jónas bónda Jónsson í Skógum, sem bæði er manna kunnug-
astur á þeim stöðum sem skoða skyldi og hneigður fyrir fornan
fróðleik.
Svo segir í Landnámu, 2. P. 19. kap.: »Ljótólfr hét maðr,
honum gaf Kjallakr bustað á Ljótólfsstöðum inn frá Kaldakinn.
Hans synir varu þeir Þorsteinn ok Björn ok Hrafsi . . . Þeir
réðust út f Fellskóga á Ljótólfsstaði ok Vifill vin þeirra, hann
bjó á Vífilsstóftum .... »Svo er að sjá af þessu, að Ljótólfur
hafi fyrst búið innst á ströndinni fyrir innan Köldukinn, og hafi
hann tekið sig upp þaðan er synir hans voru vaxnir, og flutt
byggð sína á Ljótólfsstaði f Fellsskógum. Rúst þess bæjar sjest
enn, og heita þar enn Ljótólfsstaðir. — Mun það sama eyðibýlið
sem jarðabók Á. M. nefnir »Ljótarstaði«. — En eftir Ljótólfsstaði
fyrir innan Köldukinn eru engin merki, hvorki rústir nje örnefni.
Ljótólfsstaðir eru í Staðarfellslandi, rjett austur við landamerkin,
og er skammt þaðan austur að Skógum. Bærinn (sjá 4. mynd)
hefir staðið undir lítilli brekku, góðum spotta upp frá sjó. Lág-
ur ás er fyrir ofan brekkuna. Fagurt er þar og landið skógi
vaxið. Austast undir brekkunni, laust fyrir neðan hana, eru
tvær tóftir saman (b), hin eystri lengri upp að brekkunni, og
dýpri, en nokkuð mjórri, hjer um bil 4 fðm. löng og3fðm. breið
3*