Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1896, Qupperneq 34
34
visi en i raun og veru er. Mönnum heíir t. a. m. orðið hjal-
drjúgt um ferð Flosa til brennunnar, eins og Njála segir frá
henni. En allt sem þar við er athugavert, er auðsjáanlega sprott-
ið af þvi, að söguritarinn hefir eigi sjálfur sjeð svæðið, sem Flosi
fór um, en gert sjer hugmynd um það eftir lýsingu, ef til vill
ógreinilegri. Fiskivötn t. a. m., sem hann getur um, munu ann-
aðhvort vera vötnin á Landmanna-afrjetti, eða Veiðivötn fyrir
norðan Tungnaá. Hann hefir heyrt þeirra getið norður á fjöll-
um; en af ókunnugleik hugsar hann sjer svæðið miklu minna en
það er, og heldur, að vötnin sjeu svo nærri leið Flosa, að eigi
megi sleppa að geta þeirra. Þó grunar hann, að þau muni lengra
burt en svo, að Flosi hafi komið alveg að þeim; því þykir hon-
um vissara að bæta við: »ok riðu nokkuru fyrir vestan vötuin«.
A þessu sjest, hve samvizkusamur hann er. Hitt hefir hann sízt
grunað, að vötnin gæti legið svo langt fyrir norðan leið Flosa,
sem raunar er, um hvor vötnin sem ræða er. Sama er að segja
um Goðaland: Hann hefir heyrt, að það væri á leiðinni þá, er
farið væri um Þórsmörk upp á Fjailabaksveg, og hann hefir vit-
að, að það var leiðin, sem Sigfússynir fóru; svo gengur hann' út
frá því sem sjálfsögðu, að Flosi haíi hlotið að fara sömu leið að
öllu leyti. Hitt er honum dulið, sem kunnugir vita, að þegar
komið er austan Fjallbaksveg (hinn syðra) og ferðinni heitið á
Þríhyrningsháls, þá liggur beint við að fara fyrir norðan Tinda-
fjöll (sem nú er vegurinn). En til þess að ekki yrði við ferðina
vart, þurfti ekki annað en víkja af veginum fyrir ofan Lamba-
dal, norðvestan Tindafjalla, og fara eptir hálendinu fyrir ofan
byggðina, þar til komið var á Þríbyrningsháls. Kunnugir geta
varla annað ætlað, en að Flosi hafi þá leið farið. Þá er líka
auðskilið, hvað honum gekk til að velja Þríhyrningsháls fyrir
samkomustað; en ef hann hefði farið ofan í Goðaland, þá er það
mjög úr leið og meiri tímatöf en svo, að skiljanlegt sje. En þótt
»krítikin« geti slegið því föstu, að Flosi hafi ekki farið nálægt
Fiskivötnum cg ekki um Goðaland, er hann fór til brennunnar,
þá hefir slíkt engin áhrif á áreiðanleik sögunnar, því síður sem
hitt er ekki að efa, að einn flokkur þeirra, sem leituðu eftir
brennumönnum, hefir farið Goðalandsleiðina upp á Fjallbaksveg
hinn syðra, og annar til Fiskivatna, því hugsanlegt gat þótt, að
brennumenn hefði leitað þar hælis í bráðina. Víðar bregður því
fyrir í Njálu, að söguritarinn virðist vera ókunnugur. Það er t.
a. m. ekki annað að sjá, en að hann ætli, að Gunnar hafi átt
leið upp með Rangá, er hann fór heim neðan úr eyjum (Móeið-
arhvolseyjum). Að minnsta kosti er ekki getið um neitt sjer-