Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Qupperneq 1

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Qupperneq 1
Rannsókn í Mýra- Hnappadals- og Snæfellsnessýslum sumarið 1896. Eptir Brynjólf Jónssoo. I. Gufuskálar. Svo segir í Landn. II. 24. »Ketili gufa . . . fekk öngvan bú- stað á Nesjura, ok fór hann inn í Borgarfjörð, ok sat hinn þriðja vetr at Gufuskálum við Gufá«. — Og svo segir i Eglu, kap. 77.: »Síðan fór hann (Ketill gufa) inn í Borgarfjörð, ok sat þar hinn þriðja vetr, er síðan er kallat at Gufuskálum, en áin Gufá, er þar fellr i ofan, er hann hafði skip sitt í um vetrinn«. — Nú er örnefn- ið Gufuslcálar ekki til,. og ekki hægt að segja, hve langt er síðan það týndist. En sízt er að undra þó það hafi horfið, þvi xtaðurinn, sem bar það nafn, er ekki framar til. Svo stendur nefnilega á, að allstaðar inn með Borgarfirði norðanmegin brýtur sjórinn landið ár- lega, þar sem ekki er fast berg fyrir. Svo hefir gengið frá ómuna- tíð, því sunnanveður eru þar oft mjög sterk, er vindur stendur fyr- ir Hafnarfjjall. Hefir sjórinn því smámsaman lagt þar undir sig mikið víðlendi og myndað úr því leirgrynningar. En aftur á móti breikkar landið af árburði sunnanmegin fjarðarins. Sjór fellur út af leirgrynningunum um fjöru; en Hvítá fylgir norðurströndinni út fjöruna og færist því stöðugt norður á við. Liggur nú straumsvið hennar um það svæði, sem Gufuskálar hafa áður verið. Það erallt afbrotið, svæðið sem þeir hafa verið á, nema lítill tangi, út af Öl- valdsstaða-eingjum, sem heitir Lambatangi, og er hann þó umflot- inn af sjó um flóð nú orðið. A honum er tóft, nokkuð fornleg, og þykir vera mega, að hún sje eftir af búðatóftum á Gufuskálum, er smámsaman hefir orðið að færa undan sjó. En búðir hafa þó verið 1

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.