Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Page 6

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Page 6
6 tiloiðið nf þeim munnmælnm. Um sannleik í þeim er ekkert hægt að segja. Þó er líkiegra, að Kvöldúlfshöfði væri nefndur í sögunni, ef hann hetði borið það nafn þá er hún var rituð. Það er nú lik- legra, að kistan hafi ekki borizt innfyrir víkina við Skallagrímsdal, sem fyr er nefnd. Og hefði hún lent í þeirri vík, lá næst aðjarða hana þar í dalnum, og þá lá líka beint við, að heygja Skallagrím einnig í sama dalnum, hafa hann fyrir grafreit œttarinnar. Þetta er falleg hugmynd og sennileg, þvi fremur sem þar í sunnanverð- um dalnum er ávöl grjótbunga, eigi ólik útflöttum haug. í hana ljet jeg því grafa; en nún reyndist náttúrlegur grjótbali, og ekki mannaverk. Við það styrktist hjá mjer sú hugsun, — sem raunar vakti fvrir mjer áður, — að meiri áherzly beri að leggja á þessi orð.sögunnar (Landn.): »hann (Skallagrímur) reisti bæ hjd vik þeirri er kista Kvöldúlfs kom á land«, heldur en á orðin: »þá höfðu þeir skamrnt gengit« o. s. fi v., þvi orðið »xkammt« hefir mjög óákveðna merkingu, en orðin: »hjd vík þeirri« eru beint ákveðin og geta ekki átt við annað enn fíorgarvog. Þá hefir hann getað heitið »vík«, því þá hefir allur innri hluti hans verið graslendi (flæðiengi), en sjórinn síðan brotið það af þar eii>-r -og víðar. Uin það flæðiengi hefir Borg- nrlækur runnið út í vikina, og verið skipgengur um flóð. Egla nefn- ir hann sanit »vág«; og hún gefur i skyn, að kistan hafi eigi lent inni í vognuin sjálfum, en að hann (Borgarvogur) hafi verið nœxtur því er Kvöldúl/ur kom til landx. Þetta er nú óákveðið. Það getur bæði, átt við Digranes, austan vogsins, og líka við ströndina fyrir rextan hann. Mjer þykir þetta siðasta eigi ósennilegt; getur nex það, er þeir jörðuðu Kvöldúlf á, verið eitthvert nafnlaust smánes þar. — Yfir höfuð verður ekkert fullyrt um þetta, þar eð ekki hefir tekizt að uppgötva r.ein merki, er bendi á legstað Kvöldúlfs á nokkrum vissum stað. V. Skallagrímshaugur. Svo segir Egla: k. 58: «En um morgininn at fióði var lagðr Skalhujrímr í skip ok róit með hann út til Digraness, lét Egill þar gjöra haug á framanveiðu nesinu. Var þar i lagðr Skallagrimr ok hestr hans ok vapn hans ok smiðatóU. Eins og frá er skýrt i Ar- bók fornleifafjel. 1886, bls. 7, er haugur Skallagríms í lægð þeirri, sem gengur um þvert Digranes framanvert og sem kallað er Skallagrimxdalur. I minni gamalla manna var dalurinn þakinn rennsljettu graslendi með svo þykkum jarðvegi, að ekki sá á haug- inn, er var niður sokkinn, utan steina nokkra, er hlaðið hafði verið saman á toppi hans. Nú er þar allur jarðvegur blásinn burt, svo

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.