Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Qupperneq 10

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Qupperneq 10
10 Eldborgarhraun. En það hraun brann ekki fyr enn löngu seinna, svo Skallagrimur gat ekki miðað við það. Mun hann því heldur hafa miðað við Barnaborgarhraun, austan megin við Kaldá. Það er og nærri fjallinu. Það kemur betur heim við Landnámu, að þar hafi verið vesturtakmörkin á landnámi Skallagríms. A þessu vakti Helgi verzlunarfulltrúi Jónssou í Borgarnesi eftirtekt mína. IX. Hólmur. Inni í miðjum dalnum Hítardal er einstakt fell, sem hvergi er áfast fjöllunum beggja megin dalsins, enda er það ólikt öllum fjöll um og ásum þar nálægt, og þó viðar sje leitað, að því, að það er alvaxið grænu grasi, og má svo kalla, að hvergi sjdist eteinn í því. Lítur svo út, sem þar inni í dalnum sje ekki eins rigningasamt og viða annarstaðar. Annars mundu hjer meiri skriður fallnar. Fell þetta er kallað Hólmurinn. Fyrir innan Hólminn er láglendi dals- ins allt eitt stöðuvatn, Þar kvað vera silungur nægur. Bærinn Hólmur. þar sem Björn Hitdælakappi bjó, hefir staðið vestan undir norðvesturhorni fellsins. Þar eru sljettar grundir og lækur kemur þar út úr dýi vestan i fjallshorninu, og rennur vestur um grundina og svo í Hítará. Rústin er skammt suðaustur frá læknum, næst- um því fast upp við fellið. Þó er gamall farvegur eftir lækinn bak við rústina, suður og vestur fyrir hana, og kvíslast þar út um grundina. Er að sjá sem vatninu hafi verið veitt á túnið. Rústin er allmikill bali, um 18 faðma langur frá norðvestri til suðausturs. Fyrir tóftum vottar, en þó eigi glöggt. (Læt jeg fylgja uppdrátt af rústinni). Frá norðurhorninu liggur mjó en djúp laut i boga norður og austur að lækjarfarinu. Það hafa verið traðir heim að bænum eða djúpur götutroðningur. Þaðan liggur svo forn vegur inn með fellinu að norðan, inn að vatninu Þaðan mun hann hafa legið vestur að ánni og yfir hana á vaði, nálægt þvi er hún fellur úr vatninu. Vestast á grundinni við ána eru seltóftir eigi allfáar, og þarf ekki að taka það fram, að þær eru frá síðari tímum og standa ekki í sambandi við baéjarrústina. Neðst í suðausturhorni fellsins er dálitil sljett brekka, mjög fögur. Þar þótti mjer sem vottaði fyrir garðlagi. Hygg jeg að þar hafi verið akur. X. Hítardalur. Nú er hinn forni höfuðbólsbragur horfinn frá Hitardal; lítur helzt út fyrir, að liann leggist í eyði áður langt liður. Skógurinu

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.