Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Ukioqatigiit

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Qupperneq 15

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Qupperneq 15
15 verið. Víðar hafa skriður f'allið kringum bæinn í Langadal; þær hafa minnkað túnið að miklum mun. A hinn torna túngarð sjest hjer og hvar, og má at honurn inarka stærð túnsins, er verið hefir. Það hefir verið úkafiega stórt til forna. Suður í túninu er fornleg girðing, alit að 200 □ fðm á stærð. Hún iieitir Hvanngarður. Hefir hvönn án efa verið ræktuð þar til manneldi.s. Þetta, o. fl., sýnir, að hjer var stunduð matjurtarækt til forna. XVII. Smiöjustcinn að Dunki. Munnmæli segja, að Gauti landnámsrnaður á Gautastödurn (í Hörðudalshreppi) hafi liaft smiðju sína að Dunki, og hafi sá bær nafn af dynkjum þeim, er urðu er járnið var slegið. Líklegra þvk- ir mjer þó, að bæjarnafnið sje leitt af keltnesku mannsnafni, t. a. m. Duncan=Dungaðr, og liafi upphaflega heitið Dungaðarstaðir. Eit hvað setn umþaðerþá er víst, að hjer hefir járnsmiður búið. Það sýnir »smiðjusteinn« svo nefndur, þar í túninu. Ofan í hann miðj an er ferhyrnd hola fyrir steðjafótinn, og er hún 31/* þuml. að dýpt og 3 þ. í þvermál. Utundir brún á steininum er önuur hola, lítil og aflöng, 2 þ. á dýpt, 1 */* þ- á lengd og 8/4 þ. á breidd; á hún að hafa verið fyrir saumliöggið, og er það líklegt. Steinninn var að mestu sokkinn í jörð, en var nú grafinn upp og stærð hans mæld Er hann 2 al. langur, 1 */* al. bieiður og um D/a al. á liæð. Utan með honum var alstaðar dálítið af viðarkolaösku, en engin gjall- eða sindurstykki. Hjer hefir því ekki verið rauðablástur, heldur smíðað úr tilbúnu járni. Engin tóft var utan um steininn, eða neinstaðar þar nærri, og lítur svo út, senr úti hafi verið smíðað. Virðist það fremur benda til fornaldar en síðari alda. Yiðaukar. I. Hoftóft o. fl. í Bersatungu. í Árb. fornllj. 1882, 'ols. 67. getur S. V. um hoftóft í Bersa- tungu. Þá tólt skoðaði jeg í sumar. Hún er á ávölum, fallegum hól neðst í túninu austan til. Afhúsið er vestan við aðalhúsið og engar dyr á milli; en dyrnar hvorar tveggja á norður hliðinni og að eins veggurinn milli þeirra. Mjer mældist hún, eins og S. V. 17—18 al. löng og um 12 al. breið. Gjörði jeg uppdrátt af henni, sem jeg læt hjer fylgja. Neðan undir hólnum stendur steinn upp

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.