Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Qupperneq 16
16
úr jörðu og er hann kallaður »Blótnteinn«, Á þá hlið hans, sem að
hofinu veit, stendur hvTöss hellubrún upp með honum, jafn há hon-
um eða hærri. Þar er mýrlent fyrir neðan. Vestanvið hólinn er
stór lág; en fyrir vestan hana gengur fram annar hóll, neðst í
túninu vestan til. Framan í honum er brekka, og í henni girðing,
sem frá ómunatíð hefir verið bannað að siá; því þetta var akur,
sem í heiðni var helgaður goðunum og þar fyrir fylgdi honum sú
forneskja, að eigi var óhætt að slá hann. Bóndinn sem nú býr i
Bersatungu, Andrjes smiður Brynjúlfsson, sagðist vel þora að slá
liann, en eigi vilja gjöra það, þar eð munnmælin um helgi akurs
ins hjeldist fremur í minni ef hann væri látinn ósleginn. Betur að
sá hugsunarháttur væri almennur!
II. Hoftóft(?) á Ásbjarnarstööimi.
Eins og S. V. getur um í Árb. fornl. fjel. 1884—85 bls. 133,
er sýnd hoftóft á Ásbjarnarstöðum i Stafholtstungum. Sú tóft er
norðaustur í túninu, rjett við heimreiðargötuna að bænum. Hún
er nokkuð afiöng og liggur lengd hennar nærfelt frá norðvestri til
suðausturs og er utn 7 faðma, en breiddin er um 5 faðma; veggir
eru mældir með. Dyr eru á suðaustur hliðvegg nær norður-horn-
inu; snúa þær að götunni. Engin afhústóft sjest þar. Við suðaust
ur-endann er stórþýfi, — eins og víðar þar, — og eins hafði verið
við norðvestur-endann; en þar er nú búið að sljetta og varð ekki
vart við neina hleðslu. begar á allt þetta er litið, bæði afstöðu
tóftarinnar írá bænum og frá götunni, stefnu tóftarinnar, og eink-
um það að afhúsið vantar, þá sýnist mjer það efamál, að þetta sje
hoftóft í raun og veru. Altur á móti er þar suður i túninu, and-
spænis bænum og laugt frá götunni, önnur tóft, sem raunar er
mjög óglögg, en stefnir þó norður og suður og virðist lnifa afhús,
er snýr dyrum að bænum. Hefði mjer verið sagt, að þetta væri
hoftóft, þá liefði mjer þótt það trúlegra. Og sízt er fyrir að synja,
að áo/í>'-nafnið hafi einhverntíma á öldum færzt af hinni óglöggu
rúst yfir á hína glöggu. En eius og nærri má geta fullyrði jeg
ekki neitt um þetta.
III. »Haugur(?)« í Hvamini.
I Árb. fornl.fjel. 1895 bls. 21 er þess getið að byrjað hati
verið á grepti i upphækkun þá i túninu I Hvammi sem ætlað hef-
^r verið að væri haugur Þórðar Gellis. Nú er þessum uppgrefti
i