Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Page 21

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Page 21
21 hrúgu, líklega úr afli. Þar hafði og verið holahola; það eru 4 hell- ur reistar svo upp, að af því verður ferhyrnd liola. Standa 3 hell- urnar, en hin 4. lá fallin; þar í var litið eitt af kolum. — Samskon- ar ferhyrnda geymsluholu úr hellum fann Þorsteinn Erlingsson, er hann gróf út Lambhöfða-rústina sumarið 1895. Það kom i ljós, er Þ. E. gróf út rústirnar á Sámsstöðum og Ásldkstungu innri, að þar sem jeg hafði ætlað vera dyr vestantil á suður- hliðveggjunum, voru að eins skörð, en engar dyr. En austantil á þeim sömu hliðveggjum virtust dyrnar hafa verið þar sem jeghafði talið eystri dyrnar. Það sjest af þessu, að bæirnir hafa ekki ávallt verið tvídyraðir, þó hvert húsið gengi af enda annars. Þess skal getið, að í Lambhöfða rústinni fann Þ. E. grátt efni, er leit út fyrir að vera leifar af skyri. Nægir að drepa á það hjer; sjálfur mun hann á sinum tíma skýra frá rannsóknum sínum bæði í Þjórsárdal og annarsstaðar. Þar eð jeg hefi minnst á Þorstein Erlingsson, og þar eð jeg var með honum við rannsóknirnar í Þjórsárdalnum, finn jeg mjer skylt að taka það fram, að hann var mjög vandvirkur í rannsókn- um sínum; mæling hans á rústunum var nákvæmari en jeg hafði getað mælt þær, en þó skakkaði þar mjög litlu. Er jeg lionuni þakklátur fyrir not þau, er jeg liafði af rannsóknum hans, infnum rannsóknum til stuðnings. Br. J.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.