Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Page 24
tunnur. Þó ekki væri annað, flnnst mjer steinsleifin ein nægileg
sönnun þess að svo hafi verið. Að skyrið hafi verið gjört upp i
gröfinni finnst mjer mega ráða af því, að hvergi fannst neitt trjá-
kyns í gröfinni annað en staurarnir og borðin ofan yfir henni, og
svo ekki hvað sízt þetta volduga lokræsi, sem haft hefir verið til
þess að hleypa vatninu út, þegar gröfin hefir verið hreinsuð um frá-
færurnar. Að endingu skal jeg geta þess, að i hitt eð fyrra fannst
eldstó og eldhúss gaflhlað á líkri dýpt og yfirborð grafarinnar, og
voru þar einnig viðarkol og aska, sem bar vott ura bruna, en at
því eldstó þessi iiggur c. 20 áln. (rá gröfinni, er óhugsandi að eld-
hús þetta hafi staðið í sambandi við búr þetta, svo annaðhvort er,
að þau eru sitt frá hvorum tíma og bærinn brunnið tvisvar, eða
það sem sennilegra er, að búrið hafi verið útibúr, sem matur var
geymdur i, þvi það var aigengt i fornöld.
p. t. Reykjavík, í ágúst 1896.
Jón Jónsson.