Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Page 27
27
neðan npp til miðs, en svo voru að norðanverðu rimagrindur upp
undir bita, en að sunnarverðu tók prjedikunarstóllinn það rúm af,
nema bil nokkurt var á milli lians og kórstafsins, og i þvi gegn-
skorin hríslumynd. Fyrir ofan bitann vfir kórdyrununi var þil-
spjald, er náði upp í sperruna báðum megin. Það var rnálað með
myndum á hvora hlið. Á hliðinni sem fram vissi var Jósep og
María, Sírneon og Anna, og hafði Simeon barnið Jesú á örmum sjer
Á þeirri hlið sem inn í kórinn vissi var hinn upprisni Kristur að
blessa postulana á fjallinu hjá Betanía, en Jerúsalem sást álengdar.
í kórnurn voru fastir bekkir báðum megin I kring frá dyrunum til
altaris, en lausabekkir innan stoða. Altarið var útskorið á hurð og
göflum. Á þvt stóð ljósastjaki af kopar með 2 hliðargreinum, gerð-
ur fyrir 3 Ijós. Upp frá altarinu var fyrst »brík«, sem á voru skrif-
uð innsetningarorðin, en útskurður til beggja enda, og riáði hann
út fvrir altarið. Ofaná bríkinni var falleg altaristafla, gefin kirkj-
unni af frú Sigríði ekkju Jóns biskups Vídalíns 1728, og er sú tafla
enn í kirkjunni, ásamt útskornu stykki sem var, og er, ofaná henni.
Ekkert loft var i kirkjunni og engin livelfing; sá allstaðar sperrurn-
ar og súðina, sern var á öllu lisi hennar frá niæni ofan á stutt-
sperrutær. Birtu fjekk kirkjan frá 6 gluggum. Langstærstir voru
2 sexrúðna gluggar á kórgafli, sinn hvorum megin altaris fyrir neð-
an þilbitann. Þá var 4 rúðnagluggi á þekjunni yflr prjedikunar-
stólnum og voru þær rúður talsvert miuni. Þá voru 3 einnar rúðu
gluggar á framþili: sinn hvorum megin dyra, hærra en þær; og
var slærð þeirra ekki fjærri rúðustærðinni I kórgluggunum; hinn
þriðji var uppi yflr kirkjudyrunum, hátt fyrir ofan þilbita, og var
sá minnstur. Var því birta heldur dauf í framkirkjuiini þá er aft
ur voru dyrnar. Kirkjan var, eins og flestar kirkjur þá, með toif-
veggjum og torfþaki, en þil voru á göflum; þó náði kórþilið ekki
nema niður fyrir gluggana, þá tók við torfþrep. Enframan á var þil
niður úr gegn. Þilin voru þreföld. Kirkjudyrnar voru fremur víð-
ar, en ekki háar nieð »strikuðum« dyra.-döfum og boga yfir. Var
lnirðin bogadregin ofan. Hún var tvöföld, því framan á hana var
neglt »tíglaverk«, eða strikuð stykki, sem lágu í ferhyrningum, hverj
um utan yfir öðruin. Miðtiglar voru tveir, annar ofarlega, hinn
neðantil á miðri hurð. I hann var rekinn kengur sá, sein hurðar-
hringurinn var festur i; hann var úr kopar, stór og digur, en þó
járn þar er í kengnum Ijek. Kengurinn var rekinn inn á milli
tveggja upphleyptra «snarhandar«.stafa: B. S. Það var fangamark
Brynjólfs Sigurðssonar sýslumanns í Hjálmhoiti, er kirkjuna ljet
bvggja 1760—70; en smiðurinn var Ámundi »snikkari« Jónsson, og
og er útskurðurinn og málverkið eptir hann. í fyrstu mun kyrkjan
4*