Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Síða 43

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Síða 43
43 Gamall stóll. (Nr. 443). Hann er mestallur úr birki, nema fjalir í setunni og botninum úr greni, og mjög útskorinn. Fæturnir eru telgdir i liking við brugð- inn starkong; að framanverðu er neðst útskorin fjöl með eins konar brugðnUjgegnskornu hnútaverki með laufum, í rómönskum stíl, með snúning fyrir ofan; þessi íjöl er laus og negld með trénöglum á slétta fjöl, sem greypt er í báða fæturna, og vantar þó nokkuð við annan endann og hefir þar að líkindum verið önnur fjöl skorin og fest á sljettu fjölina með sama hætti; en þar fyrir otan er önnur fjöl og á hana skorin röð af hringum, sem ganga hver í annan; þar innan ( er skorið með fábrotnu höfðakitri: ÍtUD IhS ChS DROTTINN. Á stólbrikuntim er og hnútaverk í sama stil og öðru megin stafirnir IhS, en hinu megin ChS. Á neðstu þverfjölina í bakinu, þá sem næst er setunni, er skorinn brugðinn strengur og þar fyrir ofan 15 telgdir pilárar. Þar fyrir ofan koma 3 þverfjaiir, sem feldar eru saman á röndurn og liggja við herðarnar, þegar setið er á stólnum; á neðstu fjölinni er bekkur með útskornum dýrum; þar eru mynduð tvö ferfætt dýr, sem eru að berjast, og liggur annað undir; þau bíta hvort í rófuna á öðru; þar næst er fhigdreki að berjast við ljón; á miðri fjölinni er IhS innan í hring; þar næst er hestur, er stendur við tré, og slð- ast maður með snaghyrnda öxi að berjast við ferfætt kvikindi; alt meira og minna gegnskoríð. Fyrir ofan þetta verk korna tveir snúningar á röndum fjalanna og þar fyrir ofan laufaviður gegn- skorinn. í efstu þverfjölina ofanverða eru reknir inn 19 trénaglar hausstórir og skornir í líking við valhnút, en framan á fjölina er skorin ein lína með sams konar höfðaletri, sem áður er nefnt, og þó miklu smærra: ION ION SON A MIG SEIGER STOLLIN GUD IESUS ChS SE MED OS Á aptari stólbrúðurnar að framan er skorinn laufaviður 1 róm- önskum stil og ofarlega á þeim öllum fjórum eru telgdir eins konar brugðnir valhnútar, en þar ofan á fjórir riddarar; einn þeirra, sá sem verið hefir á stólbrúðunni hægra megin, þegar setið er á stóln- um, er fyrir löngu brotinn af fyrir neðan mitti og týndur, en mun hafa verið heill, er safnið eignaðist stólinn; riða þeir við beizli með snoppuól og í söðlum með háum kerlingum að framan, kringlóttum að ofan, eins og á gömlum kvensöðlum. Riddararnir hafa spánsk- an búning, sem tíðkaðist mjög hér á landi á 16. öld; tveir þeirra, þeir er til vjnstri handar eru, þá er setið er á stólnum, hafa kollhúfu 6*

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.