Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Árgangur

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Blaðsíða 44

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1897, Blaðsíða 44
44 A Viöfði, með litlu niðurbroti A hnnkkanum, með einföldu bandi yfir um, en einn virðist að bera lAgan hatt á höfði með litlu barði og snúnu skrautbandi um, stutta treyju slétta með standkraga eða held- ur linkraga hálfuppstandandi. Ermarnar A þeim öllum eru sléttar og uppvíðar; treyjurnar slá sér allar út fyrir neðan mittið og eru sléttar A tveimur, en með fellingum fyrir neðan mittið A tveimur; stuttvíðar spánskar brækur með útskornnrn 4—5 geirum A lærun- um A tveimur, en á öðrum tveimur með 6—7 borðum niður eptir lærunum í stað geiranna. (Sbr. Skýrslu um Forngripasafn íslands, II, 49 og 161 bls.). I stólsetunni er laus fjöl eða lok og botn neðst; má því geyma töluvert i stólnum. Stóllinn er yfir höfuð mjög líkur þeim alþektu Gfrundarstólum, sem nú eru i Þjóðmenjasafninu í Kaupmannahöfn, og þó varla svo gamall sem þeir. Hann var áður f Draflastaðakirkju í Fnjóskadal. A Draflastöðum bjó A ofanverðri 16. öld Jón sonur Jóns kolls Orms- sonar og mun stóllinn vera smíðaður handa honum, en ekki vera upphaflega gerður til þess að vera kirkjustóll; á þetta bendir bæði það, að nafn hins fyrsta eiganda er A hann skorið, og svo hitt, að bakiðf á honum er óvandað og með engum útskurði að aptan, af því að hann hefir átt að standa upp við vegg, en eigi á miðju gólfi. Stóllinn var gefinn safninu 1868 af Tryggva Gunnarssyni, banka- stjóra, er þá bjó á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal.

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.