Alþýðublaðið - 28.02.1960, Blaðsíða 2
Ötgefandi: Alþýðuhokkurinn. — Framkvæmdastjóri: Ingólfur Kristj ánsson.
— Ritstjórar: Gísli J. Ástþórsson (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fulltrúi
ritstjómar: Sigvaldi Hjálmarsson. — Fréttastjóri: Björgvin Guðmundsson.
— Símar: 14 900 — 14 901 — 14 902 — 14 903. Auglýsingasími 14 906 — Að-
oetur: Alþýðuhúsið. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgata 8—10. —
Áskriftargjald: kr. 35,00 á mánuði.
H. C. HANSEN
í DAG verður gerð í Kaupmannahöfn útför
H. C. Hansen, forsætisráðherra Dana. H. C. Han-
ísen var einn þeirra forystumanna er komnir voru
beint úr röðum verkalýðshreyfingarinnar. Hann
var skósmiðssonur frá Árósum, lærði prentiðn og
valdist snemma til forustu í samtökum iðnnema
og ungra jafnaðarmanna. Þegar á ungra aldri varð
H. C. Hansen náinn samstarfsmaður Hans Hed-
toft í yerkalýðshreyfingunni og átti leið þeirra
eftir að liggja saman um langa tíð í flokki danskra
jafnaðarmanna. Forustuhæfieikar H. C. Hansen
þóttu ótvíræðir og hann varð hægri hönd Hans
Hedtofts. Enda þótt undirstöðumenntunin væri
lítil, tókst H. C. Hansen að afla sér mikillar
sjálfsmenntunar, — meðal annars góðrar þekk-
ingar í tungumálum. Átti það eftir að koma
sér vel, þar eð hann varð að taka við æðstu emb-
ættum þjóðar sinnar, svo sem embætti utanríkis-
ráðherra og síðan embætti forsætisráðherra eftir
.fráfall Hans Hedtofts. Varð H. C. Hansen mjög
ástsæll leiðtogi með þjóð sinni og engum dylst, að
við lát hans hefur danska þjóðin og hin nlþjóð-
ÍLega jafnaðármannáhreyfing misst mikinn for-
foringja. Kynni íslenzkra jafnaðarmanna af H. C.
Hansen voru mjög ánægjuleg og munu þeir ætíð
minnast hans með þakklæti og virðingu.
BÚVÖRUVERÐIÐ
EFTIR mikið stríð hefur fullt samkomulag nú
náðst í hinni nýju sex-manna-nefnd, er fjallar um
verðlagsmál landbúnaðarins. Ber vissulega að
fagna samkomulaginu, enda er lausnin slík, að
báðir aðilar geta vel við unað. Aðalatriðið fyrir
neytendur er það, að tekizt hefur að halda útsölu-
verði mjólkur óbreyttu og lækka, verðið á kjöti
nokkuð án aukinna niðurgreiðslna úr ríkissjóði.
Mega þetta teljast góð málalok fyrir neytendur.
Verður ekki annað sagt, en að hin nýja sex-manna
nefnd hafi farið vel af stað. Var útlitið í þessum
vissulega ekki gott sl. haust, er upp úr viðræðum
slitnaði og má samkomulag nú teljast kraftaverk
eftir allt það, sem á undan er gengið.
IHaill I..II
Ræðir breytingarnar á
almannatryggingunum
FUNÐUR verður haldinn í fulltrúaráði Alþýðuflokksins í
IReykjavík nk. þriðjudag 1. marz kl. 8.30 í Alþýðuhúsinu við
Hverfisgötu.
Fundarefni: Breytingarnar á almannatryggingunum. Frum
tmælandi: Sverrir Þorbjörnsson, forstjóri Tryggingastofnunar
iríkisins.
Fulltrúar eru hvattir til að fjölmenna stundvíslega.
2 28.' febr, 1960 — AÍþyk'í/tíá&ð
Um 7000 dýr
unnin 1958
Sveinn Einarsson, veiðistjóri,
hefur tekið saman skýrslu um
refa- og minkadráp árið 1958.
Samkvæmt þeim skýrslum,
sem honum hafa borizt, — 15
hæjar- og sveitarfélög eiga
eftir að senda skýrslu, — hafa
3444 refir og 3554 minkar ver-
ið felldir á þessu ári.
Ref!rnir, sem unnir voru,
skiptast þannig: Greni 516 dýr,
fullorðin grendýr 706, yrðling-
ar 1855, dýr utan gr.enja 782 og
fundin dauð af eitri 102. Kostn
aðurinn við refadrápið árið
1958 nam saiptals 2.171.567,44
kr. og 630,54 kr. á ref til jafn-
aðar. Kostnaðurinn við að
drepa 3554 minka nam 877.813,
69 kr. eða 248,39 kr. á mink
að meðaltali.
Mest var drep'ð af ref í
Þingeyjarsýslum eða 536. I
ísafjarðarsýslum voru 479 ref-
ir drepnir. Af mink var mestu
útrýmt í Gullbr. og Kjósarsýsl
um e.ða 654 og í Árnessýslu
581. Mikið var einnig fellt á
Vesturlandi. Hins vegar var
enginn minkur drepinn á ár-
inu í Múlasýslum, Austur-
Skaftafellssýslu og ísafjarðar-
sýslum. Refir voru alls staðar
fundnir og felldir.
Sveinn Einarsson segir, að
það sé greinilegt að minka-
stofninn eyðist, enda t. d. færri
minkar unnir árið 1958 en
1957, þó að meiru væri til þess
kostað. Sérstaklega hafa menn
verið vel á verði gagnvart
minknum í námunda við þau
héruð, þar sem nytjafiska og
fugla er að finna í stærstum
stíl.
skrifstofu
RITHÖFUNDASAMBAND
íslands hefur opnað skrifstofu
í Hafnarstræti 16. Sambandið
hefur ráðið Kristinn Ó. Guð-
mundsson héraðsdómslögmann
til að veita skrifstofunni for-
stöðu.
Með stofnun þessarar rétt-
hafaskrifstofu gerir stjórn
sambands'ns sér vonir um að
nálgast það mark 1 réttinda-
málum rithöfunda, sem fvrir
þeim vakti, er þeir tengdu rit-
höfundafélögin saman með
stofnun sambandsins.
Tilgangur skrifstofunnar er
fyrst og fremst sá, að gæta
hagsmuna íslenzkra rithöf-
FUNDUR verður haldinn í
Félagi ungra jafnaðármanna
í Reykjavík mánudagskvöldið
29. febrúar. Verður hann hald
inn í Iðnó (uppi) og hefst kl.
8,30.
Frummælandi verður Jón
Þorsteinsson alþingismaður,
lögfræðingur Alþýðusam-
bands íslands, en umræðuefn1-
ið er Skipulagsmál verkalýðs-
samtakanna.
FUJ-félagar eru hvattir til
að sækja fundinn vel og stund
víslega og taka með sér gesti.
unda og eigenda ritréttar með
því að sjá um, að höfundalög-
unum sé framfylgt. Skrifstqfan
mun í þessum tilgangi annast
allar samningsgerðir fyrir um-
bjóðendur sína um afnotarétt
verndaðra ritverka, endurprent
anir, opinberan flutning, vél-
ræna upptöku o. f 1., annast
innheimtu fyrir slík afnot,
málshöfðanir fyrir brot á höf-
undalögum og alla aðra fyrir-
greiðslu, er við verður komið.
Jafnframt mun hún stuðla að
bví eftir megni, að erlendir rit-
höfundar og e'gendur ritréttar
r.jóti fullrar lagaverndar hér-
lendis.
Rithöfundar opna
Hannes
ýý Afstaðan er þannig.
ýý Leiðar stéttir og þeir
sem bíða.
ýý Reynslan ein getur
skorið úr.
Launþegarnir geta
reiknað sjálfir.
í DAG er viðhorf almennings
þannig: Aðalatriði hinnar nýju
efnahagsmálaskipunar eru orðin
að lögum. Enn er eftir að af-
greiða tryggingamálin á alþingi,
en það verður gert næstu daga.
Almenningur getur ekki séð,
hvort þær ráðstafanir, sem þeg-
ar hafa verið gerðar næstu daga,
beri tilætlaðan árangur, að
koma á nýrri og öruggari skipan
á allt okkar efnahagskerfi.
HANN GETUR EKKI SÉÐ á
þessu stigi, hvort hætt verður að
lifa lúxuslífi á lánum. Hann get-
ur ekki gert sér grein fyrir því,
hvort vaxtahækkun, gengislækk
un, afnám uppbóta muni verða
til þess að minnka atvinnuna svo
mjög að leiða muni til atvinnu-
h o r nin u
leysis í einstökum greinum.
Hann getur heldur ekki séð
hvort allar þessar ráðstafanir
muni leiða til skerðingar að mun
á kjörum sínum.
ÞEGAR ÞANNIG er ástatt
er ekki nema von að mjög kenni
ótta við allar þessar breytingar.
Enginn vill láta skerða kjör sín,
hvorki verkamaðurinn með lág-
markslaunin né lúxuspésinn,
sem gramsað hefur í uppbóta-
kerfinu og svikið á báða bóga,
allir vilja verja sinn hag. Okkur 1
tekur ekki sárt til lúxuspésanna.
Atferli þeirra hefur valdið mein
semd í þjóðfélaginu — og atferli
þeirra er nauðsynlegt að stöðva.
Hlutverkið er aðeins tvennt: að
koma á öruggari skipan í efna-
hags- og atvinnumálunum, — og
að vernda þá, sem verst eru sett-
ir.
ÞAÐ KENNIR ÓTTA hjá öll-
um, jafnvel þó að allir hinir
sömu viðurkennj að nauðsynlegt
hafi verið að snúa við. Þessum
ótta fylgir biðlund. Allir eða
nær allir segja: Við verðum að
bíða og sjá hverju fram fer. Það
væri glæpsamlegt að ráðast gegn
þessum ráðstöfunum á þessu
stigi. En ef þær reynast gagns-
lausar eða gagnslitlar fyrir heild
arafkomu þjóðarinnar, en rýra
samt sem áður að miklum mun
kjör alþýðu, þá er stjórnarstefn-
an gjaldþrota.
ÞAÐ ER MJÖG athyglisvert
að uppbótamennirnir hafa verið
reiðir. Þeir finna það, að það er
að fara fram hreingerning. Heild
salar kváðu og vera æfareiðir og
einnig smákaupmenn. — Upp-
bæturnar hafa boðið heim marg
víslegri spillingu — og verzlun-
arstéttinni hefur fjölgað fram
yfir það, sem nauðsynlegt er,
hver gorkúlan hefur risið upp
af annarri. Er nokkur furða þó
að þessir séu fyrst og fremst
reiðir? )
ÞESSAR STÉTTIR ráða ekki
úrsliunum. Launþegarnir ráða
þeim. Þegar ráðstafanirnar eru
komnar til framkvæmda er rétt
fyrir launþega sjálfa að reikna
hver fyrir sig. Þá ber þeim að
færa sér til útgjalda hækkun á
vöruverði, en draga frá útgjöld-
unum það sem heimili þeirra fá
fyrir fjölskyldubætur og með af
námi tekjuskatts. Með því að
reikna þannig fá þeir rétta út-
komu. Fjölskyldubæturnar eru
mjög auknar. Barnafjölskyldur,
sem eiga tvö börn, fá nú kr.
5200,00, en fengu ekkert áður.
Ef fyrirvinna hefur haft br.
3000,00 í tekjuskatt — og hann
fellur nú niður fær hann samtala
kr. 8200,00 til frádráttar á tap-
inu á hækkuðu vöruverði. !
Hannes á horninu. J