Alþýðublaðið - 28.02.1960, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 28.02.1960, Blaðsíða 14
Eggetf er fús Framhald af 5. síðu. nokkurn tíma hefur komið til íslands. Ár aldanna, ár eilífð- arinnar, ár íslands, hið eina sem kemur og aldrei fer. Árið, sem komandi kynslóðir, svo lengi sem nokkurt líf er á þessu landi, aldrei gleyma, og alltaf minnast, meðan hjarta nokkurs íslendings slær. Þetta ár, sem verður blessað og heilagt og eilíft, svo lengi sem Iandið byggist. Ár örlaganna, sem kemur með réttlætið og frelsið til íslands. Árið eina <t Ljóðið var lesið upp í út- varpi, birt í dagblöðum (í höf uðborginni, sem hefur 60 bús und íbúa, eru átta dagblöð gef'n út) og fest upp á hús- veggi. Óðurinn er boðskapur, stefnuyfirlýsing og gunnfáni. Nafn Eggerts Stefánssonar er nefnt í sömu andrá og nafn Mamilis, Theódórs Körners og hundrað annarra ættjarð- arvina. Óðurinn vakti ekki aðeins almenna athygli og á- nægju heldur er líka sá gíf- urlegi sigur, sem „anddanskl“ flokkurinn vann við þjóðar- atkvæðagreiðsluna, mest hon- um að þakka að ísland lýsti yfir sjálfstæði sínu. Seinna samþykkti Alþingi með sam- hljóða atkvæðum að veita skáldinu styrk ævilangt sem áþreifanlegan vott um þakk- læti ættjarðarinnar. LITLU VEITINGAHÚSIN UPPI Á FJALLA- HÁLSUNUM. Af 56 þingmönnum eru nú í dag 20 sjálfstæðismenn, 17 framsóknarmenn og svo eiga kommúnistar líka nokkur þingsæti. íslendingar eru samt efnahagslega vel stæðir. Vinnukona vinnur t. d. fyrir 1000 lírum á klukkustund og í Reykjavík á fimmti hver maður bíl. Að tveimur árum íiðnum rennur út kjörtímabil núverandi forseta lýðveldis- ins. Meðal frambjóðenda verð ur fjármálaráðherrann, tengdasonur Ásgeir Ásgeirs- sonar, íslenzki sendiherrann í Washington og skáldið Egg- ___1 ,SK«PAUrt.tR» KIMSINS M.s Skjaidbrefð vestur um land til ísafjarðar 3. marz næstk. Tekið á móti flutningi á mánudag og árdegi3 á þriðju- dag til Ólafsvíkur Grundarfj arðar Stykkihólms Flateyjar Patreksfjarðar Tálknafjarðar Bíldudals Þingeyrar Flateyrar Súgandafjarðar og ísafjarðar. Farseðlar seldir á miðviku- dag. ert Stefánsson. Sá síðast- nefndi gerir sér ekki vonir um að vinna og hann æskir þess ekki beinlínis, af því að þessi virðingarstaða mundi neyða hann til að segja skilið við þetta förulíf, sem hann hefur alltaf lifað, leggja niður þann ljúfa sið að dvelja meirihluta ársins á Ítalíu og snúa baki við fögru fjallahálsunum í grennd við Vicenza, þar sem er að finna lítil veitingahús, sem styrkja vináttubönd ís- lands og Ítalíu á hverjum föstudegi með því að matbúa á vísenzka vísu þorskinn, sem ve'ddur er í grennd við Rvík. Skáldið segist taka við for- setaembættinu aðeins með því skilyrði, að hann fái yfir- gnæfandi meirihluta greiddra atkvæða. .,Eg vil vera samein ingartákn fyrir ættjörð mína en ekki baráttutákn“. Dýrð- leg orð, gullvæg hugsun. 'Var það ekki Plato, sem vildi gera skáld útlæg úr sínu fullkomna lýðveldi? H. C. Hansen Framhald af 4. síðu. jafnaðarmanna árið 1929, furðar mig á því hversu margir þeirra eru horfnir af sjónarsviðinu. Af ungu mönnunum, sem síðar áttu eftir að verða forystumenn flokka sinna og leiðtogar þjóða sinna, standa aðeins ör- fáir eftir: Hedtoft er dáinn, H. C. er dáinn. Richard Lind- ström frá Svíþjóð er horfinn. Hollendingurinn Koos Vorr- inck fórst í flugslysi eða af afleiðingum þess. Þannig gæti ég lengi talið. iÉg man aðeins eftir tvelmur: Þjóðverjanum Eric Ollenhauer og Norðmann inum Ei'nari Gerhardsen, sem lifa og starfa. Sveitin frá 1920 er orðin þunnskipuð. Mér þykir skarð fyrir skildi. Allir þessir leið- togar höfðu allt það bezta til að bera, sem verkalýðshreyf- ingin gaf sonum alþýðunnar á baráttuárunum upp úr fyrri heimsstyrjöld. Margar hug- sjónir þeirra hafa að vísu rætzt, en vonbrigðin hafa þó verið meiri. Ymislegt af því, sem þessi kynslóð trúði á hef- ur aðeins reynzt draumsjón ein. Og þó urðu vonbrigðin sárust í síðustu heimsstyrj- öld. Þá féllst mörgum jafnvel hugur. Hinn látni skósmiðssonur. frá Árósum sem varð forvstu maður stærstu félagssamtaka Danmerkur og leiðtogi þjóðar sinnar, þyggði allt á arfinum, sem faðir hans og móðir og stéttarbræður og systur þeirra færðu honum að gjöf. Annar- ar grundvallarmenntunar naut hann ekki. Hann ávaxt- aði þennan arf og vanmaf öllu því mikla andlega og líkam- lega þreki, sem hann hafði til að bera, fyrir þær hugsjónir, sem alþýðan skóp honum. — Hann er látinn ungur að ár- um. Það er skarð fyrir skildi meðal jafnaðarmanna og mannvina um allan heim. VSV |_4 28. febr. 1960 — Alþýðublaðið Veðrið: NA gola eða kaldi; Iéttskýjað. Slysavarðstofan er opin all an sólarhringinn. Læknavörð ur LR fyrri vitjanir er á sama stað frá kl. 18—8. Sími 15030. o--------------------—o 1 Sterlingspund 106 ísl. kr. 1 Bandar.dollar 38,70 - - 100 danskarkr. 550,50 - - o----------------------o Bazar Borgfirðingafélagsins verður 2. marz. Þær konur, sem enn eiga eftir að skila og gefa muni á bazarinn, eru vinsamlega beðnar að koma þeim til Láru Jóhanns dóttur, Sjafnargötu 8, Val- gerðar Knudsen, Mávahlíð 3 eða Guðnýjar Þórðardótt- ur, Suðurgötu 39. -o- LAUSN HEILABRJÓTS: Tappinn kostar 25 aura. Flugfélag íslands. Millilandaflug: l|F5íf Hrímfaxi er ..... væntanlegur til Rvíkur kL 15-40 f í dag frá Ham- &. * :í borg, Khöfn og ÍÍJÍ^SSÍÍSfer til Glasgow Khafnar kl. •ífeXiS-SSSSííí 8,30 í fyrramál- ið. Innanlandsflug: 1 dag er áætlað að fljúga til Akureyr- ar og Vestmannaeyja. Á morg un er áætlað að fljúga til Ak- ureyrar, Hornafjarðar og Vestmannaeyja. Loftleiðir. Hekla er væntanleg kl. 19 frá New York. Fer til Osló, Gautaborgar, Khafnar og Hamborgar kl. 8.45. Edda er væntanleg kl. 19 frá Amster- dam og Glasgow. Fer til New York kl. 20.30. Skipadeild SIS. Hvassafell fer í dag frá Klaipeda til Gdynia. Arn- arfell kemur í dag til Keflavík- ur. Jökulfell fór 26. þ. m. frá Sas van Gent á- leiðis til Húnaflóahafna.'Dís- arfell fór 26. þ. m. frá Kefla- vík áleiðis til Rostock. Litla- fell er væntanlegt til Rvíkur í dag. Helgafell kemur til Rvíkur í dag. Hamrafell fór frá Gibraltar 24. þ. m. áleiðis til Reykjavíkur. Jöklar. Drangajökull var við Fær- eyjar í fyrradag á leið til Ventspils og Aabo. Langjök- ull er í Ventspils. Vatnajök- ull fór frá Aabo í fyrrakvöld á leið hingað til lands. Eimskip. Dettifoss fór frá Keflavík í gærkvöldi til Aberdeen, Imm ingham, Tönsberg, Lysekil og Rostock. Fjallfoss fór frá Ventspils 26/2 til Hamborg- York 19/2, væntánlegur til ar. Goðafoss fór frá New Rvíkur í kvöld. Gullfoss fór frá Akureyri í gærmorgun til Hamborgar, Rostock og K,- hafnar. Lagarfoss fór frá Rvík 20/2 til New York. Reykjafoss fór frá Fáskrúðs- firði í gærkvöldi til Dublin og Rottredam. Selfoss fór frá Gdynia 24/2, væntanlegur til Rvíkur um kl. 14 í dag. Trölla foss fór frá Hull 25/2 til R.- víkur. Tungufoss fór frá Ro- stock 26/2 til Gautaborgar og Reykjavíkur. — Messur: — Dómkirkjan. Messa kl. 11. Séra Óskar J. Þorláksson (altarisganga). Barnasamkoma í Tjarnarbíó kl. 11. Séra Jón Auðuns. Messa kl. 5. Séra Jón Auðuns. Tónlistarkynning verður í Háskólanum í das sunnudag, kl. 5. Flutt verða verk eftir Chopin af hljóm- plötutækjum skólans. Dr. AI- eksander Szulc flytur inn- gangsorð (á íslenzku). Öllum er heimill ókeypis aðgangur. Þriðjudagskvöld nk. kl. 9 flytur Guðrún Pálsdóttir erindi að Þingholts stræti 27. Erindið fjallar um hin víðtækustu vandamál samtíðarinnar. — Allir vel- komnir. -o- Æskulýðsvika KFUM og K, Hafnarfirði, hefst 28. febr. Margir ræðumenn, mikill söngur og hljóöfærasláttur. Kórsöngur, dúettar og ein- söngur. Fyrsta samkoman er í kvöld kl. 8.30 og á hverju kvöldi þessa viku á sama tírna. í kvöld talar cand. the- ol. Ingólfur Guðmndsson. Kvennakór KFUK, Rvík, sýngur. Allir velkomnir. -o- Kvenfélag Háteigssóknar hefur skemmtikvöld í borð sal Sjómannaskólans þriðju- daginn 1. marz kl. 8.30 stund- víslega. Rannveig Tómasdótt ir flytur ferðaþætti og sýnir litskuggamyndir. Spiluð verð ur félagsvist. Kaffidrykkja. Félagskonur mega taka með sér gesti. -o- Kvenfélag Kópavogs. Getum enn bætt við nokkr um konum á tágavinnunám- skeiðið, sem hefst föstudag- inn 4. marz í Kársnesskóla. Utanfélagskonum heimil þátt taka. Upplýsingar í síma 10239, 23704 og 19528. -o- Dagskrá alþingis. Mánudag 29. febr.: Samein að alþingi kl. 1%: Rannsókn kjörbréfs. Efrideild að lokn- um fundi í sameinuðu þingi: 1. Meðferð drykkjumanna, frv. 2. Dýralæknar, frv. Neðri deild að loknum fundi í sam- einuðu þingi: 1. Bráðabirgða- fjárgreiðslur, frv. 2. Einka- sala ríkisins á tóbaki, frv. 3. Lækningaleyfi, frv. 4. Aauka útsvör ríkisstofnana, frv. Samúðarspjöld í Minningarsjóð Árna sál. Jónssonar kaupmanns, Lauga vegi 37, eru seld á eftirtöld- um stöðum: Verzl. Mælifelli, Austurstræti 4; Verzl. Faco, Laugavegi 37; Ingibjörgu Steingrímsdóttur, Vesturgötu 46 A. Sjóður þessi er eign Fríkirkjusafnaðarins í Rvík. -o- Barnaspítalasjóði Hringsins hafa borizt minningargjaf- ir um Stefán Sigurð Guðjóns- son: Frá afa hans og ömmu, Guðrúnu Jónsdóttur og Sig- valda Þorkelssyni, kr. 5000. Frá foreldrum hans, Guðrúnu Stefánsdóttur og Guðjóni Hólm, kr. 5000. Kvenfélagið Hringurinn þakkar hjartan- lega hinar rausnarlegu gjafir. Mánudagur: 13.15 Búnaðarþáttur. 18.30 Tónlistartími barnanna. 20.30 Hljómsveit Ríkisútvarpsins leikur. 21 Landhelgi Skot- lands — erindi (Júlíus Hav- steen fyrrum sýslumaður). 21.25 Tónleikar. 21.40 Um daginn og veginn (Þór Vil- hjálmsson lögfr.). 22.10 Pass- íusálmur (12). 22.20 íslenkt mál (Ásgeir Bl. Magnússon cand. mag.). 22.35 Kammer- tónleikar. Myndin sýnir eina af hinum stóru Avro Vulcans B 2 flug- vélum brezka flughersins hefja sig til flugs. Flugvélar þessar eru mjög aflmiklar. I>ær komast í 15 km hæð með 5 manna áhöfn. -0- Kvenfélag Laugarnessóknar. Fundur verður þriðjudag- inn 1. marz á venjulegum stað og tíma. Lilja Björnsdótt ir segir ferðasögu, kaffi- drykkja og fleira. Munið spila kvöldið 3. marz. -o- 9.35 Morguntón- leikar. 11 Messa í Hallgrímsk. 13.15 Erindi: Um útvarp í Bandaríkjunum (Jón Magnússon fréttastjóri). 14 Miðdegistónleik ar. 15.30 Kaffi- tíminn. 16.30 Endurtekið efni: a) „Ekið fyrir stapann.“ b) Frá píanótón- leikum Guðrún- ar Kristinsd. 17.30 Barnatími. 18.30 Hljómplötusafnið. 20.20 Chopin-kvöld. 21 Spurt og spjallað í útvarpssal. 22.05 Danslög.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.