Alþýðublaðið - 28.02.1960, Qupperneq 3
Slldatgöngur hádar
hitabreytingum
VAEÐSKIPIÐ Ægir hefur
verið við síldarrannsóknir að
undanförnu út af suður- og suð-
austurströndinni. Ægir kom úr
leiðangri sínum hinn 26. febr.
eftir 11 daga útivist.
Slæm veður komu í veg fyr-
ir ,að unnt væri að rannsaka
suðurmörk austur-íslands-
straumsins út af sunnanverð-
um Austfjörðum, eins og ætl-
IMMMMMMttMMMMtMUMM
IStjórnarkjör ii
í IÐJU |
f GÆR hófst stjórnar- ;!
kosning í Iðju, félagi verk ! j
smiðjufólks, Kosningin j!
heldur áfram í dag og er !>
kosið á skrifstofu félagsins <!
!að Þórsgötu 1. !j
Kosningin hefst kl. 10 ;[
árdegis og stendur til kl. j!
10 í kvöld. Listi andstæð- j;
inga kommúnsta er B- !>
LISTIN'N. Kosningaskrif- |
stofa B-listans er í VR- ;!
húsinu í Vonarstræti, 3. !j
hæð. Símar 23208 og j!
23226. |
KJÓSIÐ jj
B-LISTANN Jj
WWMWMWtWWWMWWWM
að hafði verið. Hins vegar tókst
að rannsaka útbreiðslu og hegð
un síldarinnar við suðurströnd-
ina miklu nánar en áður. Á
vissum svæðum frá Vest-
mannaeyjum að Ingólfshöfða
fannst allmikið síldarmagn.
Síldin var í mjög misstórum
torfum og á nóttunni var hún
oftast dreifðari en búist hafði
verið við á bessum árstíma.
Togarinn Neptúnus reyndi
síldveiðar eftir tilvísun Ægis
og gengu þær veiðar vel. Ör-
uggt má telja, að síldarmagn
það, sem Ægir hefur að und-
anförnu rannsakað, sé fyllilega
sambærilegt við það síldar-
magn, sem er við Reykjanes
fyrri hluta vetrar. Líklegt er,
að unnt verði að stunda síld-
veiðar á þessum slóðum í all-
miklum mæli, þegar fiski-
menn hafa öðlast reynslu og
náð leikni í meðferð síldarflot-
vörpu.
'S'íldin virtist vera á allmik-
illi hreyfingu og var mislangt
undan landi. Rannsóknirnar
leiddu í ljós, að síldargöngurn-
ar voru háðar hitabreytingum
sjávarins, sem sums staðar virt
ust mjög hraðar.
Leiðangursstjóri á Ægi var
Jakob Jakobsson, fiskifræð-
ingur.
Föndurnámskeið
ungtempl. vel sótt
UM þessar mundir er stadd-
ur hér á landi sænskur æsku-
lýðsleiðtogi. Maður þessi, sem
heitir Lars Oldén, kom hingað
á vegum íslenzkra ungtempl-
ara.
Lars Oldén.
Lars er yfirmaður tómstunda
málefna sænska ungtemplara-
sambandsins. Hingað er hann
kominn til að leiðbeina og
ræða við stjórnendur hinna
ýmsu deilda ungtemplara-
stúkna, félaga og tómstunda-
heimila.
Lars hefur heimsótt ung-
templaradeildirnar í Reykja-
vík, Hafnarfirði og í Borgar-
nesi. Við verk sitt hefur hann
notað kvikmyndir og litskugga
myndir. Hann hefur flutt er-
indi til skýringar á myndum
sínum, og með þessu hefur
hann miðlað miklum fróðleik
í þessu leiðbeiningarstarfi sínu.
Það er mikill fengur fyrir
íslenzku ungtemplarasamtökin
að hafa fengið þennan mann
hingað, því óvíða í heiminum
eru æskulýðssamtökin eins
sterk og í Svíþjóð. Svíar hafa
átt við erfitt vandamál að
stríða, en það er drykkjuskap-
ur unglinga. Góður árangur
hefur náðst í baráttunni gegn
því böli, og þar hafa sænsk
æskulýðssamtök átt stærstan
blut í.
í Svíþjóð styrkir ríkið sín
æskulýðssamtök. Það er að
segja að ríkið sér um peninga-
hliðina, en samtökin um
starfskrafta.
Um þessar mundir standa
yfir fþndurnámskeið hjá ís-
lenzkum ungtemplurum. Nám-
skeið þessi eru mjög vel sótt,
og eru um 90 manns á nám-
skeiði því er nú stendur yfir.
Margvíslegri starfsemi er hald-
ið uppi á vegum félagsskapar-
ins, en það sem háir starfsem-
inni er peningaskortur.
argir frægir
koma bar fram
FÖSTUDAGINN 4. marz n.k. I
fara fram í Austurbæjarbíói
hljómleikar á vegum Knatt-
spyrnufélagsins Þróttar. Hljóm
leikarnir hefjast kl. 11,15.
Á hljómleikunum koma
fram söngvarar frá Danmörku,
það eru þeir Jan og Kjeld, sem
eru þekktir í heimalandi sínu
fyrir góðan og skemmtilegan
söng og banjóleik. Piltarnir
eru aðeins 12 og 14 ára gamlir.
Þeir hafa komið fram í sjón-
varpi, útvarpi og kvikmynd-
um. Þeir hafa sungið inn á
nokkrar hljómplötur, og hér á
landi munu vera þekktust lög-
in Banjo Boy og Waterloo.
Einnig kemur fram á hljóm-
leikunum Austurríkismaður,
Collo að nafni. Collo þessi leik
ur á ein 17 hljóðfæri, auk þess
sem hann klæðist gerfi ýmissa
manntegunda og þjóðbúning-
um margra þjóða. Collo er eft-
irsóttur skemmtikraftur víða
um heim og má marka það á
því, að reynt hefur verið að fá
i hann hingað til lands í 3 ár,
en aldrei tekist fyrr en nú.
Haukur Morthens mun koma
fram á hljómleikunum og
kynna og syngja nokkur lög.
Haukur er, eins og allir vita,
einn vinsælasti og bezti dægur-
lagasöngvari hér á landi, svo
ekki þarf að kynna hann fyrir
almenningi. Auk Hauks kemur
fram á hljómleikunum hljóm-
sveit Árna Elfar.
Aðeins örfáir hljómleikar
verða hér í Reykjavík.
ÞAR eð væntanlegar eru
breytingar á lögum um tekju-
og eignarskatt hefur ráðuneyt-
ið ákveðið að fresta fyrirfram-
greiðslum upp í þinggjöld yf-
irstandandi árs þannig að nið-
ur falli fyrsti gjalddagi, sem er
1. marz.
Fréttatilkynning frá
f j ármálaráðuneytinu.
Ferðamannaskipti
við Sovétríkin?
TVEIR fulltrúar frá rúss-1
nesku ferðaskrifstofunni In-
tourist eru staddir í heimsókn
hér á landi. Þeir heita Sergey
Nadjarov og Konstantin Shav-
kin. Erindi þeirra hingað er
fyrst og fremst að ræða við ís-
lenzka ráðamenn og forystu-
menn í ferðamálum um hugs-
anlega möguleika á hópferðum
milli íslands og Sovétríkj-
anna.
Rússnesku ferðaskrifstofu-
mennirnir hafa rætt við Þor-
leif Þórðarson, forstjóra Férða-
skrifstofu ríkisins, forystu-
menn íslenzku flugfélaganna.
Gylfa Þ, Gíslason, menntamála
ráðherra, og fleiri aðila. Hafa
þeir allir látið í ljós áhuga sinn
á auknum samskiptum land-
anna á sviði ferðamála. Mun
mál þetta verða vandlega at-
hugað og yfirvegað af viðkom-
andi aðilum og án efa ráðizt í
hópferðir milli landanna, ef
viðunandi samningar nást.
Undanfarin ár hefur ferða-
mönnum til og frá 'Sovétríkj-
unum fjölgað. T. d. heimsóttu
530 þúsund útlendingar frá yf-
ir 90 löndum Sovétríkin árið
1958, en rúmlega 740 þúsund
manns lögðu leið sína frá So-
vétríkjunum til meira en 70
landa. Enn fleiri ferðuðust til
og frá Sovétríkjunum á síðasta
ári.
Þvættingur
kommúnista
um kjörskrá
Trésmiðafél.
Reykjavíkur
TÍMINN er látinn fi'æða les-
endur sína á því í gær að meira
en helmingur félagsmanna í
Trésmiðafélaginu sé utan við
kjörskrána vegna skulda á fé-
lagsgjöldum. Sannleikurinn er
sá, að nú eru á kjörskrá í fé-
laginu 382 fullgildir en 222
skuldugir, en yfir helmingur
þeirra manna skulda aðeins
smáhluta af félagsgjaldinu. En
fyrst kommúnistar hlaupa
þannig undir höggið, og nota
til þess dagblað framsóknar-
manna, er rétt að hressa svo-
lítið upp á minni þeirra.
í kosningum í félaginu
1957, þ. e. þegar kommúnist-
ar töpuðu félaginu, útbjuggu
þeir sjálfir kjörskrána.
Þá litu tölurnar þannig út:
Fullgildir 234, skuldugir 230,
auk þess voru 20 menn með
fullum réttindum í félaginu,
sem hreinlega voru strikaðir út
af kjörskrá.
Þá mætti einnig minna þá á
það að á skuldalistann voru
milli 90—100 meðlimir, sem
aldrei höfðu greitt árgjald alla
stjórnartíð kommúnista í 3 ár,
Þannig var innheimtan í þá
daga, og má segja að ekki hafi
hallast þar á frekar en í öðru
er að félagsmálunum laut.
Trésmiðir!
STJÓRNARKOSNING-
IN í Trésmiðafélagi Rvík-
ur heldur áfram í dag.
Kosið er í skrifstofu fé-
lagsins að Laufsásvegi 8.
Kosningin hefst kl. 10
árdegis og stendur til 12
á hádegi og síðan kl. 1 til
10 síðdegis. Listi landstæð-
inga kommúnista er B-
LISTINN.
Kosningaskrifstofa B-
listans er að Bergstaða-
stræti 61, símar 23515 og
23577. Skoriað er á alla
andstæðinga kommúnista
að fylkja sér um B-LIST-
ANN.
Kosningaskrifstofa B-
listans í Trésmiðafélagi
Reykjavíkur er á Berg-
staðastræti 61, — símar
23515 og 23577.
Stuðningsmenn B-list-
ans eru eindregið hvattir
til þess að koma á skrif-
stofuna og- vinna !að kosn-
ingunni. Þeir stuðnings-
menn, sem geta lánað bíla
eru beðnir að hafa sam-
hand við skrifstofutta.
Trésmiðir, munið X B-
listinn.
i lynmMUWMUMMWiMMMW
Alliýðublaðið — 28. febr.. 1960 3