Víkverji - 31.07.1873, Qupperneq 1
Afgreiðslustofa «Vik-
verja« er í húsi Gísla
skólakennara Magn-
ússonar. Verð blaðs-
ins er 8 mrk um árið,
2 mrk um ársfjórð.
1*g7"Bi iM X "Hi7~ Biil Pi £> Bl 3|
W Maa. w M^MMtMMa
1».
u
Víkverji» kemr út á
hverjum virkum
fimludegi. Borgun
fyrir augly'singar
4/3 fyrir smáletrs-
línu eðr viðlikt rúm.
lstadag innar 15du vikti sumars, ! Vitja guðs, oss og vorri pjóð 1. ár,
íimtud. 31. dag júlímánaðar. \vinnum, á meðan hrœrist blóð. 14. —15. tölublað.
ALþlNGI 1873. IV. 19. þ. m. vár t.ólfti
fundr áttr, og var þá rætt til lykta málið um
mótvarnir gegn bólusótt og kólerusótt, og var
uppástunga nefndarinnar samþykt með at-
kvæðafjölda; þarnæst var feld frá nefnd bæn-
arskrá Seltérninga um að útvega lög um að
Reykvíkingar greiði öll lögskil af jörðum þeim,
er þeir yrkja í hreppnum og vísað forseta-
veginn til stiptsyfirvaldanna bænarskrá Kjós-
armanna um útbýtingu á leigum Thorkillii-
sjóðsins.
Á þrettánda fundi 21. þ. m. var lesið upp
nefndarálit um konunglegl frnmvarp um skipa-
strönd og mál þetta rætt til undirbúnings.
Siðan skýrði forseti frá, að hann hefði skrif-
að póststjórninni um sendingu alþingistíðinda
með póstum, og út úr bréfi þessu væri kom-
in auglýsing frá póstmeistaranum, sem prent-
uð væri 1 blaðinu «Víkverja» nr. 11. Gat
forseti einkum þess, að með þessu móti
sparaði þingið sér allan kostnað fyrir útsend-
ing tíðindanna og innheimtu á andvirði þeirra,
þar eð póststjórnin tæki þetta alt að sér, svo
að eigi þyrfti annað en, að umboðsmaðr
þingsins, Friðrikrbókbindari, afhenti þau ex-
emplör tíðindanna, sem beðið væri um úr
ýmsum héruðum og andvirði borgað fyrir, á
pósthúsinu í Reykjavík, en forseti gat og
þess, að póstmeistarinn gæti eigi sent önnur
cxemplör en þau, sem pöntuð vœri hjá póst-
afgreiðslumönnum og brefhirðingarmönnum.
Á fjórtánda fundi 22. þ. rn. var málið
um skipaströnd rætt til lykta og frumvarp
nefndarinnar samþykt.
Á fimtánda fundi 23. þ. m. voru undir-
búningsumræður í málunum um hlunnindi
fyrir sparisjóði og um refsivald hegningar-
hússtjórnarinnar.
Á segstánda fundi 24. þ. m. voru málin
um hlunnindi fyrir sparisjóði og um refsi-
vald hegningarhússtjórnarinnar rædd til lykta;
í báðum málum voru uppástungur nefndar-
innar samþyktar, 2 breytingaruppástungur, er
nokkrir þingmenn gjörðu í fyrra málinu, voru
þar að auki samþyktar.
Seyljánda fund átti þingið 25. þ. m.,
þá skaut forseti því til konungsfulltrúa að
lengja þingtímann til 2. dags ágústmánaðar,
með því að eigi væri auðið að Ijúka við mál
þau, er þingið hefði til meðferðar, fyrr en
þá, og samþykti konungsfulltrúi þessa leng-
ingu. Að því búnu var nefndarálit í stjórn-
arbótarmálinu lesið upp, og undirbúningsum-
ræða um mál þetta hafin og henni haldið
áfram til lykta.
Á átjánda fundi, 26. þ. m., fóru fram
undirbúningsumræður í málunum um ábyrgð
fyrir eldsvoða í Reykjavíkrkaupstað og um
lagsveiði.
Frá þeim málum, er rædd voru á þess-
um 7 fundum, skal nákvæmar greina það, er
nú segir:
5. J>ær ákvarðanir, er hingað lil hefir
verið beitt, þegar þörfhefir verið á mótvörn-
um gegn bólusóttog kólerusótt, fmnastí lil-
skipun 8. febrúar 1805 og í opnu bréfi 20.
júní 1838, en þcssi lög eru upphaflega sett
fyrir Danmörku. Finst því mikið í þeim,
er eigi á við hér á landi, og af annari hálfu
vantar sumar ákvarðanir, er eigi vel má missa
eptir því, sem liagar til á voru landi. Af
þessum tildráttum hafði sliptamtmaðrinn, sem
var, samið lagafrumvarp, er ganga átti í stað
nefndra laga, og á þvíhafði dómsmálastjórnin
bygt það frumvarp, er nú var lagt fyrir þingið.
Nefndin (Björn þm. S.Múlas., Eiríkr þm.
Barðstr., Jón þm. V.Skaplfell.) viðrkendi
í áliti sínu ina lofsverðu viðleitni sjórnarinnar
tii að reisa skorður við inum hættulegu sjúk-
dómum, sem hér er um að ræða; en skoraði
53