Víkverji

Ataaseq assigiiaat ilaat

Víkverji - 07.08.1873, Qupperneq 5

Víkverji - 07.08.1873, Qupperneq 5
69 laun forstöðumanns . IGOOrd. — 2 yfirdómara sem aðstoðarmanna . 800 — til bókakaupa og húsa- leigu m. fl. . . . _600— 3Q00rd. þótti of mikill. Síðan vér fengum vorn eig- inn sjóð hefir stjórninni eigi þótt svo brýn nauðsyn á þessari stofnun, að nauðsynlegt væri að koma henni upp fyrr en alþingi hefði fengið fjárforræði (sjá Alþ.tíð 1871 bls. 17. — 18. og bls. 205) enda nnin efasamt, hvort lagaskólinn yrði eigi talsvert dýrari, en á er ællað — in árlegu útgjöld til prestaskólans eru nú liðugar 6000 rd. Nú kom til þingsins bænarskrá frá 12 eldri og yngri íslendingum í Kaupmannahöfn um að stofnaðr verði ið bráðasta á landsins kostnað kensluskóli handa íslenzknm lögfræð- ingaefnum, og réði nefnd sú, er þingið setli í málinu (Benedikt þm. Árnes., Páll þingm. Húnvetn., Jón þm. S. I’ingey.) þinginu til að beiðast þess, að Hans Hátign Konungrinn allramildilegast skipi svo fyrir, að lagaskóli handa íslenskum lögfræðingum komist á sem allra fyrst samkvæmt konunglegri auglýsing til alþingis dags. 8. júní 1863, að undir- stöðuatriði þau í fyrirkomulagi á þessum skóla, sem um er rætt í bréfi kirkju- og kennslustjórnarinnar í Kaupmannahöfn til stiptamtmannsius yfir íslandi, dags. 28. des 1863 verði fyrst um sinn látin gilda fyrir skólann, og að kostnaðrinn til skólans verði í bráð greiddr af því fé landssjóðsins, sem látið hefir verið renna inn í inn svo kall- aða hjálparsjóð fyrir ísland. 14. Uppkast það til ávarps til konungs, sem biskupinn lagði fyrir þingið og sem það aðhylltist, segir svo: Allramildasti konungr! Um leið og alþingi íslendinga lýkr störf- um sínum í síðasta skipti áðr en nýar kosn- ingar fara fram, finnr það hjá sér sterka innvortis hvöt til að senda Yðar Konúnglegu Hátign þetta þegnlega ávarp til þess á hátíð- legan hátt að yfirlýsa þeirri lotningu, sem það ber fyrir Y. K. H. og því trausti til Y. K. H. sem það er gagntekið af. I hjörtum vorum býr sú lifandi sannfær- ing, að Y. K. H. vilji veg og frama allra þegna Yðvarra, eins vor íslendinga sem ann- ara, og þessi sannfæring styðst við þá yfir- lýsingu, sem Y. K. H. ailramildilegast hefir þóknast að gjöra við byrjun ríkisstjórnar Yð- ar í opnu bréfi dagsettu 22. Febr. 1864, þar sem Y. K. H. allramildilegast heitir þvi með berum orðum, að sýna öllum þegnum Yðar sama réttlæti og sömu mildi. Traustið á þessum heityrðum hefir einn- ig veitt þiuginu djörfung til að þessu sinni að bera þegtilegar frelsisbænir sínar fram fyrir Yðar Hátign. Allramildasti konungur! Saga vor á inum liðnu öldum frá því, er landið fyrst bygðist, sem að ári eru 1000 ár, sýnir Ijóslega, að það er frelsið, sem hefir veitt þjóð vorri fjör og afi, fylgi og framtak í öllum greinum, en að það er ánauð og ó- frelsi, sem heflr deyft hana og kúgað, og vér ölum þá öruggu von, að Y. K. H. veiti oss þau réttindi og það frelsi, sem eiga rót sína í eðli og ásigkomulagi þjóðernis vors að fornu og nýu, og miða til að efla það og styrkja. Þessari öruggu von látum vér verða sam- fara þá allra undirgefnustu ósk vora, að Y. K. H. allramildilegast þóknist hið allrafyrsta ske kann, að afneina það ófullkomna og ó- eðlilega stjórnarástand, sem nú er hér á landi og sem nálega allr landslýðr hér leynilega og opinberlega hefir lýst óánægju sinni yiir, en fyrirskipa aptr þá landsstjórn, sem hag- feld væri og samboðin þjóðerni voru og sér- staklegu ásigkomulagi þessa lands. Þessa ósk sína hefir þingið dirfst að fram- bera í þegnlegri bænarskrá um stjórnarbót, sem þingið leyfir sér að senda Y. K. H. og vonum vér, að Y. K. H. sjái af henni, hví- líkt áhugamál þetta er fyrir landið, þar sem þingið nálega í einu hljóði hefir beiðst þess, að, ef Y. H. ekki þóknaðist að staðfesta það frumvarp til stjórnarskrár íslands, sem það hefir samið, eins og það liggr fyrir, Y. K. H. þáallramildilegast mætti þóknastaðgefa íslandi að ári komanda þá stjórnarskrá, er veiti al- þingi fullt löggjafarvald og fjárforræði, og sé að öðru leyti svo frjálsleg, sem framast er

x

Víkverji

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.