Víkverji

Tölublað

Víkverji - 16.10.1873, Blaðsíða 3

Víkverji - 16.10.1873, Blaðsíða 3
fé í mót bráðafári, ef það er alment við haft; lyf þetta er karbohýru-btiölögr. Hann skal svo gjöra: lát eitt lóð sýrnnnar I 1’/a lil 2 potta vatns, og hrær þar saman við nokkuð af grœmápu. Ur þessu skal nú baða féið. eðr bera löginn rækilega í það, svo hann renni vel um alla skepnuna. Þetta skal gjöra að minsta kosti tvisvar á ári, tim haust og tim vor, áðr en fé er rekið á afrétt. PRESTASKÓLINN. Inn 6. þ. m. byrjuðn fyrirlestrar á prestaskólanum í inu nýja luisrúmi, sem guðfræðisskóla landsins er ætlað framvegis að hafa til fyrirlestra. Hing- að til heflr prestaskólinn, eins og kunnugt er, haft til fyrirlestra tvær slofur í húsi kaup- inanns sáluga S. Sivertsens. En næstliðið sumar hefir prestaskólanum verið fyrirbúið húsnæði til fyrirlestra í vestrenda yfirréttar- hússins, þar sem yfirdómr landsins hafði áðr aðsetr. Þar voru áðr 2 herbergi, en úr þeim báðum er nú gjörð I stór fyrirlestra- stofa, sem rúmar hæglega 20 tilheyrendr. Lestrarstofa þessi er nú einhver inn rúm- bezti og fagrasti salr hér í hænum, stofan er vel máluð, og viðgjörð hússins yfir höfuð vönduð að öllu, þar er góð birta, nýr ofn settr, sem hitar húsið nægilega, og 2 slór vindspeldi i vestrgafli hússins, svo þar getr jafnan verið gott og heilnæint lopt. Stiptsyfirvöldin hafa 23. f. m. falið flin- leikakennara dannehrogsmanni G. P. Steen- berg á hendr, að vera fyrst um sinn uin- sjónarmaðr (inspektor) við preslaskólann, og gefið honum þar að lútandi erindisbréf. Nú sem stendr ganga 16 stúdentar á presla- skólann, Eru þessir ( inni eldri deild: Árni Jónsson, Brynjólfr Jónsson, Jón Halldórsson, Jón Jónsson, Jón Sigurðr Jónsson, Magnús Jósefsson, Ólafur Bjarnarson, Stefán Hall- dórsson, Stefán Sigfússon og Steingrímr Jónsson. í haust bættust 6 nýir við og eru þeir þessir: Brynjólfr Gunnarsson, Halldór Briem Jóhann D. Meilbye, Jóhann Þorkellsson, Ste- fán Jónsson og Tómás Hallgrímsson. VERSLUN í REYKJAVÍK. Þegar snemma í haust urðu kaupmenn hér í bænum uppi- skroppa um koi. l’ar í mót átti flotastjórn- ín danska töluverðan forða hér í bænum og hafði hún í vor keypt kolin af inni norsku verslnn. Þar eð nú engin von var um, að kaupmenn mundu bæta úr eldsneytisþörf þeirri, er þannig var hér, og með hverjum degi varð meir og meir tilfinnanleg, skrifaði konsúl Smith eplir áskorun fieiri bæarbúa einkum lögreglustjórans bónarbrjef til stjórn- arinnar um, að nokkuð af forða hennar yrði afhent sér, og hefir stjórnin nú samþykt, að einar 400 tunnur verði af kolaforða henn- ar seldar konsúl Smith, þó með þeiin skilmála, að hann megi eigi selja kolin dýr- ari, en að hann fái ómak sitt og útlát hæfi- lega borgað. Landshöfðingjanum er falið á hendr að semja við Smith um söluna, og mun að því er sagt er, kolatunnan verða á 2 rd. 32 sk. Vér getum þannig þakkað inni dönsku stjórn að vér fáum kol að ofnum vorum í vetr. En því er nú miðr og ver, að meira vantar hjá kaupmönnum vorum af nauðsynja- vörum en kol. Þannig er nú að kalla orðið með öllu steinolíu laust, og timbrekla hefir verið hér fram eptir öllu hausti, þannig að varla fæst borð í likkistu. Oss er alveg ó- skiljanlegt, hvernig þess konar vöruekla getr orðið í kaupstað, þar sem fleiri kaupmenn, er hafa skip í förum og þees vegna eigi má kalla «prangara», eru; þeir ættu þó að geta séð, að enginn tapar meira- við vöru- skort en kaupmaðrinn sjálfr, þar sem eiu- asta atvinnan hans er að selja vörur, og sé skipaleigan hingað til landsins mikil, þá er það kaupmönnum innan haudar að leggja kostnaðinn á vöruna, enda komast þeir menn er þekkja verðlagið erlendis, fljólt að raun um, að verslunarinenn geri svo. Bændr út um land eru nú farnir að ganga í verslun- arfélög til þess sjálfir að útvega sér nauð- synjavörur þær, er kaupmenn eigi gera svo vel að flytja þeim. J>að sýnist að vera mál komið fyrir kaupstaðarbúa, að minsta kosti hér í Reykjavík, að fylgja þessu dæmi. Dönsk blöð geta um ísland og íslendinga. II. Blaðið «Dags-Telegrafen» hefir aptr farið nokkrum orðum um stjórnarmál vort og um

x

Víkverji

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkverji
https://timarit.is/publication/99

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.