Alþýðublaðið - 20.03.1960, Qupperneq 5
4 ungir d
og hijóm-
sveit
jafnframt er gítarleikari í
Disko-kvintettinum; Sigurður
Johnnie Þórarinsson, er sungið
yovors
Gests
EFNT verður til nýstárlegra
miðnæturhljómleika í Austur-
bæjarbíói n. k. miðvikudag,
þar sem sex vimsælustu dægur-
lagasöngvararnir úr röðum
unga fólksisis koma fram.
Söngvarar þessir, sem allir eru
um og innan við tvítugt, eru
margir hverjir or'ðnir þekktir'
fyrir góoan dfHgurlagasöng,
enda þótt fæstir þeirra hafi
sungið með hljómsveitum leng
ur en ár.
Hinir ungu söngvarar eru:
Stefán Jónsson, sem syngur
með Plúdó-kvintettinum; Dí-
ana Magnúsdóítir, sem lofar
góðu sem fyrsta flokks söng-
'kona; Bertrand Möller, sem
Nýja leiðin
ekki tekin í
notkun strax
í TIIÆFNI af frétt blaðsins
í fyrrad. um nýja strætisvagna-
leið vestur á Nesveg ihefur for-
stjóri' SVR beðið blaðið að taka
fram, að dráttur muni verða á
því, að leið þessi komist í gagn-
ið, líklega um það bil 2ja mán-
aða töf. Er orsökin sú, að upp-
gröftur þarf að fara fram á
Dunhaga. Þá hefur nú orðið
breyting á leið 18. Sú leið
fer nú aðeins inn á Rétt-
arholtsveg í stað Tunguveg áð-
ur, þar eð leiðin þótti of löng og
erfi'ð í akstri eins og !hún var nú
undanfarið. Á morgnana, um há
degið og á kvöldin eru sendir
aukabílar inn á Tunguveg til
þess að bæta úr þessu og fleira
er í athugun, sagði forstjórinn.
Dægurlagasöngvarinn
SIGURDÓR.
hefur með ýmsum hljómsveit-
um;Einar Júlíusson frá Kefla-
vík; sem söng á hljómleikum í
Austurbæjarbíói í nóvember s.
1. og vakti mikla hrifningu,
enda er hér á ferðinni einkar
skemmtilegur söngvari; sjötti
söngvarinn er Sigurdór, sem er
fastráðinn með hljómsveit
Svavars Gests, en hún annast
allan undirleik á hljómleik-
unum. —■ Einnig leikur hljóm-
sveitin sjálfstætt allmörg lög,
bæði hekkt rokklög og eha-cha
lög, sem þykja sérlega skemmti
leg í meðferð hljómsveitarinn-
ar. Kynnir verður Svavar
Gests.
Þar sem söngvararnir geta
ekki fengið frí frá hinum ýmsu
hljómsveitum, sem þeir syngja
með, nema þetta eina kvöld,
verður alls ekki unnt að end-
urtaka hljómleikana.
SEX togárar lönduðu afla
sínum í Reykjavík í síðustu
viku, samtals 1153 lestum. Er
afli þeirra yfirleitt sæmilegur
og heldur skánandi en hitt.
Þorkell máni landaði á mánu
daginn 196 lestum og Jón for-
seti daginn eftir 187 lestum.
Þormóður goði landaði á mið-
vikudaginn 234 lestum og dag-
inn eftir Úranus 116 lestum.
Sama dag landaði Þorsteinn
Ingólfsson 190 lestum og loks
landaði Skúli Magnússon á
íöstudaginn 230 lestum.
Engin sendi-
herraskipti
BONN, 18. marz NTB—AFB.
Youl, sendiherra Gulineu í Vest
ur-Þýzkalandi, bar á móti því í
dag, !að land sitt hefði tekið
stjórnmálasamband við Austur
Þýzkaland. Sagði hann við
blaðamenn, að stjórn sín hefði
aðeins verzlunarsamband við
Austur-Þýzkaland.
Gaf hann þessa yfirlýsi'ngu
við blaðamenn eftir fund með
ráðuneytisstjóra vestur-þýeka
utanríkisráðuneytisins, sem
'hafði heðið sendiherrann um að
skýra afstöðu Guineu til Aust-
ur-Þýzkalands. Sendiherrann
kvað stjórnmálasamband við
Vestur-Þýzkaland mundu halda
áfram.
SAMKVÆMT yfirliti Fiskifé
lags íslanrls hefar afli bátanna
numið 19.123 lestum í janúar
þessa árs en í j.i 1359 nam
afli bátanna 14.657 lestum. Afli
togaranna er hins vegar mun
minni í jnnúar en í jánúir s. 1.
ár.
Afli togaranna í janúar s. 1.
nam 5230 lestum en í janúar
s. 1. ár 13.464 lestum. í þessum
tölum er síldaraflinn f janúar
ekki reiknaður með. Er heildar-
afli fiskaflans, að síld meðtal-
inni er 25.157 lestir í janúar
þessa árs eii 23.224 lestir í janú-
ar s. 1. árs.
Þokast / sam-
komulagsátt á
afómstefnunni
GENF, 19. mar-z. — Tzarapkin,
aðalfulltrúi Sovétríkjanna á
þríveldaráðstefnunni um bann
við tilraunum með kjarnorku-
og vetnisvopn, lagði í morgun
fram tillögu þar sem hann
fellst á tillögu Bandaríkja-
manna frá 11. febrúar í höfuð-
atriðum. Er lagt til að allar til-
raunir með kjarnorkuvopn,
sem hægt er að mæla með þeim
mælitækjum, sem nú tíðkast,
skuli bannaðar. Allar tilraunir
í lofti, sjó og í jörðu verði
bannaðar, en tilraunir neðan-
jarðar leyfðar ef þær mælast
ekki í venjulegum tækjum.
Þessi tillaga rússneska full-
trúans kom mönnum mjög .á
óvart, enda er þarna raunveru-
lega um tillögu Bandaríkja-
manna að ræða, sem Sovét-
stjórnin hefur hingað til ekki
viliað fallast á.
Strákar fóru á
sjóinn með Ægi
I GÆRMORGUN rétt fyrir
klukkan 9 safnaðist hópur af
ungum piltum um borð í varð-
skipið Ægi. Þetta voru piltar af
sjóvinnunámskeiði Æskulýðs-
ráðs Reykjavíkur. Ferðin var
farin til að kynna þeim notkun
björgunarbáta, og einni« var
þeim sýnd notkun línubyssu.
Æskulýðsráð Reykjavíkur
hefur nú um nokkurt skeið hald
ið sjóvinnunámskeið fyrir pilta
13 ára og eldri. Þetta eru 3ja
mánaða námseið þar sem piltun
um er kennd uppsetning á lóð-
um, splæsingar á tó, splæsing-
ar á vírum og að ríða net og
bæta net.
Ferð þessi' var einn liður í
kennslunni. Drengirnir, sem
þátt tóku í ferðinni voru 70—80.
Fyrst hringsólaði Ægir á ytri'
höfninni meðan verið var að
stilla kompá'sinn. Síðan var
siglt legnra út í bugtina og lagst
fyrir akkeri. Þar var tekinn út
björgunaribátur, og drengjunum
sýnt hvernig bæri að haga sér
við notkun hans.
Einnig var skotið hjarglínu,
Oo- skírt fyrir drengjunum í
helztu atriðum hvernig skjóta
ætti línu í roki o. s. frv. Að lok
um var skotið tvei'm púðurskot-
um úr byssu bátsins, og var það
fremur til gamans en hitt.
Drengirnir virtust hafa hið
mesta yndi' af ferðinni, og er
ekki að efa að flestir þeirrá
hafi ákveðið að gerast sjómenEi
eftir þessa stuttu ferð.
á fermingartelpur og full-
orðna ásamt fleirj fatnaðí
ódýrt.
Reykjanesbraut 8,
Hraunsholti.
Sunnan Silfurtún við Hafn
arfjarðarveg.
Sími 186 62.
..........................4
Húseigendur.
önnumst alls konar
vatns og hitalagnir. 1
HITALAGNIR hi. !
Sími 33712 — 35444.
Alþýðublaðið — 20. marz 1960 C