Alþýðublaðið - 20.03.1960, Blaðsíða 14

Alþýðublaðið - 20.03.1960, Blaðsíða 14
ÍÞRÓTTIR—— Framhald á 13. síðu. i Hörður Tulinius jafnaði við mikil fagnaðarlæti áhorfenda, sem héldu mikið með Akur- eyringum. Varn A;kureyringa var anzi opin og sein og Einar Matthíasson notfærði sér það og skoraði tvívegis og Gunnar Sigurðsson einu sinni, 7:2. Axel skoraði fyrir Akureyri og Ein- ©r fyrir KFR, en Akureyringar eru ekki af baki dottnir og Hörður sendir knöttinn tvisvar í körfuna, leikar standar 9:8 fyrir KFR og áhorfendur, sem voru margir, skemmtu sér prýðilega. En KFR hefur völd- in og fjórum sinnum í röð urðu Akureyringar að horfa á eftir knettinum í körfu sína, 14:8. Þeir KFR-menn ná stöðugt meira valdi á leiknum og langja bilið, þannig að í hálf- leik er staðan 35:21 KFR í vil. Fyrstu mínútur síðari hálf- teiks voru jafnar, — Akureyri byrjar á að skora, en svo var draumurinn búinn, KFR hef- ur meira úthald og meiri leikni og bilið eykst stöðugt. Oft sá- ust skemmtileg tilþrif, en það var mikið á kostnað hinnar lé- legu varnar ÍBA, Einar fékk að skora í ró og næði, en hann var langbezti maður leiksins, fljótur, snöggur og skotviss. Leiknum lauk með yfirburða- sigri KFR 81 gegn 44. Það var greinilegt, að Akur- eyrarliðið er vant li'tlum sal, liðið getur náð lengra og það er engin ástæða fyrir þá til að ör- vænta yfir úrslitum leiksins. EinS og fyrr segir var Einar bezti maður KFR og kvöldsins, en Ólafur Thorlacius, Sigurður Helgason og Gunnar Sigurðs- son áttu einnig mjög góðan leik. Sérstaklega kom ágæt frammistaða Sigurðar á óvart, en hann átti þarna sinn lang- bezta leik. Sigurður er mjög hár vexti, 2,07 m., og enginn vafi er á því, að hann á eftir að verða í fremstu r.öð í þess- ari íþrótt. Af Akúreyringum var Hörð- ur Tulinius beztur, Jón, Páll og Ingólfur sýndu einnig ágæt til- þrif. Dómararnir Guðmundur Að- alsteinsson og Viðar Hjartar- son áttu slæman dag. Mótið heldur áfram í dag kl. 14 og þá leika ÍR og KR í II. flokki og Ármann og Akureyri í meistaraflokki karla. Þessi var útkoma leikmanna í vítaköstum: Einar tók 7 og skoraði úr 4, Ólafur tók eitt og skoraði ekki, Gunnar tók 2 og skoraði úr hvorugu, Ingi tók eitt og skoraði úr því, sigurð- ur tók 8 og skoraði úr 6. í liði ÍBA tók Hörður 5 og skoraði úr 3 og Axel tók 3 og skoraði úr 1. Að leika eins og Lawton Framhald af 13. síðu. ara, að stöðva knöttinn og hamja hann þegar að manni er sótt hart og títt. Við slíkar að- stæður er aðferðin sú, að stöðva knöttinn með fætinum innan- verðum og gæta þess vandlega, að vera á milU knattarins og næsta mótherja. Ég endurtek, að þetta er miklu vandasamara og krefst miklu meiri æfingar en hin að- ferðin, að stöðva knöttinn með sólanum. Leyndardómurinn í þessu sambandi er staða og jafn vægi líkamans. Ætlir þú þér að stöðva knöttinn með hægri fæti — verður þyngdarpunktur lík- amans að hvíla á vinstri fæti aneð hnéð lítið ei'tt beygt og handleggina ni'ður með síðun- um og 'þú hallar þér til vinstri. . Þegar knötturinn [byrjar að falla, lyftir þú hægri fæti þann- ie að hli'ð hans viti inn og nið- ur og skósólabrúnin sé nær sam síða vellinum. í því augnabliki — sem knötturinn snertir völl- inn kemur þú mjúklega við hann með innanverðum fætin- um. Sé þetta rétt gert mun þér verða það Ijóst að hnéið og knötturinn eru í lóðréttri línu frá vellinum, eins og við hina fyrri aðferð og ég skýrði frá í r 2. kafla. Hér er aðeins sá mun- 'f ur á, að maður hallar sér til vinstri eða hægri, eftir því í hvorn fótinn á að nota, hverj u einni. Hafir þú aðstöðu til að sjá ‘ fyrsta flokks knattspyrnumann að verki, eða þjálfara, þá taktu vel eftir hvernig hann fer að því að stöðva knött með innan- verðum fætinum og lætur hann svo smjúga út úr „rottugildr- unni“ nákvæmlega á réttu augnabliki' og hæfilega langt til þess að geta rennt honum til hliðar, í því að móflherjinn ger- ir árásina. Getir þú spunnið stöðvun og nauðsynlega hreyfingu í einn þráð — þá er það út af fyrir sig ágætt — en reyndu það samt ekki hvorttveggja í senn, þú verður að læra aðferðina á hvoru viðbragðinu fyrir sig fyrst, og síðan samæfa það. — Æfið þetta tveir saman, eins Og ég gat um í síðustu greininni. Varpið knettinum hvor að öðr- um á víxl og áukið lengd og hæð kastsins dálítið hverju sinni. Meðan á æfingunni stendur skaltu ekki hreyfa þig eftir að þú hefur sett fótinn í stellingu til að taka á móti knettinum. Stattu kyrr og taktu nákvæm- lega eftir mistökum félaga þíns — eins og hann á að veita at- hygli þínum mistökum. Berið svo saman bækur ykkar um mis tökin, hvort þið hafið ekki ver- ið of seihir að setja fótinn í rétta stöðu eða of fljótir, hvort þið hafið verið úr jafnvægi eða sett fótinn af þungt niður o. s. frv- Munið svo þessa reglp: Knötturinn má ekki undir neinum kringumstæðum fara lengra frá þér en tvö fet, eftir að þú hefur stöðvað hann. |_4 20. marz 1960 — Alþýðublaðið Veðrlð: Austan kaldi; skýjað. Slysavarðstofan er opin all an sólarhringinn. Læknavörð ur LR fyrri vitjanir er á sama stað frá kl. 18—8. Sími 15030. o----------------------o Gengið: 1 sterlingspund .... 106,84 1 Bandaríkjadollar . 38,10 100 danskar krónur 550,95 o----------------------o s^ssswo. ÍÉS8*SS?$| Flugfélag Islands h.f.: Millilandaflug: Hrímfaxi er væntanleg til Rvk kl. 15.40 í dag frá Hamb., Kmh. og Oslo. Sólfaxi fer til Glasgow og Kmh. kl. 08,30 í fyrramálið. Innanlandsflug: í dag er áætlað að fljúga til Ak ureyrar og Vestmannaeyja. — Á morgun er áætlað að fljúga til Akureyrar, Hornafjarðar og Vestmannaeyja. -o- Hjúkrunarfél. íslands heldur fund í Tjarnarkaffi mánu- daginn 21. þ. m. kl. 8,30. — Fundarefni: Inntaka nýrra félaga. Rannveig Tómasd. segir frá og sýnir myndir frá Indlandsför sinni. -o- Slysavarnadeild Kópavogs heldur skemmtifund í fé- lagsheimili Kópavogs í kvöld kl. 8,30. iBngó-spil með glæsilegum verðlaun- um ,skemmtiþáttur og dans. Kópavogsbúar eru hvattir til að fjölmenna og skemmta sér um leið og gott málefni er stutt. Eimskipafélag íslands h.f.: Dettifoss fer frá Hamborg um 26. 3. til Rotterdam og Rvk. F-jallfoss fór frá Rvk 16.3. til Bergen, Halden, Gautab., Kmh., Ventspils og Finnlands — Gullfoss fór frá Rvk 18.3. til Hamborgar og Kmh. Lagar foss fór frá New York 9.3. — væntanlegur til Rvk á ytri höfnina kl. 15.00 í dag 19.3. Skipið kemur að bryggju um kl. 18.00. Reykjafoss fór frá Hull 17.3. til Rvk. Selfoss fór frá Warnemunde 17.3. til Ventspils. Tröllafoss fór frá Rvk 9.3. til New York. Tungu foss fór frá Hafnarfirði 15.3. til Rostock. Jöklar h.f.: Drangajökull fór frá Vest- mannaeyjum í .gærkvöldi á leið til Noregs. Langjökull er í Ventspils. Vatnajökull er í Reykjavík. Skipadeild S.Í.S.: Hvassafell er á Akranesi. Arnarfell fór í gær frá Sas van Gent til Odda. Jökulfell fór 17. þ. m. frá Hafnarfirði til New York. Dísarfell losar á Vestfjörðum. Litlafell fór í gær frá Rvk til Hornaf jarðar, Djúpavogs, Breðidalsvíkur, Stöðvarfjarðar, Fáskrúðsfj. og Reyðarfjarðar. Helgafell er í Kmh. Hamrafell kemur til Aruba á morgun. -o- ÆSKULÝÐSRÁÐ RVÍKUR: Tómstunda- og félagsiðja — sunnudaginn 20. marz 1960: Lindargata 50: Kl. 10.30 f.h. Sunnudaga- skóli Hallgrímskirkju. kl. 8.00 e. h. Æskulýðsfélög Frí kirkjunnar. Austurbæjarskóli: Kl. 4,00 e. h. Kvikmynda- klúbbur. Iðnó: Kl. 3,00 e.h. íslenzka Brúðu- leikhúsið sýnir. Skátahieimilið: Kl. 8,00 e.h. Dansklúbbur æskufólks (13-16 ára). ÞESSI bátur kom nýlega til Ólafsvíkur. Báturinn er eikar- bátur smíðaður í Nyköping IVIors í Danmörku. Báturinn er 70 br. smálestir að stærð búinn tveimur General Motor vélum með tveimur skrúfum. Fullkomin siglingar- og fiskileitartæki eru í bátnum. Ganghraði bátsins í reynsluför var 12 mílur. — Báturinn heitir Valafell. Tómstunda- og félagsiðja —• mánudaginn 21. marz 1960: Lindargata 50: Kl. 7,30 e.h. Ljósmyndaiðja. Kl. 7,30 e.h. Málm- og raf- magnsvinna. kl. 7,30 e.h, Bast- og tágavinna. ÍR-húsið: Kl. 7,30 e.h. Bast- og tága- vinna. Háagerðisskóli: Kl. 8,00 e.h. Bast og tága- vinna. Víkingsheimilið: Kl. 7,30 e.h. Taflklúbbur. Laugardalur: (íþróttahúsn.) Kl. 5,15ð 7,00 og 8,30 e.h. Sjóvinna. -o- Áheit á Strandakirkju Afhent Alþýðublaðinu: Frá NN kr. 5.Ó0, frá NN kr. 10. 00, frá Þ. kr. 21.00, frá SJ kr. 25.00, frá NN kr. 40.00. -o- SUNNUDAGUR 20. marz: 11.00 Messa í Frí- kirkjunni (Prest- ur sr. Þorsteinn Björnsson). 13.15 Erindi: Um heim- speki Alfreds N. Whiteheads; III. 14.00 Miðdegis- tónleikar. 15.30 Kaffitíminn. —• 16.15 Endurtekið leikrit: ,,Ef ég vildi“, gamanleik ur eftir Paul Geraldy og Rob- ert Spitzer. (Áður útvarpað 12. okt. 1957). — Leikstjóri og þýðandi: Þorsteinn Ö. Step hensen. 17.30 Barnatími —■ (Anna Snorradóttir). 18.30 Þetta vil ég heyra (Guðm. Matthíassan stjórnar þættin- um). 20.20 Tónleikar: Fjögur kirkjulög og þrjár tvíraddað- ar mótettur eftir Gunnar Thyrestam (Unglingakór „Heilagrar þrenningar kirkj- unnar‘ í Stokkhólmi syngur undir stjórn höfundar). 20.35 Raddir skálda: Úr verkum Þórodds Guðmundssonar frá Sandi. Flytjendur: Guðbjörg Þorbjarnardóttir, dr. Broddi Jóhannesson, Andrés Björns- son og höfundurinn sjálfur. — 21.20 „Nefndu lagið“ — get- raunir og skemmtiefni (Svav- ar Gests hefur umsjón með höndum). 22.05 Danslög. — 23.30 Dagskrárlok. MÁNUDAGUR 21. marz: 13.15 Hefst bænavika Búnað- arfélags íslands og Stéttar- sambands bænda. 18.30 Tón- litsartími barnanna (Fjölnir Stefánsson). 18.55 Framburð- arkennsla í dönsku. — 19.00 Þingfréttir. — Tónleikar. —■ 20.30 Hljómsveit Ríkisút- varpsins leikur. Stjórnandi: Hans Antolitsch. 21.00 Vett- vangur raunvísindanna: Um ljós og lýsingu (Örnólfur Thoflacius fil. kand. ræðir við forustumenn Ljóstæknifélags íslands). 21.30 íslenzk tónlist: Lög eftir Ólaf Þorgrímsson. 21.40 Um daginn og veginn (Andrés Kristjánsson frétta- stjóri). 22.10 Passíusálmur — (30). ■— 22.20 íslenzkt mál. 22.35 Kammertónleikar. —• 23.05 Dagskrárlok. -o- LAUSN IIEILABRJÓTS: Þeir skiptu um hesta.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.