Alþýðublaðið - 20.03.1960, Side 10
ÍaHHMHHMHHHMflMnHHHMHHnHHMMHNHMMBflHHHWBMaaMUUUUMUUUHUMIM«UUUMUUMaHIMU«MMBMUUMBMMM!
flMMMMMHMMHMMMMMHMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMMEMMMMMHMMHMMMMMMMMMHMMflMMEBMHHMMMMMMMMMMMBHEEHEMBEEM
BÓK ÁRSINS 1960:
VESTUR-fSLENZKAR ÆVISKRÁR
Meðal íslendinga hefur frá til okkar daga. Hefur það
fornu fari verið mikill áhugi reynzt ómetanlegur styrkur
á sögu þjóðarinnar og ætt- í baráttu íslendinga fyrir
fræði. Þeim áhuga má að sjálfstæði sínu og tilveru sem
verulegu leyti þakka að hin- sjálfstæðrar þjóðar. Og enn
ar fornu bókmenntir íslend- lifir sami andinn. Menn vilja
inga urðu til og að síðan vita deili á frændum sínum,
hefur haldizt við þekking á þótt fjarskyldir séu og búi
ættum manna og sögu ein- í öði'um löndum. Ef litið er á
staklinga, óslitið að kalla má það, sem íslendingar vestan
Sýnishorn af einni b IsSsíðu úr békinni
§4 J.ViSKRÁK
þar miSí'g ár. V;mn rá t || ko&ffgigl
!íþj> bamahei!«iiiír» 'i hv ÍbaUTMtkf ill|ilgf||f|
Sí»'nban.(.i:;,iabía<V!í\ Ifi " .' -
frtsms YKr'Xnl m \í H 'íí'c TVv"
b .Sveinbjorn Sr.cá.án. í, «, Í92íf;|fib®k3fifbf
bxamineé foímhe Suue oí .
é hvrmo I WeittíÍBgton, ibdáfíiih. ii|f:liSf^|f|f|f
í!ít?~> r^Cii r/. . 3sf/? a 'Vri?niímí . \r?( c .. ? VÍÁrnv '1 V- ">A /í ................
hafs hafa skrifað, sést að
sami áhuginn hefur lifað þar,
enda miklar heimildir um ætt
fræði og mannfræði í íslenzk-
um ritum og blöðum vestan
hafs.
Til þess að endurvekja hin
gömlu kynni og skapa ný
tengsl milli frænda báðum
megin hafs hef ég hafizt
handa um að safna í eina
heild stuttum æviágripum
með myndum sem flestra nú-*
lifandi manna af íslenzkum
ættum í Vesturheimi og gefa
út.
Eins og að líkum lætur, er
útgáfa slíks ritverks, sem að
miklu leyti hefur orðið að
vinna í annarri heimsálfu,
mjög kostnaðarsöm, og má
segja, að framhaldsstarfið
verði því aðeins unnið, að
unnt reynist að tryggja því
fjárhagslegan grundvöll þeg-
ar í upphafi. í því skyni verð-
ur leitað eftir áskriftum að
æviskránum og þess vænzt,
að allir, sem ættfræði og
mannfræði unna gérist áskrif-
endur. Nær sú hvatning jafnt
til íslendinga austan hafs og
vestan. Verða æviskrár þess-
ar mun ýtarlegri en ís-
lenzkar æviskrár, sem Bók-
menntafélagið gaf út fyr-
ir nokkru, auk mynda af öll-
um viðkomandi mönnum, sem
það leyfðu. Þá verður aftast
í bindinu nafnaskrá yfir alla,
sem þar er getið. En þeir
munu skipta mörgum þúsund-
um. Kemur fyrsta bindið út
í ár. Það verður um 500 bls.
í stóru broti, prentað á
myndapappír. Fræðimennirn-
ir sr. Benjamín Kristjánsson á
Laugalandi og sr. Jón Guðna-
son þjóðskjalavörður í Revkja
vík, búa æviskrárnar undir
prentun, en útgáfu annast
Bókaforlag Odds Björnsson-
ar á Akureyri, og er það góð
trygging fyrir vandaðri vinnu
Verð þessa bindis er ákveðið
til áskrifenda kr. 350.00 í
bandi, en óbundið kn. 320.00.
Bókhlöðuverð verður kr. 450.
00 ib. og kr. 420.00 ób.
Til þess að létta undir með
hinum mikla útgáfukostnaði,
fylgir boðsbréfi þessu áskrift-
arseðill, og eru það vinsam-
leg tilmæli mín til þeirra,
sem gerast vilja áskrifendur,
að þeir. sendi kr. 50.00 fyr-
irframgreiðslu ásamt áskrift-
arseðlinum.
ÞEIM, SEM GREIÐA
ÞETTA FYRSTA BINDI
AÐ FULLU VIÐ PÖNT-
UN, ERU BOÐIN ÞAU
KOSTAKJÖR AÐ EIGN-
AST BÓKINA „FRÁ
KOTÁ TIL KANADA“
EÐA ÞÁ „DALA-
SKÁLD“ EFTIR EIGIN
VALI. ÁSAMT RITINU
EDDU, ÖLLU SEM ÚT
ER KOMIÐ, FYRIR AÐ-
EINS KR. 20,00. — AT-
HUGIÐ VEL ÞETTA
BOÐ.
Efni þessa boðsbréfs er
fyrst og fremst að kynna
Æviskrárnar og þann tilgang,
sem að baki liggur, að gefa
slíkt rit út. En hann er í
stuttu máli þessi:
1. Skapa grundvöll að per,-
sónulegum tengslum milli ís-
lendingá austan hafs og vest-
an.
2. Fá yfirlit um, hvern þátt
fólk af íslenzkum ættum hef-
ur átt í þjóðfélögunum í
Ameríku, þar sem fram kem-
ur, hvaða störf það hefur
unnið og hvert áhugi þess
hefur beinzt.
3. Verða þáttur í ísl. ætt-
fræði og söguleg heimild sem
unnt sé að byggja á í fram-
tíðinni um ættartengsl manna
báðum megin hafsins og vekja
með því áhuga yngri kynslóð-
arinnar vestra á ættarbönd-
unum við ísland.
Það er hugmynd mín að
þarna verði skráð heimild um
menn af íslenzkum stofni sem
hafi varanlegt gildi fyrir sögu
landa þeirra, ekki síður en ís-
lenzka ættfræði, og sýni
hvern þátt hinn litli, íslenzki
þjóðstofn hefur spunnið í líf
hinna fjölmörgu þjóða í
Ameríku. Einnig megi þetta
verða til þess, að efla almennt
menningarsamband milli ís-
lands annars vegar og Kana-
da og Bandaríkjanna hins-
vegar.
Að lokum vil ég þakka öll-
um þeim fyrirfram, sem ger-
ast áskrifendur að Æviskrán-
um og leggja þar með fram
sinn skerf til þess, að mynda
meginþráð yfir hafið milíi ís-
lendinga austan hafs og vest-
an, og styrkja þannig og
treysta samstarf og kvnni
við þessa fjarlægu frændur
okkar og vini.
Akureyri, 15. marz 1960.
Árni Bjarnarson.
Áskriffarseðill að Vesfu-fslenzkum æv iskrám I.
Ég undirrit gerist hér með áskrifandi að Vestur- NAFN: ...........
ísilenzkum æviskrám I., sem koma út í sumar og kosta HEIMILL
til áskrifenda kr. 350,00 iib. og kr. 320,00 ób. að við-
bættum kostnaði. Sendi ég hér með kr............ PÖSTSTÖÐ: .........
Pantanir sendist: Bókaverzl. Edda h.f. Akuureyri.
MMMMMMMHHHMHHHHHMMHHHHHMHMMMHMHMHMHHHHMMMMHMMMMHMMMHMMMHMMMMHMHMMHMMMMMMHMMMflMMMHHMHMMHMMHMMHHMMMMMMHBHHHHHMMMMHHM
20. marz 1960 — Alþýðublaðið
lo