Alþýðublaðið - 20.03.1960, Síða 16
Bylting
í réttu
llOSI
Ó, full-
komni
guð..
HÖrUÐKODDINN hans Tutankamens er fundinn aftur.
Hann er metinn á hvorki meira né mlinna en sjö milljónir
króna. Hann var í einhverju reiðileysi í geymslu í safninu
í Kairo og enginn maður hafði vitað neitt um hann j>ar.
Koddinn er úr einhverju glerefni, dökkblár að lit, og á
hann eru greyptar áletranir til heiðurs hinum látna faraó,
er andaðist ungur :að árum um 1350 fyrir Krists hurð. Á
koddanum stendur: ,,Ó drottnari tvíburaríkisins. Ó, full-
komni guð . . . auðæfanna guð, Tutankamen, skapari lífs-
ins, hann lifi eilíflega eins og sólin“. Koddinn var áður hjá
Faruk, en hefur ekki verið vís, síðan Faruk flúði land, þar
til nú.
maöurinn í
Darvas var fyrir skömmu
kjörinn formaður ungverska
rithöfundasambandsins og
hann fékk Kossuth-verðlaun-
>n árið 1958, en það er eins-
dæmi að þau séu veitt sama
höfundi ncma einu sinni.
Allt til ársins 1959 var Dar-
vas meðlimur bændaflokks-
ins en hefur nú algerlega snú
ist á sveif með kommúnist-
um, og samkvæmt upplýsing-
um frá ungverskum flótta-
mönnum, sem nýkomnir eru
til Vínarborgar, hefur Darvas
skrifað ósmekklegar sögur í
kommúnistískum áróðurs-
anda. Hann hefur aldrei ver-
ið í hávegum hafður meðal
gagnrýnenda í Ungverjalandi
en á síðasta ári hefur hann
stöðugt vaxið I áliti hjá stjórn
endum landsins „vegna af-
stöðu sinnar til gagnbylting-
arinnar og uppljóstrana í sam
bandi við afturhaldsöflin og
hina vesölu náunga, sem
stóðu bak við byltinguna“,
eins og segir í forsendunum
fyrir Kossuth-verðlaununum.
Lifði
DYRAFRÆÐIPROFESSOR
við Harwardháskóla, sir Al-
ister Hardy hefur sett fram
nýstárlega kenningu um þró-
un mannsins. Hann telur, að
maðurinn hafi farið í gegnum
þróunarskeið, er hann að
miklu leyti lifði í sjó og jafn-
vel undir yfirborði hafsins.
hafinu?
Eins og margir dýraflokk-
ar, til dæmis skriðdýr á for-
sögulegum öldum, hefur mað
urinn, að áliti dýrafræðings-
ins, verið knúinn til að leita
hafsins til fæðuöflunar, þeg-
ar hann var enn á svipuðu
skeiði og apar. Hann hefur
þá horfið frá trjánum, en byrj
ftVWWWtWMWMWWVMWWWWWMW MWWWMWVWWMWMWWWWWWW
að á að vaða í flæðarmálinu
í leit að æti en síðar farið að
leggja út á nokkurt dýpi.
Dýrafræðingurinn, sem
stundað hefur athuganir í
þessu efni um 30 ára skeið,
segir, að þetta tímabil í þró-
unarsögu mannsins hafi vel
getað náð yfir 500 þúsund til
milljón ár.
Hann telur, að þessi kenn-
ing skýri það, hvers vegna
maðurinn gengur alveg upp-
réttur. Það hafi hann tekið
upp er liann fór að vaða í vatn
inu, og enn fremur telur
hann, að það, að húð manns-
ins má heita hárlaus og að
hann hefur nokkurt fitulag
undir húðinni, komi til af lífi
hans í sænum.
Þá styður hann sína kenn-
ingu með því, að það sé
gloppa í þekkingu vísindanna
á þroskaferli mannskepnunn-
ar, en hún ge'ti hins vegar
fyllt út í þá gloppu.
Eftir að maðurinn hafði
lengi verið hálfgert lagardýr,
rétt eins og hvalir og selir,
hafi hann leitað aftur upp á
ströndina, er lífsskilyrði
bötnuðu þar.______
Fé Dalai lama
TALSMAÐUR Dalai Lama
upplýsi nýlega, að sögur kom-
múnista um auðævi þau, sem
hinn landflótta þjóðhöfðingi
Tíbetbúa hefði haft með sér
til Indlands væru í hæsta
máta óáreiðanlegar. Hann
hefði haft meðferðis gripi og
fjármuni, sem eru að verð-
gildi 600.000 sterlingspund
(60 milljónir króna) en ekki
milljónir sterlingspunda, eins
og Kínverjar hafa haldið
fram.
Fjármunum þessum vár
smyglað á múlösnum yfir
Sikkim til Indlands. Fé þetta
er notað til þess að standa
straum af uppihaldi Dalai
Lama og 1000 fylgdarmanna
hans.
VIN, þriðjud. (UPI). — Ung-
verska stjórnin hefur ákveðið
að veita rithöfundinum Joszef
Darvas mestu bókmenntaverð
laun landsins, Kossuth-verð-
launin, í annað sinn. Darvas
hefur einbeitt sér að því „að
shrifa skáldsögur, sem sýna
gagnbyltinguna 1958 í réttu
Ijósi“.
VISINDAMENN hafa lengi
vitað, að þegar hnísan smýg
ur hratt og léttilega í gegn-
um sjóinn, myndast varla
gára í kringum hana. Nú
hefur komið í ljós við rann-
sóknir, að innan undir skinn
inu á henni er Iag af holum
og tökkum, sem hafa þau á-
hrif að draga úr gárumynd-
un í vatninu um leið og
skepnan þrýstir sér í gegn-
um það. Það hefur aftur
þau áhrif, að sundið verður
auðveldara og sundhraðinn
meiri. Þetta þykir vera ein
höfuðástæðan fyrir því, að
hnísan- nær meiri hraða á
sundi en eðlilegt þykir hjá
dýri af hennar stærð. Nú er
í ráði að gera efni, sem er
eftirlíking af þessum útbún-
aði undir skinni Jmísunnar
og setja það utan á kafbáta.
HNÝSU
9
m
œd£shí
41. árg. — Sunnudagur 20. marz 1960 — 66. tbl.
y