Alþýðublaðið - 13.04.1960, Blaðsíða 5
HÖFÐABORG, 12. 'aþríl (NTB).
Það þykir ólíklegt að David
Pratt, stórbóndinn, sem særði
Verwoerd forsætisráðherra Suð
Hr-Afríku á laugardag, verði
leiddur fyrir rétt á næstunni að
því er öruggar heimildir í
Höfðaborg telja. Sagt er !að rík-
ísstjórnin óttist að opin réttar-
höld muni hafa óheppilegar af-
leiðingar nú.
Því er vandlega haldið leyndu
írviar David Pratt er geymdur
Og hefur ekki einu sinni lögfræð
íngur hans og verjandi hug-
mynd um það.
Allmikill uggur er nú í ýms-
um kaupsýslumönnum í Suður-
Afriku og hafa samtök verzlun-
armanna í Höfðanýlendunni
gent forséta þingsins Paul Sau-
er, varaforsætisráðherra og
fleiri ráðherrum áskorun um að
Stofna nefnd, er í eigi sæti full-
trúar hvítra manna og svartra
®g sé verkefni hennar að rann-
Eaka kærur blökkumanna, sem
þeir hafa lagt fram. Ráðherr-
arnir hafa lofað að athuga mál-
ið.
Francois Erasmus, dómsmála
ráðherra Suður-Afríku, sagði í
dag, að nú yrðu hvítir menn í
landinu að fara að vinna erfið-
isvinnu í stað þess að vera al-
gerlega upp á blökkumennina
íkomnir í þeim efnum. Dóms-
málaráðherrann sagði að
toyggja yrði friðsamlega sam-
búð kynþátta landsins og út-
rýma yrði algerlega kommún-
isma og öðrum slíkum hug-
Snyndakerfum.
Rannsókn á upptökum óeirð-
anna í Langa og Sharpville í
fyrra mánuði þar sem lögreglan
Bkaut milli 70 og 80 blökku-
menn til bana, er haldið áfram,
en lögfræðingar eftirlifandi ætt-
ingja þeirra, sem féllu segja, að
mörg vitni hafi horfið skyndi-
lea og sennilega verið fangels-
uð.
Groebler lögregluforingi, sem
er yfirmaður lögreglunnar í
ÍSharpville, sagði fyrir rétti í
dag, að fyrst hefði verið reynt
að dreifa mannfjöldanum með
táragasi, en þar eð logn var var
gasið gagnslaust. Þá vay lög-
irelumönnunum skipað að nota
ikylfurnar. Síðar, þegar 15000
blökkumenn söfnuðust við lög-
reglustöðina þar sem 100 lög-
preglumenn voru á verði, var
ekki reynt að nota táragas
vegna lognsins og fyrirskipanir
/til fólksins um að hafa sig á
forott voru þýðingarlausar
ivegna hávaðans. Þá gaf lög-
regluforingi einn skipun um að
ekjóta á mannfjöldann.
Sir Villiers Graaf foringi
Btjórnarandstöðuflokksins í Suð
(Ur-Afríku sagði í dag, að1 Sam-
éinuðu þjóðirnar hefðu éngan
rétt til þess að þlanda sér í
málefni landsins, vandamál
þess væri aðeins hægt að leysa
innan frá. Hann sagði að blökku
menn ættu yfir mörgu að
kvarta og bann við samtökum
þeirra gæti ekki útrýmt kvört-
unum þeirra.
Villiers Graaff kvaðst styðja
kynþáttastefnu stjórnarinnar,
hinir hvítu væru ábyrgir fyrir
stjórn landsins og þeir bæru
uppi menningu þess.
GENF. 12. apríl (NTB). —
FULLTRÚAR Pakistan, Grikk-
lands og Austurríkis mæltu í
dag með miðlunart’ílögu
Bandaríkjanna og Kanada á
landhelgisráðstefnunni í Genf.
Fulltrúar Júgóslavíu, Ghana,
Indónesíu og Philippseyja
studdu 18-ríkja tillöguna um
12 mílna landhelgi. Guðmund-
ur í. G.uðmundsson utanríkis-
ráðherra íslands mælti gegn
miðlunartillögunni á þeim
grundvelli, að hún gæíi strand-
Washington, 12. apríl. NTB.
Undirbúningurinn að viðræð
um þriggja utanríkisráðherra
vesturveldanna hófst í dag, er
á de Gaulie
PARÍS, 12. apríl (NTB).
Franskir jafnaðarmenn
hyggjast bera fríam van-
traust á de Gaulle forseta
er þing kemur saman 28.
apríl nk. Byggist van-
traustið á því, að de Gaul-
le neitaði áð kalla þingið
saman í vetur, enda þótt
löglegur meirihluti þing-
manna krefðist þess, en
það telja jafnaðarmenn
stjórnarskrárbrot. Jafníað-
armenn eiga 44 menn í
franska þinginu.
jvmuMwwnMUvmMntHv
Selwyn Lloyd utanríkisráð-
herra Breta ræddi við Herter
utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna í Washington. Ræddu
þeir aðallega um þrívelda-
ráðstefnuna um bann við til-
raunum mcð kjarnorkuvopn.
E:nnig ræddu þeir önnur sam-
eiginleg mál að því er ábyrgir
aðilar upplýsa.
Vigræðum þessum verður
haldiS áfram á fimmtudag og
mun franski utanríkisráðherr-
ann taka þátt í þeim og einn-
ig mun Paul Henri, Spaak
framkvæmdastjóri Atlantshafs
bandalrs.sins vfera viðstaddur
flesta fundina.
Verkéíni ■ utanríkisráðherr-
anna er að samræma sjónar-
mið vesturveldanna í Þýzka-
landsmálinu og Berlínardeil-
unni fyrir fund æðstu manna,
sem h’aldinn verður í París um
miðjan rnaí. Önnur mál verða
rædd jafnframt.
I GÆR var „dimission“ í
Menntaskólanum í Reykja-
vík, þ. e. nemendur VI.
bekkjar fóru í upplestrar-
Ieyfið.
í tilefni dagsins var mik
ið um dýrðir að venju, m.
a. óku þeir um bæinn í
þremur vögnum, sem drátt
arvélar drógu og heimsóttu
kennarana.
Myndin sýnir einn vagn-
inn með fullfermi. (Ljósm.
Sveinn Þormóðsson.)
London, 12. apríi, (NTB-
AFP). — KRÚSTJOV, forsætis
ráðherra Sovétríkjanna hefur
sent persónulegan boðskap til
Macmillans forsætisráðherra
Bieta að því er öruggar heim-
ildir í London upplýsa-.* Var
boðskapur Krústjovs fluttur
Macmillan munnlega af sendi-
! herra Sovétríkjanna í London.
1 Sterkur orðrómur gengur um
' það í London að í undirbún-
' ingi sé heimsókn Krústjovs til
! Bretlands á næstunni og
1 þykja hínar tíðu fundir Mac-
' millan og rússneska sendiherr-
; ans benda til þess að eitthvað
I sé til í þeim orði’ómi.
ríkjum ekki nægan rétt á fisle»
veiðisvæðum (útdráttur úk
ræðu ráðherrans er á forsíðu),
Á kvöldfundi í gær studdu
fulltrúar írlands og Thaillandyi
miðlunartillöguna. írski full~
t’úinn kvaðst hafa samúð me5
íslendingum, en efaðist um, af.»-
tillaga þeirra um forréttindi
utan 12 mílna nái fram ac>
ganga.
Fulltrúi Argentínu lagði frara
breytingartillögu við miðlunar-
tillöguna um að sögurétturinr*
verði látinn gilda í 30 ár.
í Genf er talið að Danir hafí
gert jSérsanminsf við Brcta um
að styðja tillögu Bandarikj™
anna og Kanada gegn því nS
ferezk'v togarar veiði aðeins »
4—5 ár inn að sex mílna mörlc
um við Færeyjar og Græn-
land. Erlendur Paturssop hefmr
borið fram mótmæli við dönskst
nefndina vegna meintra samn»
inga.
Búizt er við að Norðmemn,
Finnar og Svíar greiði atkvæði
með miðlun.
Á morgun eru tíu fulltrúar á
mælendaskrá, þar á meðal so~
véski fulltrúinn. Á síðdegis-
fundi verða greidd atkvæði £
■npfrsd og á kvöldfundi verður
fulltrúum gefinn kostur á aS
vera g"ein fyrir atkvæði sínu.
Revht verður að ljúka nefnclar
störfum á morgun, en allsherj-
arfúhdur hefst þriðjudaginn
°ftir páska.
JAMES Hagerthy, blaðafulltrúi
Bandaríkjaforseta, kom við á
Keflavíkurflugvelli í gærdag á
leið sinni frá Moskvu (um Kaup
mannahöfn) vestur um 'haf.
Blaðafulltrúinn ferðaðist í VC
137, sem er þota af gerðinni Eo~
ing 707, og var 30 manna föru-
neyti meS honum.
Hagerthy kom kl. 4.10 og
snæddi á flugvallarhótelinu á-
samt Thompson, sendiheira
USA á íslandi, og Willis, yfir-
manni varnarliðsins á Keflavík.
urflugvelli. Hélt hann áfram
ferðinni kl. 6 áleiðis til Anehor-
age í Alaska, yfir Grænlands-
jökul. 4
Alþýðublaðið — 13. apríl 1960 KL
I.