Alþýðublaðið - 13.04.1960, Blaðsíða 11
Ársþing ÍBR:
Sívaxandi starfsemi
Edström: 817
stig í tugþrau
Eugene — (UPI).
BANDARÍSKI tugþrautar-
maðurinn Dave Edström náði
þriðja bezta árangri, sem náðst
hefur í heiminum í tugþraut á
móti sem lauk hér í dag (laug-
ardag). Hann hlaut 8176 stig,
en beztu afrekin eiga Kutnet-
sow 8357 og Rafer Johnson
8302.
Edström, sem er stúdent við
Oregon háskólann náði eftirtöld
um árangri í hinum einstöku
greinum: 100 m.: 10,8, lang-
stökk: 7,17, kúluvarp: 15,23, há
stökk 1,87, 400 m. 49,5, 110 m.
grind: 14,2, kringlukast 46,07,
stangarstökk 3,50 m., spjótkast:
66,52 og 1500 m. 4:36,2 mín. —
Búast má við því, að Edström
verði skeinuhættur keppinaut-
ur þeirra Kutnetsow og John-
son í Róm.
Annar árangur um helgina:
Bobby Morrow 10,2 í 100 m.
Næstur varð hinn efnilegi Styr
on, en Sime og Woodhouse
langt á eftir. — Eddie Southern
vann Sime í 200 m. á 21,2 sek.
Bragg og Graham aðeins 4,42
1 á stöng.
Stúdentinn Martin sigraði í
stangarstökki í Tempe Arizona
á 4,66 m., hans langbezta. —
DALLAS LONG
varpaði kúlunni 1936 m. í Ari-
zona um síðustu helgi.
Hann var mjög nálægt 4,79 m.
(ný heimsmetshæð). — Dallas
Long vann kúluvarpið létt með
19,36 m. og Dumas vann há-
stökkið með 2,14 m. Finninn
Lindroos kastaði kringlu 53,50
m. Hann er við nám í USA. —
Landsmót skíðamanna
hefst á Siglufirði í da
SKIÐAMÓT ÍSLANDS heíst
á Siglufirði í dag við Skálafell.
KI. 13.30 flytur Helgi Sveins-
son, mótsstjóri setningarræð-
una, en að henni lokinni flytur
Hermann Stefánsson, formaður
SKÍ ávarp. — Lúðrasveit Siglu
fjarðar leikur við setninguna,
en stjórnandi er Helgi Svcins-
son. Alls eru keppendur 98 og
eru flestir komnir til mótsins.
í dag verður keppt í 15 km.
göngu fullorðinna og 17-19 ára
og 10 km. göngu drengja 15-16
ára. — Einnig fer fram flokka-
keppni í svigi.
Það eru 18 keppendur skráðir
í 15 km. göngu og er sennilegt,
að aðalkeppnin standi milli
Þ'ngeyinga og Isfirðinga eins
og undanfarin ár, en Fljóta-
menn og Eyfirðingar geta kom-
ið á óvænt.
Aðeins þrjár sveitir eru með
í flokkasvigi, þ. e. frá Reykja-
vík, Siglufirði og ísafirði. —
Sve'.t Reykvíkinga er sigur-
stranglegust en allt getur skeð
í þessari grein ,sem ávallt er
spennandi á Landsmótum.
Meðal keppenda í flokka-
svigi £ dag er Eysteinn
Þórðarson, okkar bezti
skíðamaður.
ÁRSÞING íþróttabandalags
Reykjavíkur var haldið dagana
23. apríl og 6. marz í Tjarnar-
café. Þingið sátu 68 fulltrúar
frá 18 aðildarfélögum og 6 sér-
ráðum bandalagsins. Gestir
þingsins voru Benedikt G.
Waage, forseti Í.S.Í., Stefán
Runólfsson, stjórnarmeðlimur
Í.S.Í., Hermann Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Í.S.Í., Þor-
steinn Einarsson, íþróttafull-
trúi ríkisins, Sigurður Magnús-
son, fulltrúi bandalagsins í
byggingarnefnd hins nýja Sýn-
ingar- og íþróttahúss í Laugar-
dal, Baldur Jónsson, vallar-
stjóri, Jón Eiríksson, íþrótta-
iæknir, Benedikt Jakobsson,
íþróttakennari, og sr. Bragi
Friðriksson, framkvæmdastjóri
Æskulýðsráðs Reykjavíkur.
Formaður bandalagsins, Gísli
Halldórsson, setti þingið með
stuttu ávarpi. Þingforsetar
voru kjörnir Stefán G. Björns-
son og Jens Guðbjörnsson og
þingritarar Sveinn Björnsson
og Hannes Þ.' Sigurðsson.
Fyrir þinginu lá prentuð árs
skýrsla og reikningar banda-
lagsins. Flutti formaður skýrslu
stjórnarinnar fyrir síðasta
starfsár, og kemur fram af
henni, að innan bandalagsins
eru nú 22 íþróttafélög með sam-
tals 9154 félagsmenn. Aðildar-
félögin stunda 15 íþróttagrein-
ar og eru iðkendur þeirra alls
5695. Af þessum 15 greinum
eru 7 undir stjórn sérstakra
nefnda, sérráða, sem hvert hef-
ur með skipulagningu og fram-
kvæmd sinnar íþróttagreinar
að gera. Hvílir mikið starf á
sérráðunum við yfirstjórn
hinna mörgu íþróttamóta, sem
fara árlega fram í höfuðstaðn-
um.
Bandalagið rak íþróttahúsið
við Hálogaland, en það er mið-
stöð innanhússíþróttanna í höf
uðstaðnum jrfir veturinn. S. 1.
ár fóru þar fram 83 mótakvöld
í handknattleik, körfuknattleik
og glímu og fleiri greinum. Á-
horfendur að þessum mótum
voru alls 17.178, en auk starf-
semi vegna keppni, er húsið
einnig starfrækt sem leikfimi-
hús nærliggjandi skóla yfir
aaginn og æfingahús margra í-
þróttafélaganna á kvöldin og
helgum.
Á s. 1. ári voru hafnar fram-
kvæmdir við byggingu nýs full
komins Sýningar- og íþrótta-
húss í Laugardal og mun það
er fram líða tímar leysa Háloga
land af hólmi. Í.B.R. er aðili
að byggingu þess húss að 4%.
Starfsemi bandalagsins er
orðin mjög víðfeðmd, það ann-
ast úthlutun á fjárveitingu bæj
arins til íþróttafélaganna, rek-
ur gistingu yfir sumartímann
fyrir íþróttaflokka, sér um
læknisskoðun íþróttamanna,
þrekmælingar • íþróttamanna,
viðhald skautasvells svo að það
holzta sá nefnt af föstum verk-
'nr-r. A síðasta ári t'ar aðal-
viðfangsefni framkvæmda-
stjórnar bandalagsins vígsla í-
þróttaleikvangsins í Laugar-
dal 17. júní og 3.—5. júlí. Á árs
þinginu var sýnd litkvikmynd
af vígslunni 17. júní, og hafði
Vigfús Sigurgeirsson ljósmynd'
ari tekið hana.
Bandalagið starfrækir 2 sjóði,
Slysatryggingarsjóð og Fram-
kvæmdasjóð. Úr Slysatrygging
arsjóði voru á síðasta áii
greiddar bætur til 23 íþrótta-
manna að upphæð kr. 33.600,00
vegna meiðsla, sem þeir höfðu
crðið fyrir í keppni og við æf-
ingar. Framkvæmdasjóði er
ætlað það hlutverk að standa
undir hlutdeild bandalagsins í
framkvæmdum við hið nýja
Sýningar- og íþróttahús og
bækistöð fyrir starfsemi banda-
lagsins og sérráðanna.
Gjaldkeri bandalagsins,
Björn Björgvinsson, las upp
reikninga bandalagsins, íþrótta
hússins og sérsjóðanna, og gerði
grein fyrir þeim. Alls nemur
hrein eign bandalagsins nú um
kr. 1.145.000,00.
í ársskýrslu bandalagsins er
skýrt frá byggingarframkvæmd
um íþróttafélaganna í bænmn.
Fyrir 12 árum var sú stefna
upp tekin að stærstu íþrótta-
félögunum yrði úthlutað land-
rými fyrir æfingavelli og ié-
lagsheimili, en 2 þeirra höfðu
þá þegar keypt sér svæði í þeim
tilgangi. Hafa 7 félög fengið
svæði afhent og hafið fram-
kvæmdir á þeim. Á svæðum
þessum hefur verið komið upp
8 æfingavöllum, 6 félagsheim-
ilum og 2 stórum íþróttahúsum.
Á 7. svæðinu vinnur Golfklúþb
u.r Éeykjavíkur að því að koma
upp fullstórum golfvelli, 18
hola, og verður hann við Graf-
arholt. Þá vinna 2 félaganna
einnig að því að byggja nýja
skíðaskála. Alls vörðu félögin
með stuðningi hins opinbera á
árinu ca. 1.4 millj. kr. til þess-
ara byggingarframkvæmda.
Á milli funda störfuðu nefnd
ir í þeim málum, sem fyrir
þinginu lágu, og skiluðu áliti
á síðari fundinum. Gerði þing-
ið samþykktir varðandi ýms
mál, sem efst eru á baugi með-
al íþróttahreyfingarinnar nú,
og afgreiddi fjárhagsáætlun
bandalagsins fyrir yfirstand-
andi ár.
Formaður bandalagsins var
einróma kjörinn Gísli Halldórs-
son, arkitekt, en að öðru leyti
kýs Fulltrúaráð bandalagsins í
framkvæmdastjórn. Á .síðari
fundinum lýstu íélögin tilnefn-
ingum sínum í fulltrúaráðið.
Endurskoðendur voru kjörn-
Friamhald á 7. síðu.
/Jb róttafrétti r
I STUTTU MÁLI
Elliott vann Tony Blue létt í
880 yds. í Brisbane um helgina
á 1:49,4 mín. Hann hefur hlaup
ið 5 km. á 14:09,9 mín.
Alþýðublaðið — 13. apríl 1960