Alþýðublaðið - 13.04.1960, Qupperneq 14

Alþýðublaðið - 13.04.1960, Qupperneq 14
aMHBUIMHHHHHB H Síórfeldasta fistsaga heims „The Encyciopaedia of World Arlrf H M H H H H H H H H H H H H H Fyrst'a bindið (af 15) komið í Bókaverzlun ísafoldar, Þessi stórfellda, fimmtán binda alfræðibók Iistanna fjallar um málverk, högg- myndir, byggingarlist og alla í>á hluti faðra, sem skapaðir eru af manns- höndinni og listgildi hafa, hvort sem er meðal frum- þjóða eða menningarþjóða. Leitað hefur verið til frum ffagna um heim allan eftir efnivið í greinar og mynd- ir. H H H H H H H H Bókin broti. er í stóru (quarto) ■ Fyrstu fjórtán bindin eru um 6000 blaðsíður (texti eingöngu), og hverri blað- síðu er skipt í tvo dálka. I textanum eru þúsundix uppdrátta, teikninga, línu- irita. Auk þess eru 7000 blaðsíð- ur af myndum, þar af 1400 í litum. í fimmtánda bindinu er nafna- og efnisskrá yfir allt ritið. ULBRICHT Framhald af 13. síðu. is reyndi Ulbricht að fá laus- an vin sinn Hermann Axen. Samkvæmt ósk Sovétstjórnar innar afhenti Gestapo hann við rússnesku landamærin í ágúst 1939. En Ulbricht og Stalin báðu ekki um að Thálmann yrði látinn laus. Þetta mál bar ekki á góma allan þann tíma sem samningaviðræður beirra Ribbentrops og Molotovs stóðu yfir f Moskvu, þótt fangavandamálið í heild hefði verið rætt, eins og þátttak- endur í viðræðunum hafa staðfest. Stalin líkaði Thálmann sem píslarvottur — en ekki sem foringi Kommúnistaflokks Þýzkalands. Þegar hér var komið hafði Stalin þegar val- ið annan til þess að stjórna þýzkq kommúnistaflokknum, þ. e. Ulbricht. Frá Genf Framhald af 2. síðu. ríki, enda myndu flest. tólf mílna ríki hafa fært út vegna íiskveiðanna. Hins vegar væri 12 mílna landhelgi hindrun frjálsum siglingum eða gæti orðið það. Ennig hann vék að íslandi nokkrum orðum, eða svo mátti skilja það. — Hann sagði: „Okkur er áhugamál að viðurkenna sérstök vandamál ríkis, þar sem íbúarnir eru sér- staklega háðir fiskveiðum um afkomu sína, með því að tryggja nægjanlegar fram- kvæmanlegar öryggisráðstafan ir til verndar fiskstofnum þeirra“. Hádegisfundinum er lokið og fulltrúarnir tínast út úr saln- um og standa í smáhópum Tvö hinna stærstu bókaút- gáfufyrirtækja í heiminum standa að útgáfu þessa mikla rits. Ameríska stórfyrirtækið McGraw Hill sér um enska textann og Menningarsam- vinnustofnunin (CINE) í Ítalíu sér um ítölsku út- gáfuna. Fyrsta bindið kom út í nóv ember sl. og er nýlega kom- ið hingað til fslands. Gert er ráð fyrir að nýtt bindi komi á ársfjórðungs fresti. Aðeins örfá eintök til fyrir áskrifendur. Bókaverzlun ísafoldar. ■ (■■1 frammi í anddyrinu. Spurning in er sú, hvort þessi sameigin- lega tillaga Bandaríkjanna og Kanada nái tveimur þriðju at- kvæða. Eitt er víst, og það er að engin önnur tillaga gerir það. En eiga þá 12 mílna ríkin nógu mörg atkvæði til að hindra. samþykkt? Rússar taka kannski aftur sína tillögu og styðja 16 ríkja tllöguna, sem er í rauninni hin sama og Sov- éttillagan, en dugar það til? Hvað segir utanríkisráðherra íslands um málið? Guðmundur í. Guðmundsson utanríkisráð- herra er önnum kafinn. Það er fundur hjá íslenzku nefndinni. Hann endurtekúr aðeins, að íslendingar muni berjast fyrir staðfestingu á 12 mílna fisk- veiðilögsögu og muni beita sér af kappi gegn öllu, — sem skemmra fer. „Tólf mílurnar eru svo almennar orðnar að ég teldi það spor aftur á bak, ef einhver tilfaga yrði samþykkt, sem takmarkaði það svæði“, — segir ráðherrann. Áð sjálfsögðu hafa allir ræðu menn lagt á það mikla áherzlu í ræðum sínum, hver höfuðnauð syn það sé, að þessi ráðstefna nái samkomulagi og bæti úr þeim glundroða, sem nú sé í þessum málum öllum. Hitt er svo annað mál, hvort öllum er það jafnhjartfólgið og þeir vilja vera láta. Engin niðurstaða er líka niðurstaða. Klukkan er að ganga sex, — þegar fundi lýkur og fulltrúarn ir taka saman skjöl sín og rölta út úr fundarsalnum, sumir til þess að byrja á nýjan leik á nefndarfundi með fulltrúum úr einhverjum öðrum hópi, Suð- ur-Ameríkuríkin voru að kalla til ráðstefnu, en hins vegar eru Japanir með síðdegisboð, — það er ævinlega einhver sendinefndin með þess háttar boð, sem ævinlega eru líka vel sótt, því að þar heyrir maður allar kviksögurnar um það, — hvað bessi og hinn ætli að gera, ef þessir geri þetta. Eldri full- trúarnir sumir skreppa á Gent- ilhomme, einn af tíu beztu mat stöðum veraldar að því er ,,Life“ sagði einhvern tíma ekki alls fyrir löngu, en ritarar þeirra ungir eru hneigðari fyr- ir Cave du Hot Club, þar er jazz í fullum gangi. Það er far- ið að rökkva og ljósaröðin kom- in á vatnsbakkana, þar sem Rón rennur úr Genfarvatninu, tær eins og Sogið úr Þingvalla- vatni. Ljósalínur marka hvelf- inguna á gamla Casino, verzl- unargöturnar ljóma í öllum regnboganslitum, Möwenpick- veitingahúsið auglýsir af kappi danskan mat, og þar var Bodil Begtrup um daginn að opna danska matarviku, en á næsta leiti Ijóma auglýsingarnar um svissnesku úrin, öll þessi kunnu nöfn og víðfrægu, og alls staðar eru úr og klukkur á boðstólum, furðulega margar gerðir. — Minnsta úr veraldar kostar 94 þúsund franka, — þá veit mað- ur það. Hér er annars óþarfi að eiga úr, á hverju götuhorni og í öðrum hverjum búðarglugga má sjá hvað tímanum líður. ‘Virðulegir fulltrúar sjórétt- arráðstefnunnar fá sér kvöld- göngu s'umir hverjir, aðrir sitja við að undirbúa ræður sín^ ar fyrir morgundaginn eða reyna að ná tali af ráðherrum heima f.vrri til að fá fyrirmæli um afstöðuna, siftnir eru á at- kvæðaveiðum en aðrir að reyna að gleyma þrefinu dálitla stund og nú er helgin fram undan og tveggja daga hlé. miðvikudagur 984 tonn í 171 róðri STOKKSEYRI, 6. apríl. — Afli þriggja báta, sem héðan ganga, var sem hér segir í gær, miðað við óslægt: 1. Hólmsteinn II. 409 tonn í 63 róðrum. 2. Hásteinn II. 311 tonn í 56 róðrum. 3. Hásteinn 264 tonn í 52 róðrum. Samtals 984 tonn í 171 róðri. Afli var sæmilegur í marz, en hefur verið tregur síðan um síðustu mánaðamót. — H.J. Veðrið: Stinningskaldi; skýjað. 12.50-14.15 Við vinnuna. 18.30 Útvarpssaga barnanna. 20.30 Daglegt mál. — 20.35 Erindi: Fjölnismaður- inn Brynjólfur Pétursson (Aðal geir Kristjánss. cand. mag.). 21 Frá tónleikum í útvarpssal. 21.30 „Ekið fyrir stap ann.“ 22.10 Pass íusálmur (49). 22.20 íþróttir (Sig. Sigurðss.) 22.35 Á léttum strengjum. Ýmis lög sungin og leikin. Eyrramálið. Inn- m>i jji anlandsflug: í lag er áætlað að fljúga til Akur- ^^Œeyrar,- Húsavík- urj Isafjarðar og Vestm.eyja. Á morgun er á- ætlað að fljúga til Akureyrar (2 ferðir), Bíldudals, Egils- staða, ísafjarðar, Kópaskers, Patreksfjarðar, Vestmanna- eyja og Þórshafnar. Loftleiðir. Leifur Eiríksson er vænt- anlegur kl. 6.45 frá New York. Fer til Amsterdam og Luxemburg kl. 8. Snorri Sturluson er væntanlegur kl. 23 frá Stavanger. Fer til New York kl. 0.30. Ríkisskip. Hekla fer frá Rvík kl. 18 í dag vestur um lnd til Akureyrar. Esja fór frá Rvík í gær austur um land til Akureyrar. Herðubreið er á Austfjörðum á suðurleið. Skjaldbreið er á Húnaflóa á suðurleið. Þyrill fór frá Rvík í gær til Eyjafjarðarhafna. Herjólfur fer frá Rvík kl. 21 í kvöld til Vestmannaeyja og Hornafjarðar. Skipadeild SÍS. Hvassafell er á Akureyri. Arnarfell fer í dag frá Rott- erdam til Rostock. Jökulfell er í Rvík. Dísarfell er á Vopnafirði. Litlafell er í olíu- flutningum í Faxaflóa. Helga fell fer í dag frá Þorlákshöfn til Sas van Gent. Hamrafell fór 9. þ. m. frá Hafnarfirði til Batum. Hafskip. Laxá er í Stettin. Eimskip. Dettifoss fór frá Bíldudal í gær til Súgandafjarðar, ísa- fjarðar, Hofsóss og Borgar- fjarðar eystra og þaðan til Rostock, Halden og Gauta- borgar. Fjallfoss fer frá Rott- erdam á morgun til Antwerp en og Hamborgar. Goðafoss hefur væntanlega farið frá Khöfn 11/4 til Rvíkur. Gull- foss fór frá Hamborg 11/4 til Helsingborgar og Khafnar. Lagarfoss kom til New York 10/4, fer þaðan um 20/4 til Rvíkur. Reykjafoss kom til Nörresundby 11/4, fer þaðan til Odense og Helsingborgar. Selfoss kom til Rvíkur 8/4 frá Gautaborg. Tröllafoss kom til Rvíkur 9/4 frá New, York. Tungufoss fer frá Hafn arfirði í dag til Reykjavíkur. Nýkomnir Drengja- og telpnaskór N y T T N Y T T Dömu- og karlmannaskór með nælonsólum. Hagstætt verð Skóverzl. Péturs Andréssonar Laugavegi 12 Framnesvegi 2 J/jj| 13. apríl 1960 — Álþýðubláðið

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.