Fréttablaðið - 03.05.2001, Síða 6

Fréttablaðið - 03.05.2001, Síða 6
STUTT £ FRÉTTABLAÐIÐ 3.maí 2001 FIMMTUDAGUR Landssíminn hefur lækkað verð tii viðskiptavina sinna í almennri GSM-áskrift á dagtaxta um allt að 27%, að því er segir í fréttatilkynn- ingu. Einnig lækkar verð um 25% á dagtaxta í frístundaáskrift og GSM- frelsi. Sama verð verður í dagtaxta og kvöldtaxta í almennri áskrift, 11 kr. mínútan. Áður var dagtaxtinn 15 kr. í frístundaáskrift og frelsi lækk- ar mínutan úr 20 kr. í 15 kr. Jafn- framt hefst kvöldtaxti kl. 19 í staö kl. 18 eins og verið hefur. Sýslumanni Skagafjarðar voru í gær afhentar 1.067 undirskriftir þar sem lýst er andstöðu við hug- myndir um hækkun aldurstakmarka á almennum dansleikjum í Skaga- firði úr 16 árum í 18. Á wvvw.skaga- fjordur.net segir að stefnt sé að því að afhenda dómsmálaráðherra ein- nig undirskriftirnar. RÉTTTRÚAÐIR GYÐINGAR 3,5 milljónir gyðinga bjuggu í Póllandi fyrir heimsstyrjöldina. 3 milljónir þeirra voru drepnir í helförinni. Biskupinn yfir Póllandi: Biðst afsökunar á fjöldamorðum á gyðingum vflRsiÁ. ap Biskup Póllands mun biðj- ast formlega afsökunar á fjöldamorð- um á gyðingum í Póllandi árið 1941. Þetta kom fram í máli talsmanns kaþ- ólsku kirkjunnar 1 Póllandi í gær og sagði hann að biskupinn muni bera upp afsökunarbeiðnina við trúarat- höfn í mánaðarlok. Kaþólska kirkjan hefur sætt ámæli fyrir að kynda und- ir gyðingahatur sem leitt hafi til fjöl- damorða, t.d. þess í Jedwabne 10. júlí 1941. í kjölfar útgáfa bókarinnar „Ná- grannar" sem kom út i Póllandi í fyrra og fjallar um hlut Pólverja í út- rýmingu gyðinga þar í landi, hófst mikil umræða um viðhorf Pólverja í heimsstyrjöldinni síðari. Hún kom vió kauninn á mörgum Pólverjum sem hefur verið kennt að þeir hafi verið fórnarlömb nasista, aldrei sam- verkamenn. Biskupinn mun biðjast afsökunar við athöfn sem fram fer í dýrlinga- kirkjunni í Varsjá. Hún er staðsett þar sem mörkin að gyðingagettóinu í Varsjá lágu á tímum heimsstyrjald- arinnar. ■ Fróði stokkar upp: Þrír nýir fjölmiðlar Á fundi starfsmanna Fróða í gær var tilkynnt um breyt- ingar á ritstjórn nokkurra tímarita sem fyrirtækið gefur út. Jóhanna Harðardóttir og Hrund Hauksdóttir sögðu upp störfum sem ritstjórar Vikunnar og við tekur Elín Alberts- dóttir, sem áður ritstýrði Hús og hí- býli. Það tímarit fer undir ritstjórn Lóu Aldísardóttur blaðamanns og Hrund mun ritstýra Bleiku og bláu í stað Davíðs Þórs Jónssonar. Nokkurrar óánægju hefur gætt meðal starfsfólks Fróða með hvað litlu fé hefur verið varið í markaðs- sókn og kynningu á útgáfunni. Þetta ritstjórar vóg m.a. þungt þegar ritstjórar Vik- unnar sögðu upp störfum fyrir nokkru. Á fundinum kom fram í máli Elínar Albertsdóttur að meira fé yrði lagt í þennan þátt starfsins þegar hún tæki við. Nokkur kurr er meðal blaðamanna með að þessi ákvörðun skuli tekin nú með nýjum ritstjóra. Óvissa er um hverjir munu fylgja El- ínu á nýja ritstjórn Vikunnar. Ekki kom fram á fundinum hvað Jóhanna Harðardóttir muni taka sér fyrir hendur en í samtali við Frétta- blaðið sagðist Davíð Þór Jónsson hefja störf hjá Leikfélagi íslands í byrjun júlí. ■ KURR í STARFSMÖNNUM Óánægju hefur gætt meðal blaðamanna með hvað litlu fé hefur verið veitt I mark- aðsókn tímaritanna ÞRJÚ EFSTU FYRIRTÆKIN HLUTU VIÐURKENNINGU Mælingar eru staðlaðar á milli fyrirtækja, atvinnugreina og þjóða til þess að geta verið samanburðahæfar. Neytendur ekki jafnánægðir og í fyrra Islenska ánægjuvogin 2000 kynnt í gær. Veittar viðurkenningar til þriggja fyrirtækja í nokkrum greinum. Mest breyting hjá viðskiptavinum farsímafyrirtækja. FYRIRTÆKJAKÖNNUN NÍðUl'StÖÖUr mæl- inga íslensku ánægjuvogarinnar 2000 voru kynntar á fundi í gær. Tekið var slembiúrtak úr þjóðskrá af öllu landinu. í ljós kom að ánæg- ja viðskiptavina í atvinnugreinun- um fimm, sem athugaðar voru, hef- ur minnkað frá því á árinu á undan en skoðaðir voru bankar, kjötálegg, farsímar, gosdrykkir og tryggingar. Mest var lækkunin hjá farsímafyr- irtækjum sem einnig voru í neðsta sæti að meðaltali hjá þjóðunum sex. Það fyrirtæki sem best kom út í mælingum voru Sparisjóðirnir með 77 stig af 100, Síld og fiskur (Ali) var í öðru sæti með 76,6 stig og í þriðja, og jöfn að stigum voru, Öl- gerðin Egill Skallagrímsson og Bún- aðarbankinn með 74,8 stig. Þess má geta að Sparisjóðirnir voru einnig í 1. sæti í mælíngum árinu á undan. Athygli vekur að af þjóðunum 6 sem mældu ánægjuvog í ár var ísland í LÆKKUN Á ÁNÆGJUVOGINNI 1999 2QOO ■ Heildin 74.8 stig 71.73 stie ■ Trysgingar 70.4 stig 67,2 stig ■ Farsímar 70.7 stig 66.2 stig 3. sæti en í 1. sæti af 11 löndum árið 1999. Aðspurður um ástæður þessarar lækkunar sagði Þorkell Karlsson hjá Gallup nauðsynlegt að afla meiri upplýsinga áður en hægt væri að svara því. „Á þessu stigi getum við ekki sagt hvað veldur en ljóst er að allar atvinnugreinar hafa lækkað í mælingum og einnig sum fyrirtækj- anna. Skýringanna getur verið að finna hjá fyrirtækjunum sjálfum eða að menn sáu að efnahagslífið var á niðurleið. Menn verða að passa sig á því að grípa ekki til ódýrra skýringa á orsökinni." ■ —♦— Listaverkaþjófnaður: Gæsluvarð- hald staðfest hæstirétfur. Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðs- dóms Reykjavíkur yfir manni sem grunaður er um listaverkaþjófnað úr listagalleríinu Svarthömrum við Skólavörðustíg þann 27. apríl. Maðurinn var handtekinn á Amt- mannsstíg skömmu eftir innbrotið, með 45 verk undir handleggnum, samtals um 1,3 m.kr. virði. Hann kvaðst hafa fundið verkin á leið sinni í vinnuna. Lögreglan er enn að rannsaka inn- brotið en lögregla telur að maðurinn hafi ekki verið einn af verki, að því er fram kemur í úrskurðinum. Enn vantar 37 verk, að verðmæti um kr. 3.630.000. Manninum er gert að sitja í gæsluvarðhaldi til morguns. ■ Indónesíuforseti reynir að bæta stöðu sína: Innihaldslítið ávarp í sjónvarpi JAKARTA. ap Abdurrahman Wahid Indónesíuforseti flutti stutta ræðu í sjónvarpi á miðvikudag, innan tvegg- ja sólarhringa frá því þing landsins ávítti hann öðru sinni vegna spilling- armála. Svo virðist sem hann hafi ætlað að fá almenning á sitt band með því að koma fram í sjónvarpinu, en í fimm mínútna ræðu sinni minnt- ist hann ekkert á ásakanir um spill- ingu og vanhæfni né heldur æ hávær- ari kröfur um að hann segi af sér. í ræðunni höfðaði hann til þjóð- erniskenndar Indónesa ásamt því að gefa almenn loforð um að bæta störf ríkisstjórnarinnar og vinna að lýð- ræðisumbótum. Andstæðingar hans á þingi brugðust ókvæða við og sögðu ávarpið koma allt of seint og vera of innihaldslítið. Með því að samþykkja ávítur öðru sinni á forsetann hefur þingið nú möguleika á að kæra hann til embættismissis. ■ VARAFORSETINN OG FORSETINN Þau Megawati Sukarnoputri og Abdurrahman Wahid sáust saman opinberlega i gær í fyrs- ta sinn frá því Wahid var ávíttur í annað sinn af þinginu vegna spillingarmála. FYRSTA SKÓFLUSTUNGAN Væntanlegir íbúar námsmannaíbúðanna, sem nú eru nemendur í FG og Garðaskóla tóku fyrstu skóflustunguna að viðstaddri Ásdísi Höllu Bragadóttur, bæjarstjóra. Garðabær: Blokk fyrir námsmenn húsnæðismál Framkvæmdir eru að hefjast við 14 íbúða fjölbýlishús með námsmannaíbúðum í Garðabæ. Nem- endur í Fjölbrautarskóla Garðabæjar og Garðaskóla tóku fyrstu skóflu- stunguna að húsinu í gær á lóðinni Arnarási 9-11 í nýja hverfinu í Hraunsholti. Þeir munu væntanlega verða í hópi íbúa hússins í framtíðinni en gert er ráð fyrir að Garðbæingar hafi forgang að húsnæðinu. Þar í bæ hef- ur verið skortur á smærri íbúðum og leiguhúsnæði. Garðabær kostar bygginguna en Félagsstofnun stúdenta mun sjá um leigu og rekstur samkvæmt samningi við bæinn. Fyrirtækið Matthías ehf. byggir húsiö. ■ Grétar Mar Jónsson: Skipað að kasta fiski brottkast ..Bæði ég og aðrir skipstjór- ar hafa fengið fyrirskipun um að koma einungis með ákveðna stærð af fiski í land. Þess vegna segi ég að út- gerðarmenn beri ábyrgð á brott- kastinu," sagði Grétar Mar Jónsson, forseti Farmanna- og fiskimannasam- bands fslands og skipstjóri, um fréttir af brott- kasti fiskjar á ís- landsmiðum. Hann segir að skipstjórar fái á stundum fyrir- skipanir um að koma einungis með fisk sem er þyngri en fimm kíló, þyngri en átta kíló eða ekki dauðblóðgaður, svo nokkur dæmi séu nefnd. „Þegar þetta er sagt er okkur bent á hátt verð á kvóta og um leið að ef verð fyrir aflann verði ekki eins og það gerist hæst hverju sinni þá sé óvissa um áframhaldandi útgerð,“ sagði Grétar Mar. Hann segir marga skipstjóra vera neydda til að fara eft- ir þessum boðum útgerðarmanna. ■ VÍSAR Á ÚTGERÐ- INA Útgerðarmenn bera ábyrgðina á brott- kastinu, segir forseti Farmanna- og fiski- mannasambandsins. Eldsupptök óljós: Yfirheyrðu hótelgest LÖCREGLURANNSÓKN. Ekki er enn ljóst hver kveikti í gardínum í Súlnasal Hótels Sögu aðfaranótt 1. maí. Lögreglan yfirheyrði einn mann vegna málsins, erlendan gest á hótel- inu, en hann var látinn laus og er nú farinn úr landi, samkvæmt upplýs- ingum blaðsins. Eldurinn kom upp í gardínum Súlnasalar á nokkrum stað samtímis. Næturvörður þótti sýna snarræði með því að slökkva eldinn áður en slökkvilið kom á staðinn. Áfram er unnið að rannsókn máls- ins. ■

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.