Fréttablaðið - 03.05.2001, Page 8

Fréttablaðið - 03.05.2001, Page 8
8 FRÉTTABLAÐIÐ 3. maí 2001 FIMMTUDAGUR FRÉTTABLAÐIÐ Útgáfufélag: Fréttablaðið ehf. Útgáfustjóri: Eyjólfur Sveinsson Ritstjóri: Einar Karl Haraldsson Fréttastjóri: Pétur Cunnarsson Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: Þverholti 9, 105 Reykjavík Aðalsími: 515 75 00 Simbréf á fréttadeild: 515 75 06 Rafpóstur: ritstjórn@frettabladid.is Slmbréf á auglýsingadeild: 515 75 16 Rafpóstur: auglysingar@frettabladid.is Setning og umbrot: Fréttablaðið ehf. Plötugerð: iP-prentþjónustan ehf. Prentun: Isafoldarprentsmiðja hf. Dreifing: Póstflutningar ehf. Fréttaþjónusta á Netinu: Vlsir.is Fréttablaðinu er dreift ókeypis til allra heimila á höf- uðborgarsvæðinu. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar; kr. 1.100 á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins I stafrænu formi og I gagnabönkum án endurgjalds. SKOÐANIR HLiÓÐRITANIR BLAÐAMANNA Blaðamannafélagið telur að nýsamþykkt breyting á fjarskiptalögum sé ólög. Samtal hljóðritað Ávarp frá stjórn blaðamannafélagsins: Reykjavík í apríí 2001 Góðir íslendingar! Blaðamannafélag íslands gerir kunnugt að þegar rætt er við blaða- menn i síma megi vænta þess að sam- talið sé hljóðritað án frekari tilkynn- ingar. Þessi yfirlýsing er gefin út með vísun í nýsamþykktar breytingar Al- þingis á fjarskiptalögum og álit sam- gönguráðherra og samgöngunefndar um sérstakar heimildir blaðamanna í þessu efni. Þess skal getið að blaðamenn hafa óbeðið öðlast framangreindan rétt umfram aðra óbreytta þegna þessa lands sem er skylt að vara einstaka viðmælendur sína við því fyrirfram að þeir hyggist hljóðrita símtal sitt. Blaðamannafélagið telur framan-. greind lög vera ólög og beitti sér ár- angurslaust gegn þeim. Það er sjálfsagður réttur hvers og eins að taka upp eigin samtöl með sama hætti og það er sjálfsagður réttur hvers og eins að skrifa niður eigin samtöl. Stjórn BÍ furðar sig á því að Al- þingi íslendinga skuli hafa séð sig knúið til að leiða í lög ákvæði sem eiga sér ekki hliðstæðu í lögum á Vesturlöndum svo vitað sé. ■ Enginn kvóti á trillur Ályktun frá Alþjóðasamtökum strandveiðimanna: Fundur í stjórn Alþjóðasamtaka strandveiðimanna og fiskverkafólks, sem haldinn var í Quebec í Kanada dagana 18.-23. apríl sl., hefur sent blaðinu ályktun þar sem hvatt er til þess að íslenska kvótakerfið verði ekki látið ná yfir smábáta og strand- veiðiflotann. Stjórnarfundurinn telur að fram- seljanlegir kvótar á fiskveiðar smá- báta undir 6 tonnum séu í andstöðu við Ríó samþykktina um umhverfis- mál og Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna. í stað þess eru íslensk stjórnvöld hvött tií þess að styrkja smábátáútgerð og þau byggðarlög sem á henni reisa afkomu sína. Þaðan séu stundaðar vistvænar veiðar sem skili heilbrigðum afurðum. Þess vegna beri að styrkja slík samfélög sem allsstaðar í heiminum eigi undir högg að sækja. ■ fyrir að safna frímerkjum", sagði hann og dæsti. Og fleiri ættu áreið- anlega að fara að dæmi hans og huga vel að geymslu vopna á heimilum sínum. ■ „Fíkniefnaheimurinn seilist til vopna manna Gengjastríðið í Breiðholti mun eiga rætur sínar í fíkniefnaheimin- um. Það er af lögreglu skilgreint sem tilraun til manndráps og þrír menn sitja í gæsluvarðhaldi vegna rann- sóknarinnar. Það er undarleg orða- notkun þetta með fíkniefnaheiminn. Er ekki eins og verið sé að gefa í skyn að sá heimur sé aðskilinn heimi okk- ar venjulegra íslendinga. En það er fjarri sanni því á öðrum enda hans „Ó, að ég hefði eru neytendurnir, frekar fengið markaðurinn sem dellu fyrir frí- fíkniefnasalarnir merkjum." gera út á. Á þeim markaði hljóta þau að vera Pétur og EINAR KARL HARALDSSON heimsækir forsjálan vopnasafnara Páll og Sigga og Gunna. Nágrannar okkar og vinir, börn og barnabörn í fjölskyldum sem við þekkjum. Mikill barnaskapur var það af stjórnmálamönnum sem lýstu yfir því markmiði að íslandi ætti að vera orðið fíkniefnalaust árið 2000. Nú á árinu 2001 veit maður ekki hvort fíkniefnastríðið er að tapast endanlega eða hvort gengja- stríð og mikið magn fíknefna, sem lagt er hald á, eru vís- bendingar um að fíkniefnasalar séu orðnir aðþrengdir. Ein hlið þessara mála er beiting skotvopna. í gær var ég í heimsókn hjá manni sem sýndi mér inn í skotvopnaskáp sinn. Það var rammgerður stálskápur með sterkri læsingu sem stóð óaðgengilegur í geymsluhorni. Þarna voru bæði safngripir úr styrjöldum og brúksvopn, allt með tilskyldum vottorðum og leyfum. Vegna frétta af innbrotum í hús og auknu vopnaglamri í „fíkni- efnaheiminum" var vopna- safnarinn að hugsa um að grafa skápinn í gólf. „Ég vildi að ég hefði frekar fengið dellu Hvað segja þingmennirnir: Á ríkið að gefa eftir af sínum hlut af bensínverðinu? Ríkid minnki sinn hlut „Ég hef fyrir löngu síðan velt fyrir mér þessum hlut ríkis- ins í eldsneytisverðinu og það er löngu kominn tími til, sérstak- lega í ljósi þessa háa verðs, að rík- ið minnki sinn hlut. Hins vegar má líta á hlut ríkisins sem ákveðinn um- hverfisskatt. En á meðan það er ekki staðfest og sett upp á þann veg, finnst mér koma til greina að ríkið lækki sinn hlut, þar sem bifreiðin er það mikil nauðsyn fyrir almenn- ing í þessu landi.“ ■ GÍSLl EINARSSON Bifreiðin er nauðsyn. Hjálpar vetninu Ef ríkið gerir það með því að greiða niður eldsneyti eða minnka sína skattlagningu, þá verður að taka það frá einhverju öðru. Viljum við draga úr nýlagningu vega, við- haldi vega eða taka af öðrum mála- flokkum? Ég efast um að það sé sam- staða til þess. Ljósu punkt- arnir, sem ég sé í þessu, er að hækkun eldsneytisverðs á heimsmarkaði mun enn fremur ýta undir þróunar- starf á öðrum þáttum - svo sem eins og vetni. Svo vill til að það er mikið að gerast í því hér á landi. Þetta ýtir undir að þjóðir heimsins taki þennan orkubera upp. Þar með verðum við sjálfbær hvað varðar eldsneyti á fiski- skip og bílaflota. Þá erum við ekki háð þessum duttlungum OPEC-ríkjanna.“ ■ HJÁLMAR ÁRNASON Efast um að samstaða sé til lækkunar Ekki hlaupa upp til handa ogfóta „Nei, það þýðir ekkert að stilla upp þannig markaðssetningu. Við erum með ákveðinn far- veg í þessu og það þýðir ekkert að hlaupa til handa og fóta þó komi sveiflur, við vonum að þær gangi til baka fyrr en seinna. Það eru engir stjórnunar- þættir að dingla eftir eðli markað- arins“ ■ ÁRNI JOHNSEN Engir stjórnun- arþættir að dingla eftir eðli markaðarins. orðréttT Mikil áhrif á kjörfólksins „Mér finnst það fyllilega koma til greina. Þetta er mik- il hækkun sem hefur aðrar afleiðingar. Neysluvísi- talan hækkar og því mun þetta hafa mikil áhrif á kjör fólks. Þess vegna er eðlilegt að ríkið komi í veg fyrir að öll þessi h æ k k u n komi fram. Ég spyr mig líka hvort ol- íufélögin hafi verið að tapa svo miklu pen- ingum á undanförnum árum að þau geti ekki tekið hluta á sig.“ ■ GUÐJÓN A. KRISTJÁNS- SON Hafa olíufélögín verið að tapa svo miklu pen- ingum að þau geti ekki tekið hluta á sig. Mengaðasti staður í heimi „í byrjun tíunda áratugarins beindist athygli umheimsins að borg- inni Chelyabinsk í Úralfjöllum, eftir að hópur pólskra kvikmyndagerða- manna sótti hana heim. í grennd við Chelyabinsk starfræktu sovésk stjórnvöld leynilega kjarnorkutil- raunastöð og plútóníumverksmiðju. Um árabil var allt affallsvatn frá þessari starfsemi látið renna beint í næstu á, sem jafnframt var vatnsból borgarbúa. Sú geislun sem íbúarnir urðu fyrir á þessu tímabili var marg- föld á við það sem fólkið í Chernobyl mátti síðar þola. Árið 1957 varð sprenging í úr- gangsgámi tilraunastöðvarinnar með þeim afleiðingum að geisla- virkt ský, sem teygði sig kílómetra upp í loftið dreifðist yfir þrjú ná- læg héruð, þar sem bjuggu alls um 250.000 manns. Sovésk stjórnvöld sáu þó ekki ástæðu til að rýma svæðið. Þriðja stóra áfallið reið yfir íbúa Chelyabinsk undir lok sjöunda ára- tugarins, þegar Karachay-vatn, sem notað hafði verið til að losa geislavirkan úrgang, tók að þorna upp. Geislavirkur sandur af botni Hvati til aó ganga „Meðan verðið er svona hátt þarf hinn almenni borgari að fara sparlega með og því er þetta hvati til að ganga meira eða taka strætó hér á höfuð- borgarsvæð- inu. Ekki eru allir svo vel settir að þeir geti valið. Þá er mér hugs- að til flutn- ingabíla og annars at- vinnuakst- urs. Það er sem sagt ekki hægt að spara allsstað- ar. Ef þetta verð stendur lengi þá verða áhrifin eflaust mikil, en almennt tel ég ekki rétt að ríkið lækki sínar álög- ur. Eins hef ég hugsað til samráðs olíufélganna. Ég á erfitt með að trúa að birgða- staða þeirra sé nákvæmlega eins og því hafi verið sama þörfin hjá þeim öllum til sömu hækkunar. Ég held að þetta sé dæmi um samráð.“ ÞURÍÐUR BACKMAN Ríkið lækki ekki sínar álögur. vatnsins barst með vindum yfir svæði þar sem búsett er um hálfri milljón manna. Enn í dag eru áhrif geislunarinnar slík, að talið er að það eitt að standa óvarinn á bökk- um stöðuvatnsins í um klukkustund sé hverjum manni banvænt. Það segir sitt um hörmungarnar á svæðinu, að árið 1993 voru meðal- lífslíkur kvenna í Chelyabinsk 47 ár, en 72 ár á landsvísu. Lífslíkur karla voru ekki nema 45 ár.“ Af heimasíðu Samtaka herstöðvaandstæðinga: http://wwwfridur.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.