Fréttablaðið - 03.05.2001, Page 10

Fréttablaðið - 03.05.2001, Page 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 3. maí 2001 FIMMTUDAGUR | INNLENT | Sólveig Pétursdóttir, dómsmálaráð- herra, heimsótti í gær Neyðarmót- töku vegna nauðgunar á slysa- og bráða- deild Landspítala-háskólasjúkrahúss í Fossvogi til að fræðast um starfsemina og fara yfir stöðu og úrræði í kynferðis- brotarnálu'm. í fríðu föruneyti ráðherr- ans voru t.d. fulltrúi ríkissaksóknara, fulltrúi ríkislögreglustjóra, formaður nefndar um könnun á viðurlögum við of- beldisbrotum og formaður nefndar til að sporna við vændi og kynferðislegri mis- notkun, auk fulltrúa frá lögreglustjóran- um í Reykjavík. Fyrir móttökunefnd fóru yfirlæknir og umsjónarhjúkrunar- fræðingur neyðarmóttökunnar. —♦— Mínútuverð úr GSM áskrift og NMT símkerfinu við hringingar í 118 og 1818 hefur verið hækkað úr 49,90 í 60 kr. Upphafsgjald verður sem fyrr 27 kr. ÖRYGGISGÆSLA í ATHUGUN Hver vísar á annan þegar kemur að skipu- lagi öryggismála Hróarskelduhátíðarinnar. Hróarskelduhátíð 2001: • • Oryggisgæsla ekki undir stjórn hróarskelduhátIð Ýmsir danskir stjórnmálamenn gagnrýna harðlega að ekki hafi verið gengið frá skipu- lagi öryggisgæslu á væntanlegri Hróarskelduhátíð að því er danska dagblaðið Berlingske Tidende grein- ir frá. Þeir telja að vegna atburðanna á síðasta ári, þegar níu ungmenni lét- ust á tónleikum, þurfi að hafa sérlega góða stjórn á öryggisgæslunni í ár. Gagnrýnt er að lögreglunni í Hró- arskeldu hafi ekki enn verið afhent skýrsla yfir skipulag hennar í ár. Leif Skov, skipuleggjandi Hróarskelduhá- tíðarinnar, segir hins vegar að hann bíði eftir leiðsögn frá lögreglunni um hvað þeir vilji fá. Lögreglan segir hins vegar að þeir muni ekkert aðhaf- ast fyrr en þeir hafi eitthvað í hönd- unum frá hátíðinni. Hvorki Leif Skov né yfirmaður öryggisgæslunnar í ár.Troels Rydahl, hafa gefið upplýsingar um undirbún- ing gæslumanna hátíðarinnar í ár en áður hefur komið fram að þeir hafi oft verið drukknir við störf. Þing- maður Kristilegra jafnaðarmanna Ebbe Kalnæs, mun beina fyrirspurn til ráðherra á danska þinginu í dag vegna undirbúnings gæslumanna sem hann telur verið ónóga. ■ —*— Hafnarfjörður: Samið um Aslandsskóla crunnskóli Hafnarfjarðarbær hefur samið við íslensku menntasamtökin um kennslu í Áslandsskóla. Búist er við að samningurinn verði lagður fyrir bæjarráð til staðfestingar á fundi þess í dag, fimmtudag. Kosjn- aður bæjarsjóðs vegna hvers nem- enda á næsta skólaári í Áslandsskóla er talin nema um 368 þúsund krón- um. Það er töluvert meira en en í öðr- um skólum bæjarins. Talið er einsýnt að þeir muni krefjast að fá auknar fjárveitingar með hverjum nemenda. Tryggvi Harðarson bæjarfulltrúi Samfylkingar segir að annað sé mis- munun. ■ Verðhækkun: Geisladiskar hækka um 9% geisladiskar Erlendir geisladiskar hafa hækkað um 9% í heildsölu frá Skífunni. Viðbúið er að samskonar hækkun verði á innlendum diskum sem koma út í ár en smásöluálagning á diskum er frjáls. Þessi verðhækkun hefur þegar skilað sér í hærra smá- söluverði. Fyrir vikið hefur útsölu- verð á nýjum geisladiskum hækkað úr 2.199 krónum í 2.399 krónur. Stað- hæft er að þessi verðhækkun sé sú fyrsta síðan 1999. Engu að síður er líklegt að hækkunin muni hafa ein- hver áhrif á kaupgetu fólks sem muni versla eitthvað minna af geisladisk- um en það ella hefði gert. Aðalsteinn Magnússon sölu- og markaðsstjóri Skífunar segir að það sé einkum fjórir þættir sem hafa orskað þessa verðhækkun í heild- sölu hjá þeim. Fyrir það fyrsta hefur breska pundið hækkað um 20%, doll- arinn um 30%, laun um 13% og verð- bólga um 10%. Hann segir að sala á geisladiskum hafi farið rólega af stað í ársbyrjun. Salan hefur hins- vegar verið að aukast með hækkandi sól. ■ HÆKKUN GENGIS OG LAUNA Verð á nýjum geisladiskum hefur hækkað um 200 krónur í smásölu, eða úr 2.199 I 2.399 krónur. Assad Sýrlandsforseti: Sharon vill stríð en Sýr- land ekla mið-austurlönp. Ariel Sharon forsæt- isráðherra ísraels „hefur gaman af að drepa“ og vill þröngva þessum heimshluta út í stríð, en Sýrland ætl- ar ekki að láta draga sig út í átök, segir Bashar Assad Sýrlandsforseti í viðtali við spænska dagblaðið E1 Pais. Opinber fréttastofa í Sýrlandi sendi texta viðtalsins frá sér og hann var birtur í sýrlenskum fjölmiðlum á miðvikudag, sama dag og Assad held- ur í tveggja daga heimsókn til Spánar þar sem hann ætlar að hitta bæði Jó- hann Karl konung og Jose Maria Azn- ar forsætisráðherra að máli. ■ SEÐLABANKI fSLANDS: Bankinn hefur ekki keypt krónur til að styrkja gengið eftir að stefna hans um verðbólguviðmið tók gildi. 8eðlabanki spáir vaxandi verðbólgu Seðlabankinn að fínpússa nýja verðbólguspá. Engar ákvarðanir hafa verið teknar um viðbrögð við vaxandi verðbólgu. peningamál Seðlabanki íslands mun birta nýja verðbólguspá á morgun, föstudag. Eiríkur Guðnason Seðla- bankastjóri segist óttast að þar geti að líta spá um meiri verðbólgu frá upphafi til loka ársins en var í síð- ustu spá bankans sem birt var fyrir þremur mánuðum. Þá spáði bankinn því að verðbólga á ársgrundvelli yrði 4,5%. Eiríkur segir að engar ákvarðanir hafi verið teknar um að- gerðir af hálfu bankans vegna vax- andi verðbólgu í ljósi nýrrar stefnu hans um verðbólguviðmið. Afleið- ing af þeirri stefnu hefur m.a. birst í því að bankinn hefur ekki keypt krónur til að styrkja gengið þrátt fyrir að gengislækkun krónunnar hafi áhrif á verðbólgustigið. Þau stjórntæki sem Seðlabank- inn hefur til að reyna að slá á verð- bólguna eru einkum þrjú. Eiríkur segir að hann geti gripið til aðgerða til að auka aðhald í peningamálum t.d. með hækkun vaxta. í öðru lagi gæti hann keypt krónur á gjaldeyr- ismarkaði til að styrkja krónuna og í þriðja lagi beitt fortölum. Hann bendir m.a. á að enn sé mikið aðhald fólgið í peningamálum með háum vöxtum. Þá hefur bankinn mælst eindregið til þess við bankar fari sér hægar í útlánum. Eiríkur segir að það hafi skilað þeim árangri að vöxtur útlána sé mun hægari en áður. ■ Ferðamenn varaðir við: Lögregla útrýmir hundum brisbane. ap. „Þeir verða drepnir á mannúðlegan hátt; en þeir verða drepnir," sagði yfirmaður lögregl- unnar í Queensland, Peter Beattie, um villihunda sem sækja í ferða- mannastaði á Fraser-eyju. Hræðsla hefur gripið um sig á svæðinu og fékk lögregla í gær fyrirmæli um að útrýma öllum díngó-hundum sem sem sjást nærri ferðamannastöðum. Tveir hundar sem grunaðir voru um að hafa ráðist á drengina tvo voru skotnir þegar á mánudag. Drengurinn sem lést var níu ára og hét Clinton Gage. Yngri bróðir hans, sjö ára, slasaðist og fékk að fara heim af sjúkrahúsi í gær. Um það bil 200 villihundar af tegundinni lifa á eyjunni og sagði Beattie að innan tíðar muni framtíð þeirra ráð- ast, eða þegar mat hefur verið lagt á hættuna sem fólki stafar af þeim. íbúar á eyjunni telja að hundarnir séu þar of margir og því sé ekki nóg æti fyrir þá alla. Hætta skapist þeg- ar ferðamenn fari of nálægt þeim. Þýskur ferðamaður var bitinn af díngó-hundi í febrúar sl. og ráðist var á þriggja ára norska stúlku ártð 1998. ■ ÁSTRALSKUR DÍNGÓ-HUNDUR Ekki er vitað til þess að hundategundin hafi áður ráðið manni bana. EKKERT VERKFALL í BILI Cheryl Rhoden frá rithöfundasamtökum Bandaríkjanna var létt I bragði þegar hún skýrði frá því að viðraeðum yrði haldið áfram í gær þrátt fyrir að frestur væri út- runninn. Yfirvofandi verkfall handritshöfunda í Hollywood: Viðræður halda áfram los angeles. ap Samningaviðræðum milli handritshöfunda og eigenda kvikmyndavera í Hollywood var slit- ið í gær án þess að samkomulag næð- ist, en loforð voru gefin um að halda viðræðum áfram og fresta þannig um skeið verkfalli sem hefði lamað alla framleiðslu á kvikmyndum og sjón- varpsefni í borginni. Viðræðulota hafði staðið í 17 klukkustundir, þegar þeim var slitið aðeins þremur stundum áður en samningur handritshöfunda rann út á hádegi í gær. Viðræðunum átti að halda áfram síðar um daginn. Ekkert fékkst uppgefið um inni- hald viðræðnanna né hve mikið vant- aði upp á að samningar tækjust. Mán- uðum saman hefur ríkt ótti um að handritshöfundar efni til verkfalls, en enn hefur ekki farið fram kosning um verkfall meðal félagsmanna í fé- lagi handritshöfunda í Hollywood. Erfitt hefur verið að fylgjast með gangi viðræðna vegna þess að báðir deilendur hafa ekkert viljað segja frá 17. apríl sl. ■ —♦— Ofsóknir í Danmörku: Minnir á Ku Klux Klan útlendingahatur Undanfarin þrjú ár hefur all nokkuð verið um grófar og óhugnanlegar brennuárásir á hendur flóttamönnum og innflytjendum í Danmörku, að því er danska blaðið Politiken skýrði frá í gær. Tvö slík at- vik bættust við í síðustu viku þegar kveikt var í bifreið rétt utan við Ár- ósa og fjölskylda í Gentofte hrökk upp við það að kross stóð í ljósum logum í garðinum heima hjá henni. Þótti það minna óþægilega mikið á bandarísku kynþáttahatarana í Ku Klux Klan. Langflestar þessar brennuárásir eru óupplýstar, en þær hafa verið af ýmsu tagi. Einna al- gengast hefur verið að logandi papp- ír hefur verið kastað inn um bréfalúgur. ■ AP/KIM D. JOHNSON

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.