Fréttablaðið - 03.05.2001, Síða 11
FIMMTUDAGUR 3. maí
FRÉTTABLAÐIÐ
ERLENT
Asíðustu tíu árum hafa fleiri en
1.000 blaðamenn verið drepnir
eða látið lífið við vinnu sína. Ofbeldi
gegn fjölmiðlafólki og valdatafl al-
þjóðlegra fjölmiðlasamsteypa ógna
frelsi fjölmiðla á nýrri öld, segir Al-
þjóðasamband blaðamanna. í dag er
alþjóðlegur dagur frjálsrar fjölmiðl-
unar. „Blaðamenn verða oft fyrir
ógnunum og sjálfstæðir fjölmiðlar
verða fyrir ritskoðun. í mörgum
hlutum heimsins er fréttamennska
afar hættuleg atvinna,“ segir í yfir-
lýsingu frá samtökunum. Þau hafa
látið kanna tíðni dauðsfalla hjá
fréttamönnum og komist að þeirri
niðurstöðu að hingað til hafi dánar-
tíðnin verið vanmetin. Samtökin
fagna því að ríkisstjórnir og mörg
fjölmiðlafyrirtæki hafa reynt að
draga úr hættunni sem fylgir starfi
fréttamanna.
ALFREÐ PORSTEINSSON:
Verður skoðað í samhengi við annað.
Sala Landssímans:
Ekki áhrif
á Lina.net
einkavæðing Alfreð Þorsteinsson, for-
maður stjórnar Lína.net, segir að sala
ríkisins á hlutafé sínu í Landssíman-
um þurfi ekki að hafa áhrif á hug-
myndir um að selja hlutabréf í
Lína.neti.
Alfreð segir að það hafi verið
stefnt að því að koma hlutafjársölu í
Lína.net á hreint í þessum mánuði.
„Það er Íslandsbanki-FBA sem er að
undirbúa þetta fyrir okkur en það er
ekki komin nákvæm tímasetning á
þetta.“
Aðspurður um hvaða áhrif það
kynni að hafa á verð hlutabréfa ef
allt að þrjú fjarskiptafyrirtæki færu
á markað á svipuðum tíma segist Al-
freð ekki hafa áhyggjur af því. „Auð-
vitað er þetta allt umhugsunarefni.
Þó að þessu hafi verið stefnt um
skeið skoða menn þetta í samhengi."
Því segir hann að fylgst verði með
hvernig málum háttar með sölu
hlutabréfa í Landssímanum og að
málið verði allt skoðað í samhengi
þegar það liggur betur fyrir. ■
—4—
Kína:
Njósnaflug-
vélin skoðuð
washington. ap Bandarískii' sérfræð-
ingar fengu að skoða bandarísku
njósnaflugvélina á kínversku eyjunni
Hainan í um það bil fjórar klukku-
stundir í gær. Þeir hugðust halda
áfram skoðun sinni í dag, fimmtudag,
en tilgangurinn var að ganga úr skug-
ga um hvort hægt væó að fljúga vél-
inni til Bandaríkjanna. ■
---♦--;
Aftaka McVeighs:
300 ætla
að horfa
WASHiNGTON. ap Um það bil 300 manns
vilja fylgjast með aftökunni á
Timothy McVeigh í beinni sjónvarps-
útsendingu, en hún á að fara fram
þann 16. maí næstkomandi. Um er að
ræða fólk sem lifði af sprenginguna í
stjórnsýslubyggingunni í Oklahoma-
borg árið 1995, eða ættingja þeirra,
en alls var um 3000 manns boðið að
fylgjast með aftökunni í sjónvarpi. ■
11
Uppkaup á greiðslumarki langt komin:
Frjálst framsal á næsta ári
sauðfjárrækt. Þegar hefur ríkissjóður
keypt upp 35 þúsund af þeim 45 þús-
und ærgildum sem ætlunin er að
gera. Þar með er gert ráð fyrir að
frjálst framsal á greiðslumarki hefj-
ist þegar á næsta ári. Alls hafa 296
bændur selt ríkinu greiðslumark.
Mest hefur verið selt úr sveitum
sem eru næst þéttbýli og rninnst úr
þeim sveitum þar sem sauðfjárbú-
skapur er hvað mikilvægastur og þar
sem fátt getur tekið við af honum.
Strandasýsla og Norður-Þingeyjar-
sýsla eru þær sýslur sem þetta á hvað
best við um. Sveitirnar eru það af-
skekktar að leggist sauðfjárbúskapur
af leggjast jarðirnar oftast í eyði.
Mest greiðslumark er í Norður-
Múlasýslu, eða 36.400, sem er tæp-
lega 10 prósent alls greiðslumats á
landinu. Minnst er það hins vegar í
Gullbringu- og Kjósarsýslu, eða inn-
an við 3.000 ærgildi. Ef hins vegar er
skoðað úr hvaða sýslum hefur verið
mest selt af greiðslumati sést að þar
er Rangárvallasýsla efst með tæp-
lega fjögur þúsund, Norður-Múla-
sýsla með 3.300 og Vestur-Húna-
vatnssýsla með rúmlega 3.000. ■
SAUÐFÉ
Frjálst framsal á greiðslumarki
hefst jafnvel á næsta ári
Mest selt úr sveitum næst þéttbýii
Sýsla Hlutfall af seldu greiðslu-
mati ■ %
Sýsla %
Gullbringu- og Kjósarsýsla 22,35
Eyjafjarðarsýsla 16,23
Snæfellssýsla 15,45
Rangárvallasýsla 14,98
Vestur-Húnavatnssýsla 12,45
Dalasýsla 12,32
Borgarfjarðarsýsla 11,24
Árnessýsla 10,33
Skagafjarðarsýsla 9,38
Norður-Múlasýsla 8,97
Mýrasýsla 8,46
Vestfirðir 7,89
Suður-Þingeyjarsýsla 7,45
Austur-SkaftafeHssýsla 5,46
Suður-Múlasýsla 4,97
Strandasýsla 4,45
Vestur-Skaftafellssýsla 4,44
Austur-Húnavatnssýsla 4,16
Norður-Þingeyjarsýsla 2,26
Fj ölmenningarlegur
Austurbæj arskóli
Guðmundur Sighvatsson skólastjóri og Nína Magnúsdóttir deildarstjóri móttökudeildar nýbúa segja fjölmenn-
ingarlega kennslu vera hugmyndafræði sem á að taka til alllra þátta skólastarfsins.
HEFÐ FYRIR KENNSLU NÝBÚA
i Austurbæjarskóla hefur verið starfandi móttökudeild nýbúa frá árinu 1994 en í skólan-
um hefur enn lengur verið nokkuð hátt hlutfall tvítyngdra barna.
skólamál Fræðsluráð Reykjavíkur
veitti Austurbæjarskóla á síðasta
fundi sínum 600.000 styrk úr Þróun-
arsjóði grunnskóla Reykjavíkur til
verkefnisins Fjölmenningarlegur
skóli.
í Austurbæjarskóla er móttöku-
deild fyrir nýbúa í 7.-10. bekk úr öll-
um hverfum borgarinnar. í þeirri
deild eru u.þ.b. 25 nemendur en auk
þess veitir hún öðrum 25 nemendum
í öllum árgöngum stuðning.
Fjölmenningarlegur skóli er þró-
unarverkefni til þriggja ára og á að
ná til allra þátta skólastarfsins. Fyr-
ir liggja drög að starfsáætlun verk-
efnisins sem hafið er með námskeiði
um fjölmenningarlega kennslu. Að
sögn Guðmundar Sighvatssonar
skólastjóra Austurbæjarskóla og
Nínu Magnúsdóttir deildarstjóra
móttökudeildarinnar er menntun
starfsfólks lykilatriði í verkefni sem
þessu.
Námskeiðinu verður fram haldið
í haust áður en kennsla hefst. „Þá
verður farið að vinna í námsefninu
og fólk fer að undirbúa hvernig það
ætlar að kenna eftir þessari hug-
myndafræði," segir Nína. Námskeið-
ið verður svo vikulega a.m.k. fyrstu
AUSTURBÆJARSKÖLI
Fjöldi nemenda 558
Fjöldi nýbúa 50 9°/o
Fjöldi nemenda í 1. bekk 54 Fjöldi
nýbúa ( 1. bekk 10 19%
Fjöldi bekkjardeilda 27 Fjöldi bekkj-
ardeilda með nýbúum 20 74%
Fjöldi móðurmála nemenda um 20
tvo mánuðina en Guðrún Pétursdótt-
ir er aðalleiðbeinandi þess og hand-
leiðari verkefnisins. „Við leggjum
mikið upp úr því að allir verði með
þessa hugmyndafræði á hreinu.
Þetta er ekki ný kennslugrein heldur
hugmyndafræði sem á að innleiða."
„Við erum með áætlun í gangi um
að efla foreldrastarfið og munum
gera það í gegnum foreldrafélagið,"
segir Guðmundur en mikilvægt er að
mati þeirra Nínu að ná erlendum for-
eldrum inn í skólann og styrkja þá í
foreldrasamstarfinu.
Aðspurð um það hvernig verkefn-
ið á að skila sér í daglegu starfi skól-
ans segir nefnir Guðmundur til
dæmis þurfi að skoða gildishlaðna
orðanotkun svo sem þriðji heimurinn
og þróunarlönd.“
FJÖLIVIENNINGARLEG KENNSLA
KREFST ÞESS MEÐAL ANNARS AF
KENNARANUM:
* Að hann gangi ekki aðeins út frá
einni menningu í kennslunni,
* að hann sé á varðbergi gagnvart kyn-
þáttafordómum og Evrópuhverfri um-
fjöllun í kennslubókum og öðrum miðl-
um sem notaðir eru við kennsluna,
* að að hann sé vakandi fyrir staðal-
myndum 1 skólabókum og öðru
kennsluefni,
* að hann varist upphafningu eigin
menningar og bendi á jákvæðar hlið-
ar allrar menningar,
* að hann leggi áherslu á mikilvægi
umburðarlyndis og samkenndar í öll-
um mamnnlegum samskiptum, ekki
síst í samfélagi þar sem fólk frá mis-
munandi menningarsvæðum býr
saman og þarf að læra að taka tillit til
menningarlegs uppruna hvert annars,
* að hann kynni sér og meðhöndli í
kennslunni viðfangsefni eins og kny-
þáttafordóma, mismunun, ofbeldi,
mannréttindi og einelti,
* að hann sé opinn fyrir fyrir sam-
vinnu við kennara frá öðrum menn-
ingarsvæðum.
Úr qrein Guðrúnar Pétursdóttur,
Fjólmenningarleg kennsla, sem
birtist i Skólavörðunni.
Nína og Guðmundur leggja áher-
slu á að fjölmenningarleg kennsla
eigi allt eins heima í skóla þar sem
engir nýbúar eru. „Þetta beinist ekki
síður að því að íslensku börnin aðlag-
ist þeim nýkomnu og líti á samfélag-
ið sem breytilega mynd.“
steinunn@frettabladid.is
Nýir ráðgjafar landbúnaðarráðherra funduðu í gær:
Grænmetistillögur nálgast
Offitusjúklingar:
Hreyfing
lykilatriði
neytenður. Guðni Ágústsson landbún-
aðarráðherra segir trúlegt að tillögur
hans um breytingar á verðmyndun
grænmetis verði ræddar á ríkis-
stjórnarfundi á morgun. í öllu falli
verði málið rætt á fundinum þó end-
anlegar tillögur liggi ekki fyrir.
Samkvæmt ákvæðum Gatt-samn-
ingsins hefur þriggja manna hópur
úr ráðuneytum landbúnaðar, við-
skipta og fjármála verið skipaður
landbúnaðarráðerra til ráðgjafar.
Þessi hópur átti fund síðdegis í gær
til að ræða framkomnar tillögur og
upplýsingar nefndarinnar sem Guðni
hafði skipað með fulltrúum vinnu-
markaðarins.
„Menn eru að nálgast tillögu þó
hún liggi ekki fyrir eins og er. Ég
þarf að fara með málið í ríkisstjórn
og ná þar samstöðu. Markmiðin eru
þau - bæði hjá mér og ríkisstjórninni
- að finna leiðir til að lækka verð á
grænmeti - ekki bara innfluttu held-
ur innlendu líka. Svo má ekki gleyma
því að menn bíða eftir að sjá niður-
stöður Samkeppnsistofnunar varð-
andi smásöluálagninguna. Um hana
hefur verið deilt enda hefur menn í
raun vantað fastara land undir til að
sjá hvernig málum er þar háttað,“
segir Guðni Ágústsson. ■
SPRENGING?
Landbúnaðarráðherra bíður
eftir áliti Samkeppnisstofnunar um smá-
söluálagningu sem birta á á morgun.
new york. ap Læknar hafa í fyrsta
skipti sýnt fram á með óyggjandi
hætti að of þungt fólk geti dregið úr
hættunni á því að fá sykursýki með
því að fara í megrun og leggja stund
á líkamsrækt. Fyrri rannsóknir hafa
gefið vísbendingu I þessa veru áður
en ný finnsk rannsókn er sú fyrsta
sem sýnir það svo enginn vafi leikur
á. Vísindamennirnir sem að henni
unnu komust að því að hættan á syk-
ursýkingu var 58% minni hjá sjúk-
lingum sem fengu ráðleggingar um
breytt mataræði og hreyfingu en hjá
þeim sem fengu aðeins almenn ráð
við sykursýki. Sykursýki er sjöunda
algengasta dánarorsök í Bandaríkj-
unum og vaxandi vandamál annars
staðar í heiminum. ■