Fréttablaðið - 03.05.2001, Page 14
FRETTABLAÐIÐ
3. maí 2001 FIMMTUDAGUR
HVERNIGFER?
Fjórði leikur KA
og Hauka?
KRISTJÁN ÞÓR JÚLÍUS-
SON, BÆJARSTJÓRI
AKUREYRI:
„Við vinnum og til
þess verður liðið að
spila saman sem sterk
heild. Þetta verður
ekki stór sigur heldur
spennandi leikur og
ég ætla að reyna að mæta.“
MAGNÚS GUNNARS-
SON, BÆJARSTJÓRI
HAFNARFJARÐAR:
„Við eigum eftir að
bíta frá okkur i kvöld
og sigra. Haukar eiga
eftir að spila góða
vörn og í kjölfarið lag-
ast markvarslan, sem var ekki nógu
góð í síðasta leik.“
MOLAR
Lyfjadómstóll íþrótta- og Ólymp-
íusambands íslands dæmdi í gær
tvo karlkyns körfuknattleiksmenn í
mánaðar langt keppnisbann fyrir
misnotkun á ólögmætum fæðubótar-
efnum. Kona, sem einnig féll á lyfja-
prófi, var sýknuð. Hún notaði lyf
samkvæmt læknisráði vegna astma-
veiki en láðist að geta um það við
lyfjaprófið. Þá var máli gegn
ísknattleiksmanni vísað frá. Mbl.is
greindi frá.
Leikmenn Orlando Magic þurftu
að játa sig sigraða í fyrrinótt
þegar Milwaukee Bucks sló þá út úr
úrslitakeppni NBA-deildarinnar.
Leikurinn fór 112-104. Þetta er í
fyrsta skipti í 12 ár sem Milwaukee
kemst í undanúrslit Austurstrandar-
innar. Staðan er jöfn, 2-2, í einvígi
Dallas Mavericks og Utah Jazz eftir
öruggan sigur Dallas í fyrrinótt.
Leikurinn fór 107-77.
Þó Bayern Munchen hafi sigrað
Real Madrid með einu marki
gegn engu á þriðjudaginn var ekki
að sjá að Þjóð-
verjarnir kættust
mjög. Ástæðan fyr-
ir því er sú að þeir
vita manna best að
góð staða færir
þeim ekki Evrópu-
meistaratitil heldur
áþreifanlegur sigur.
í hittifyrra voru þeir yfir í úrslita-
leiknum á móti Manchester Utd.,
sem vann síðan leikinn í framleng-
ingu. „Við getum ekki leyft okkur að
fagna. Við höfum ekki unnið neitt
ennþá. Á næstu vikum eigum við
möguleika á að bæði vinna allt og að
glutra öllu niður,“ sagði Giovane El-
ber, leikmaður Bayern. Liðið er ein-
nig í toppbaráttunni í Bundesliga
deildinni í Þýskalandi.
Undirbúningur fyrir vetrarólymp-
íuleikana í Salt Lake City er
kominn á fullt. Á þriðjudaginn hitt-
ust bændur í fylk-
inu Utah og ræddu
það hvernig væri
hægt að koma í veg
fyrir að allur fólks-
fjöldinn sem leggur
2002 leið sína á leikana
myndi bera sjúk-
dóma á borð við
gin- og klaufaveikina með sér. Nið-
urstaðan var sú að allir sem koma til
Salt Lake í febrúar munu mæta
hundum sem þefa af þeim. Það er til
að koma í veg fyrir að fólk komi
með mat að heiman sem gæti haft
óboðna gesti um borð.
FBI sér um að halda gestum
Ólympíuleikanna öruggum. En þá
er ekki öryggisgæslan upptalin. Sér-
stakur smáher, samansettur af toll-
gæslumönnum og meðlimum Ólymp-
íunefndar Salt Lake, mun ganga um
götur borgarinnar og sjá til þess að
enginn selji óviðurkenndar Ólympíu-
vörur. Þeir ætla að handtaka alla þá
sem selja boli, barmmerki og bangsa
með Ólympíuhringjunum. Þá eru
orðasamböndin „Winter Olympics"
og „Salt Lake City 2002“ stranglega
bönnuð. Að framleiða eða selja þess-
ar vörur getur þýtt allt að 25 millj-
ónum króna í sekt og fimm ára fang-
elsi. Þeir sem láta ekki segjast við
fyrsta brot fá þyngri refsingu.
14
STÓRSIGUR KA Á MÁNUDAG
Haukar eiga harma að hefna frá því í
leiknum á mánudaginn.
Fjórði leikur úrslitakeppninnar í handbolta:
Nú er að duga
eða drepast
handbolti í kvöld mætast á Ásvöllum
KA og Haukar í fjórða skipti í úrslita-
keppninni um íslandsmeistaratitilinn
í handbolta. Nú er að duga eða drep-
ast fyrir Hauka, sem unnu titilinn í
fyrra. Staðan er 2-1 fyrir KA, sem
getur þar af leiðandi tryggt sér titil-
inn í kvöld. Síðasti leikur, sem fram
fór á Akureyri á mánudagskvöld, var
erfiður fyrir Hauka.
Þó KA tæki sér nokkurn tíma í að
komast í gang náði það fljótlega
undirtökunum. KA skoraði fyrstu
þrjú mörk leiksins og var forskotið
aldrei minna en fjögur mörk eftir
það. Liðið tvíefldist svo í seinni hálf-
leik að er leiknum lauk var staðan
orðin 27-18 fyrir heimamönnum.
Þannig eiga Haukar harma að
hefna. Hafnfirðingar eiga ekki eftir
að láta deigan síga heldur munu
þeir fylla Ásvelli og hvetja sína
menn áfram til að tryggja það að
viðureignin endi í hreinum úrslita-
leik á Akureyri á laugardag. Seinni
hálfleikur leiksins í kvöld verður
sýndur í beinni útsendingu í Sjón-
varpinu. ■
EKKERT GOLF
Umhverfissinni frá Suður-Kóreu heldur
upp á „Ekkert golf-daginn" Á skiltunum
standa nöfn þeirra blóma sem hann segir
munu deyja vegna fjölgunar á golfvöllum.
Stelpurnar
stefna á sigur
Kvennalandsliðið í körfuknattleik heldur í víking til
Lúxemborg um helgina. Þar taka þær þátt á
Spuerkeess-mótinu sem þær sigruðu á í fyrra.
körfuknattleikur Nú um helgina held-
ur kvennalandslið íslands til Lúxem-
borg þar sem það tekur þátt á
Spuerkees-mótinu. Stúlkurnar kann-
ast vel við sig á
mótinu þar sem
þær sigruðu þar í
fyrra. Fyrr í vik-
unni tilkynnti Sig-
urður Ingimundar-
son landsliðsþjálf-
ari hverjar væru í
liðinu.
„Mótið leggst
mjög vel í mig,“
segir Guðlaug
Norðfjörð fyrirliði.
„Við stefnum á sig-
ur. Við unnum
mótið í fyrra en þá
tóku, auk okkar og
Lúxemborg, Noregur og Sviss þátt.
Þegar við unnum Norðmenn var það í
fyrsta skipti i langan tíma sem við
sigruðum aðra Norðurlandaþjóð. Nú
eru það írland og Holland sem taka
þátt í staðinn. Síðast þegar við spiluð-
um við Holland, fyrir tveimur árum,
unnum við leikinn. Mig minnir hins-
vegar að írarnir hafi sigrað síðast
þegar við mættum þeim.“
Guðlaug er þaulreynd í Iandslið-
inu, hefur spilað 45 landsleiki. í hópn-
um sem Sigurður Ingimundarson til-
kynnti nú í vikunni eru tveir nýliðar,
þær Svava Ósk Stefánsdóttir, leik-
maður Keflavíkur, og Tinna Björk
Sigmundsdóttir, leikmaður KFÍ.
Svava var valin nýliði ársins í fyrstu
deild kvenna á liðnum vetri.
„Það er gaman að fylgjast með
ungu stelpunum sem eru að blómstra
þessa dagana. Undanfarin tvö ár hafa
orðið, hægt og sígandi, kynslóða-
skipti í landsliðinu. Þetta er mjög
skemmtilegur hópur. Okkur vantar
að vísu hávaxna leikmenn en við
vinnum það upp á öðrum sviðum. Sig-
urður er góður þjálfari með metnað.
Undirbúningurinn byrjar snemma
þetta árið þannig að við eru tilbúnar í
slaginn."
I landsliðinu eru eftirtaldir leik-
menn: Guðlaug Norðfjörð, KR,
Hanna Björg Kjartansdóttir, KR,
Kristín Jónsdóttir, KR, Helga Þor-
valdsdóttir, KR, Hildur Sigurðardótt-
ir, KR, Kristín Blöndal, Kefiavík,
Marín Rós Karlsdóttir, Keflavík,
Birna Valgarðsdóttir, Keflavík,
Svava Ósk Stefánsdóttir, Keflavík,
Alda Leif Jónsdóttir, Holbæk, Lovísa
Guðmundsdóttir, ÍS og Tinna Sig-
mundsdóttir, KFÍ.
—4—
„Þetta er mjög
skemmtilegur
hópur. Okkur
vantar að vísu
hávaxna leik-
menn en við
vinnum það
upp á öðrum
sviðum. Sigurð-
ur er góður
þjálfari með
metnað."
SPUERKEESS-MÓTIÐ í LÚXEMBORG 4.-6. MAÍ
Á mótinu taka þátt: ístand, Holland, Lúxemborg og írland.
Leikir landsliðsins um helgina:
Ísland-Holland 4.maí
Ísland-Lúxemborg 5. maí
ísland-írland 6.maí
KVENNAKARFAN Á UPPLEIÐ
Hægt og sígandi eignast islendingar fleiri leikmenn I hæsta gæðaflokki.
Kynþáttahatur áhorfenda færist í aukana:
ítalir fullir
fordóma
knattspyrna ítalska knattspyrnulið-
inu Lazio var bannað í gær að halda
einn af næstu þremur heimaleikjum
vegna framkomu áhorfenda á leik
liðsins við AS Roma um helgina.
Áhorfendurnir bauluðu stíft á svarta
leikmenn Roma og veifuðu borðum
með kynþáttafordómum áletruðum.
Sérstaklega fengu Brasilíumennirnir
Cafu og Aldair að heyra það frá
áhorfendunum. Stjórnendur Lazio
hafa ekki gefið upp hvaða leikur það
er sem verður haldinn á hlutlausum
velli en næstu heimaleikir liðsins eru
við Bari, Udinese og Fiorentina. ítal-
ska knattspyrnusambandið sektaði
liðið einnig um tæpar þrjár milljónir
króna. Þetta kemur sér illa fyr>r
Lazio sem er að reyna að verja titil-
inn í ítölsku Serie A deildinni þar sem
það berst við Roma og Juventus. Fyr-
ir einungis tveimur vikum var Lazio
einnig sektað um tæpar tvær milljón-
ir fyrir framkomu áhorfenda í garð
svartra leikmanna Parma. ítalska
knattspyrnusambandið hefur miklar
áhyggjur af þessarri þróun mála en
sýnilegt kynþáttahatur á áhorf-
endapöllunum á knattspyrnuleikjum
hefur færst í aukana að undanförnu.
Aðeins er vika síðan fyrsti blökku-
maðurinn, Fabio Liverani, spilaði
með ítalska landsliðinu. ■
í JAFNVÆGI
Brasilíubúinn Marcos Evangelista Cafu
stekkur í boltann í leik Lazio og Roma á
sunnudaginn. Þeir leikmenn sem hafa orð-
ið fyrir mestu áreiti fordómafullra áhorf-
enda segjast reyna að leiða það hjá sér.
| MOLAR |
Iþróttamenn hafa verið varaðir við
neyslu svínakjöts þar sem það get-
ur valdið því að nið-
urstöður úr lyfja-
prófurn reynist já-
kvæðar. Portú-
galskur prófessor í
dýralækningum,
Jorge Barbosa,
sagði íþróttamenn
geta greinst já-
kvæða af anóbólískum sterum úr
svínakjöti. Margir íþróttamenn hafa
komið jákvæðir út úr lyfjaprófum að
undanförnu vegna of mikils magns
nandrolone.
Yfirvöld í Singapore hafa miklar
áhyggjur af spilafíklum þar í
landi sem veðja um aðaláhugamálið
sitt, enska boltann. Það er löglegt að
veðja á fótboltaleiki í þar til gerðum
veðbönkum en fótboltaaðdáendurnir
hafa flestir beint veðmálum sínum á
breskar vefsíður. Það er ólöglegt að
veðja á netinu í Singapore. Lögregl-
an þar segir nokkur þúsund manns
veðja um hverja helgi á bresku vef-
síðunum. Ekki er enn búið að grípa
til aðgerða vegna þessa. Um fjórar
milljónir manna búa í Singapore.