Fréttablaðið - 03.05.2001, Side 22
22
FRÉTTABLAÐIÐ
3. maí 2001 FIMMTUDACUR
HRAÐSOÐIÐ
ÚLFAR HAUKSSON
stjómmálafræðingur
Aukin
samkeppni
HVAÐ er til i ummælum Guðmundar
Gunnarssonar um að ESB-aðild sporni gegn
einokun og bæti verðlag?
Það er alveg ljóst að ef við tölum um
tolla, til dæmis á grænmeti, þá er
þetta rétt. íslensk stjórnvöld gætu
upp á sitt einsdæmi afnumið tolla en
þau gera það ekki. Þau væru þvin-
guð til þess ef til aðildar kæmi.
HVERNIG
aukast?
myndi samkeppnin
Það má færa rök fyrir því að
samkeppni aukist með því að taka
upp Evruna. Það leiðir til aukins
verðgagnsæis þannig að auðveldara
verður að bera saman verðlag á ís-
landi og í Evrulönci mum. Það má
segja að það myndi ýta undir sam-
keppni að vissu mark'.
HVERNIG myndi íslenskum
fyrirtækum farnast?
Gengið yrði stöðugra og leiddi til
aukins hagvaxtar. Það bætir svo
san.keppnisstöðu íslenskra fyrir-
tækja sem myndu njóta betri starfs-
skilyrða vegna lægri vaxta.
HVAÐA áhrif hefði þetta á erlenda
fjárfestingu hérlendis
ESB-aðild hefur í för með sér breytt
viðskiptalandslag sem eykur líkur á
erlendri fjárfestingu hérlendis, því
þó margt hafi breyst með EES-samn-
ingnum hefur skrefið ekki verið
stigið til fulls.
Úlfar Hauksson er 35 ára stjórnmálafræðin-
gur. Hann er formaður Evróf usamtakanna
og stundakennari við Háskóla (slands.
Smáflokkar á Italíu grípa til örþrifaráða:
Líf og dauði bannorð á Italíu
Italía Emma Bonino, fyrrum fram-
kvæmdastjóri hjá Evrópusamband-
inu, og núverandi leiðtogi Róttæka
smáflokksins á Ítalíu, dvelur nú á Sao
Paulo sjúkrahúsinu í Milano. Hún
hefur verið í hungurverkfalli síðan á
föstudag og neytir hvorki matar,
vatns eða lyfja. Það eina sem hún
leyfir sér eru 20-30 sígarettur á dag,
og er vafamál að það bæti heilsuna.
Emma Bonino, sem m.a. hafði
með sjávarútvegsmál að gera hjá
Evrópusambandinu, heldur því fram
að flokkur sinn og aðrir smáflokkar í
ítölskum stjórnmálum hafi verið
sniðgengnir af ríkissjónvarpinu í
kosningabaráttunni. Einungis sé
fjallað um íhaldssama fjölmiðlakóng-
inn Silvio Berlusconi og aðalkeppi-
naut hans um embætti forsætisráð-
herra, Francesco Rutell, fyrrum
borgarstjóra Rómar og leiðtoga
miðju-vinstri bandalagsins. „Grun-
vallaratriði lífs og dauða fást ekki
rædd í kosningabaráttunni", segir
Bonino. „Ég hef reynt allt en hin
raunverulega umræða á sér stað í
sjónvarpinu og þar komast málefni
eins og vísindarannsóknir á fóstrum,
morguninn eftir pillan og samband
ríkisins og Vatíkansins ekki á dag-
skrá.“ Hundruð félaga í Róttæka
flokknum hafa fylgt fordæmi for-
ingja síns og hafið hungurverkfall.
Luca Coscione, annar leiðtogi smá-
flokks, hefur ákveðið að minnka
lyfjaskammt þann sem hann tekur
vegna MS-sjúkdómsins í mótmæla-
skyni, en þessi lyf eru honum að sögn
lækna lífsnauðsynleg.
Carlo Azeglio, forseti Ítalíu, lýsti
á þriðjudag stuðningi við þau viðhorf
Bonino og Coscione að fjölmiðlar
ættu að gefa meiri gaum að umræð-
um um frelsi til vísindarannsókna og
öðrum spurningum sem brenna Rót-
tækum á hjarta.
Það heyrir til þessari sögu að
Silovio Berlusconi ræður yfir nær
öllum einkareknum sjónvarpsstöðv-
um á Ítalíu. ■
HUNGUR- OG VÖKVAVERKFALL
Emma Bonino hefur einskis neytt síðan á
föstudag nema 20-30 sígarettna á dag.
Nýmæli í kjarasamningum starfsmanna íslenska álfélagsins:
ÍSAL slysalaust í 167 daga
vinnuvernd Á ársfundi Vinnueftir-
litsins afhenti Páll Pétursson félags-
málaráðherra íslenska álfélaginu
(ÍSAL) veglegan skjöld sem viður-
kenningu fyrir gott starf í vinnu-
verndarmálum. Markvissar aðgerð-
ir hafa aukið mjög á öryggisvitund
starfsmanna og endurspeglast það í
öllum störfum. Þetta hefur skilað
sér í mikilli fækkun slysa sem hafa
í för með sér fjarveru frá vinnu. í
febrúar sl. náðist í fyrsta skipti sá
árangur að 100 dagar voru liðnir frá
síðasta slysi og nú eru slysalausir
dagar orónir 167.
í nýgerðum kjarasamningi ISAL
við starfsmenn er ákvæði um að
þeir fái sérstaka umbun fyrir þá
vinnu sem þeir leggja á sig vegna
öryggis- og umgengnismála. Þetta
ákvæði er nýmæli í kjarasamning-
um á íslandi. Þá hafa orðið veruleg-
ar umbætur í kerskálum, m.a. með
bættu innilofti.
Hjá ISAL hefur verið unnið eftir
ISO-staðli um gæðastjórnun frá
1993 og nú er einnig unnið eftir
staðli um umhverfisstjórnun. Stefnt
er að því að taka upp öryggisstaðal
og öryggisstjórnunarkerfi. ■
FRÉTTIR AF FÓLKII
Um helgina fer borgarstjórnar-
flokkur Reykjavíkurlistans úr
bænum til þess að leggja fyrstu drög
að fjárhagsáætlun
næsta árs. Ekki er
talið ólíklegt að þá
hefjist fyrir alvöru
þreifingar um það
hvernig staðið verði
að undirbúningi
framboðs fyrir
borgarstjórnar-
kosningarnar næsta
vor. Aðstæður eru nú breyttar. í stað
fjögurra hreyfinga, þeas Alþýðu-
flokks, Alþýðubandalags, Framsókn-
arfiokks og Samtaka um kvennalista,
á Framsóknarflokkurinn nú einn
formlega aðiid að Reykjavíkurlistan-
um. Samfylkingin hefur lýst ein-
dregnum stuðningi við Reykjavíkur-
listann en Vinstri flokkurinn- grænt
framboð hefur enga ákvörðun tekið
um aðild að listanum. Hann á þó þar
innanborðs öfluga liðsmenn eins og
Árna Þór Sigurðsson sem stýrir m.a.
skipulagsnefnd og hafnarstjórn.
Yfirlýsing Össurar Skarphéðins-
sonar í umræðum á flokksstjórn-
arfundi Samfylkingarinnar sl. laug-
ardag þess efnis að
: hann teldi affara-
| sælast að stilla upp
á lista fyrir alþing-
| iskosningar í nýju
í kjördæmunum í
! stað þess að viðhafa
prófkjör, hefur
| komið róti á hugi
Reykjavíkurlista-
fólks. Þar á bæ eru margir þeirrar
skoðunar að besta leiðin til þess að
koma Framsóknarflokki, Samfylk-
ingunni og Vinstra flokknum-grænu
framboði saman um lista sé að jafn-
ræði verði milli flokka og stillt upp á
listana öflugu fólki undir forystu
Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur.
Hingað til hefur verið lagt upp úr
því hjá Reykjavíkurlistanum að
jafnræði sé miíli fylkinga hvað sem
líður kjörfylgi flok-
ka eða stuðningi í
prófkjöri. Þess-
vegna gætu flokk-
arnir ráðstafað
i fyrstu 6 sætunum í
samráði við uppstill-
ingarnefnd og borg-
arstjóra þannig að
tveir kæmu í hlut
hvers flokkanna þriggja. Síðan myndi
borgarstjóri hafa úrslitaatkvæði um
skipan í sjöunda og níunda sætið, og
setið sjálf f því áttunda. í þessi sæti
væru þá samkvæmt kenningunni
valdir sterkir einstaklingar með kjör-
þokka sem þættu henta til þess að
vera í baráttusætum með Ingibjörgu
Sólrúnu í stað þess að þar væru þeir
sem neðstir væru af hugsanlegum
borgarfulltrúum í prófkjöri.
Iraun er búið að skipta upp og
fækka sviðum í borgarkerfinu á
þann veg að borgarfulltrúar meiri-
hlutans eru í hálfgildings „ráð-
herraembættum". Það eru því gerðar
miklar kröfur til borgarfulltrú»og
þeir eru undir miklu meira vinnuá-
lagi en áður tíðkaóist. Þeir sem tala
fyrir uppstillingu á Reykjavíkurlist-
ann telja mikilvægt að öflugt fólk
komi tii starfa sem borgarfulltrúar,
litia menntun, búa við lítil efni og
vinna ófaglærð störf.
Sendiráð íslands í Kanada hóf starf-
semi sína í gær, 1. maí. Húsnæði
þess er í 360 Albert Street í Ottawa.
Netfangið fyrir þá sem vilja ná í
Hjálmar W. Hannesson sendiherra og
Helgu Bertelsen ritara er
icemb.ottawa@utn.stjor.is. Sendiráðið
nýtur og aðstoðar Magnúsar Bjarna-
sonar, setts aðalræðismanns og við-
skiptafulltrúa í New York. Sendiherr-
ann keypti eins og kunnugt er af
fréttum upphækkaðan Musso jeppa
af Benna í bílabúðinni til þess að sýna
í Kanada og reyna við vetraraðstæð-
ur þar.
AFREKSFÓLK I VINNUVERND
Rannveig Rist forstjóri ÍSAL í hópi ánægðra starfsmanna sem fengu viðurkenningu fyrir vinnuverndarmál.
sem hafi víðtæka þekkingu í þjóðfé-
laginu og séu Reykvíkingum kunnir
af störfum sínum.
Flestir núverandi borgarfulltrúar
Reykjavíkurlistans munu vera
þess fýsandi að starfa áfram. Þó hef-
ur því heyrst fleygt
að Sigrún Magnús-
dóttir borgarfulltrúi
og „skólamálaráð-
herra“ listans muni
ætla að setja punkt
við borgarstjórnar-
setu sína við næstu
kosningar eftir far-
sælt starf. Þá er tal-
inn leika vafi á því að Helgi Péturs-
son borgarfulltrúi ætli sér langa setu
í borgarstjórn. Ekk-
ert fararsnið er
hins vegar talið
vera á borgarstjór-
anum frekar en
Davíð Oddssyni úr
forsætisráðherra-
embættinu. Tími
stöðugleikans virð-
ist vera runninn
upp í pólitíkinni hvað sem líður geng-
isóróa og verðbólguskotum í efna-
hagslífinu.
Vinnueftirlitið hefur gert átak í
eftirliti með vinnu barna og ung-
linga þar sem kannað var hvernig
nýlegri reglugerð um vinnu þessa
hóps er fylgt. í ljós kom að 25% ung-
menna voru við vinnu eftir miðnætti,
á tíma þegar vinna barna og unglinga
er bönnuð, og tíu ungmenn störfuðu
sem pizzusendlar og voru einir að
störfum. Eyjólfur Sæmundsson for-
ÞRÚÐA
stjóri Vinnueftirlitsins getur varla
verið ánægður með það.
Dr. Hólmfríður Gunnarsdóttir hef-
ur gert rannsóknir á dánarmein-
um iðnverkakvenna. Niðurstöður
benda til að manns-
lát vegna ytri or-
saka (umferðar-
slysa, annarra slysa
og sjálfsmorða) séu
algengari í þessum
hópi en hjá öðrum
íslenskum konum.
Þetta kemur heim
og saman við rann-
sóknir erlendis sem sýna að dánar-
tíðni sé hærri meðal þeirra sem hafa