Fréttablaðið - 01.06.2001, Qupperneq 4
SVONA ERUM VIÐ
STÖRFIN f EINKAGEIRANUM
Störf í einkageiranum hér á landi voru um
92,900 árið 1998. Þau skiptust svona á
milli eftirfarandi geira:
z
!
o
z
Q.
0.
D
HEIMILD: SAMTÖK IÐNAÐARINS
FRÉTTABLAÐIÐ
1. júni 2001 FÖSTUDACUR
LÖNDUN Á FRYSTUM FISKI
Sára draem veiði hefur verið á karfamiðun-
um á Reykjaneshrygg og hafa margir
togarana leitað annað í von um betri afla.
Sæmundur Friðriksson:
Flýja
aflaleysi á
Reykjanes-
hrygg
KARFAViLDAR Karfaafli togara á
Reykjaneshrygg er og hefur verið
afar dræmur. Nú er svo komið að
margir togaranna eru hættir að
reyna fyrir sér þar og hafa leitað
annað - sérstaklega í grálúðu. „Huti
skipanna er farinn. Það er óljóst
hverjir ætla að vera áfram. Margir
eru að gefast upp og aðrir að reyna
að bjarga andlitinu fyrir sjómanna-
daginn því allir þurfa í land. Það
verður að þreyja þorrann og góuna.
Það er aldrei að vita hvenær hann
gefur sig. Samkvæmt almanakinu er
þetta besti tíminn. Mig minnir að
1994 hafi hann gefið sig í fáa daga og
hann fékkst svo 400 til 600 mílur út í
hafi. Þetta er eins og að leita að
saumnál í heystakk. Það er svo skrít-
ið, í þessu stóra úthafi, þá er veiðin
bara á litlum blettum. Það er eins og
fiskurinn safnist alltaf í sama poll-
inn,“ sagði Sæmundur Friðriksson,
útgerðarstjóri Útgerðarfélags Akur-
eyringa, þegar hann var spurður
hvað væri að frétta af afla togaranna
sem leita nú að karfa á Reykjanes-
hrygg. ■
Talíbanastjórnin í Afganistan:
Konur í hjálparstarfi
keyri ekki
kabúl ap. Stjórn hins stríðshrjáða Mið-Asíuríkis hef-
ur farið þess á leit við erlendar konur sem vinna að
hjálparstarfi í landinu að þær keyri ekki bíla, enda
brjóti slíkt „gegn afgönskum hefðum." Trúarmála-
ráðuneyti Afganistan bað utanríkisráðuneytið um að
„láta erlend hjálparsamtök vita að eftirleiðis [ættu]
erlendar konur ekki að keyra bíla og [skyldu] þær
hegða sér í samræmi við gildandi trúarreglur." Þjóð-
in á um sárt að binda vegna tveggja áratuga borg-
arastríðs og verstu þurrka í manna minnum og
treystir því stór hluti íbúa landsins á hjálp frá er-
lendum hjálparsamtökum. Erick de Mul, sem sér
um mál Afganistan hjá S.Þ. sagði í vikunni að sífellt
erfiðara væri að vinna að hjálparstarfinu vegna
harðlínustefnuTalíbanastjórnarinnar.
Á undanförnum dögum hefur stjórnin látið loka 4
af 6 skrifstofum og 2 bakaríum S.Þ. í landinu vegna
þess að þar voru konur í vinnu. Tilgangur bakarí-
anna var að sjá hungruðum borgurum fyrir brauði.
Þá barði trúarlögreglan starfsfólk spítala sem rek-
inn er af ítölum vegna þess að talið var að konur og
karlar fengju að borða þar í sama herbergi, en slíkt
er ólöglegt samkvæmt landslögum. Háttsettur emb-
ættismaöui i Arganistan sagði nýlegar ákvarðanir
ekki vera merki um herta afstöðu, hvert mál væri
athugað „á eigin forsendum.“ ■
AFGÖNSK BÖRN BÍÐA HiÁLPARSTARFSFÓLKS
Margir Afganir þurfa að treysta á aðstoð frá erlendum sam-
tökum, en trúarlögreglan gerir hjáíparstarfsfólki verkið sífellt
erfiðara
Enginn veit hvað ferða-
mennirnir eru man?i
rr.
'alning feroaman
a úi Isiana:. aihumuin 1 januar, 200. „ÓaSæn'a'hiegt,“ segir
Aætlamr gera ráó fyrir fjölgun ferðamanna um 20 þusund.
FERÐAMENN Óvíst er að segja fyrir
með vissu um hversu margir ferða-
menn munu sækja Island heim á
þessu ári. Ferðamenn sem sækja
landið heim hafa ekki verið taldir frá
síðustu áramótum og telja ráðamenn
að nánast sé ógjörlegt aö fram-
kvæma talninguna sökum aðildar ís-
lands að Schengen-svæðinu. Ferða-
menn sem einu sinni eru komnir inn
á Schengen-svæðið þurfa ekki að
ganga í vegabréfsskoðun aftur á
meðan dvöl þeirra stendur.
Jóhann R. Benediktsson, sýslu-
maður á Keflavíkurflugvelli, segir
embættið hafi veitt ferðamálaráði
þessa þjónustu án
þess að því hafi
Magnús bendir borið til þess
á að hægt sé skylda; að embætt-
að geta sér til ið sé allt af vilja
um fjölda ferða- gert til þess að að-
manna með að stoða við talningu,
skoða gjald- þó að það verði að
eyristekjur og vera í breyttri
gistinætur mynd.
hótela og Magnús Odds-
gistinótta. son, ferðamáia-
stjóri, telur að taln-
- ingarleysið géti
haft slæm áhrif á íslenskan ferða-
mannaiðnað.
„Það er hægt að standa að taln-
ingu þó svo að það sé illframkvæm-
anlegt þegar gestir koma til landsins.
Það er hægt við brottför og það er
hægt við innritun; það er verið að
vinna í lausn á þessu því að það er
gjörsamlega óásættanlegt að vita
ekki umfangið í þessarri atvinnu-
grein,“ sagði Magnús.
Magnús bendir á að hægt sé að
geta sér til um fjölda ferðamanna
með að skoða gjaldeyristekjur og
gistinætur hótela og gistinótta. Þess-
ar tölur liggja hins vegar ekki fyrir
nógu snemma og því getur verið
erfitt fyrir íslenskan ferðamannaiðn-
að að bregðast við sveiflum á mörk-
mmM M
'
...E.a
ÞÚSUNDIR FERÐAMANNA
Til íslands er búist við um 320 þúsund ferðamönnum í ár og er það aukning um 20 þúsund ferðamenn frá árinu 2000. Á síðasta ári
eyddu ferðamenn yfir 30 milljörðum króna á Islandi og er búist við að eyðslan muni heldur aukast i ár.
uðum erlendis; ómögulegt er að sjá ef
aðsókn t.a.m. Þjóðverja hingað til
lands myndi snarlækka.
Áætlanir ferðamálaráðs gera ráð
fyrir því að um 320 þúsund gestir
komi til íslands í ár, mest yfir sumar-
mánuðina. Þessar áætlanir eru
byggðar á tölum frá söluaðilum. Árið
2000 sóttu 300 þúsund gestir íslend-
inga heim. Þegar Magnús er spurður
út í slakt gengi krónunnar á gjaldeyr-
ismörkuðum og áhrif þess á íslensk-
an ferðamannaiðnað segist hann telja
að áhrifin munu verða heldur já-
kvæð.
„Mín tilfinning er sú ... að eyðslan
verði meiri. Það er ákveðin sálrænn
þáttur sem er fólgin í því að þegar þú
kemur á stað þar sem þú færð meira
fyrir þinn gjaldmiðil þá er ákveðin
tilhneiging til þess að kaupa meira af
þjónustu, afþreyingu, veitingum og
öðru af því að það er ódýrara fyrir
þig,“ sagði Magnús. Á síðasta ári
eyddu ferðamehn 30 milljörðum
króna á íslandi.
omarr@frettabladid.is
Framkvæmdastjórn ESB:
Reynir aftur að takmarka
tóbaksauglýsingar
brussel. ap Framkvæmdastjórn Evr-
ópusambandsins kynnti í gær laga-
frumvarp sem mun takmarka mjög
möguleika tóbaksframleiðenda til
að auglýsa vöru sína í aðildarlönd-
um sambandins.
í löggjöfinni er lagt bann við tó-
baksauglýsingum í dagblöðum,
tímaritum, í útvarpi og á netinu auk
þess sem bannað verður að auglýsa
tóbak á íþróttaleikvöngum. David
Byrne, sem fer með heilbrigðismál í
framkvæmdastjórninni, segist
bjartsýnn á að löggjöfin nái fram að
ganga og segir hana njóta stuðnings
meirihluta aðildarríkja þó vitað sé
að Þjóðverjar og Austurríkismenn
hafi verið andvígir slíkri löggjöf.
Fyrri löggjöf Evrópusambands-
ins sem var beint gegn tóbaksaug-
lýsingum var dæmd ólögleg af Evr-
ópudómstólnum á síðasta ári eftir
lögsókn Þjóðverja og tóbaksfram-
leiðenda. Nýja löggjöfin gengur
skemmra en sú fyrri og þykir það til
marks um að framkvæmdastjórnin
reyni að auka líkur á að sátt náist
um hana og minni líkur verði á að
andstæðingar hennar grípi til lög-
sóknar. ■
BYRNE KYNNIR LÖGGJÖFINA
„Reykingar bana hálfri milljón Evrópubúa á
ári hverju. Auglýsingar eru notaðar til að
fjölga reykingamönnum."
AP/AMIR SHAH