Fréttablaðið - 01.06.2001, Blaðsíða 11
'[—h
FÖSTUDAGUW I. júní
FRÉTTABLAÐIÐ
Háskólinn í Reykjavík leitar að fólki með reynslu:
Nám með vinnu
menntun Háskólanám með vinnu er
nýr námsmöguleiki fyrir þá sem vilja
ná sér í formlega menntun án þess að
hætta í vinnunni. Háskólinn I Reykja-
vík býður nú upp á fjórar slíkar
námsbrautir. Boðið er upp á fullgilt
nám í viðskiptafræði auk þriggja
skemmri námsbrauta í viðskipta-
greinum. Agnar Hansson deildarfor-
seti viðskiptadeildar skólans segir að
sérstaklega verði horft til starfs-
reynslu þeirra sem sækja um námið.
„Við viljum leggja sérstaka áherslu á
að það fólk sem kemur inn á þessa
námsbraut hafi dágóða starfs-
reynslu." Ástæðan er sú að minni
tímasóknar er krafist og byggt er á
sjálfsnámi. „Við þurfum því þrosk-
aðra fólk í þetta nám.“ Agnar segir að
það sé stór hópur á vinnumarkaði
með mikla reynslu og þekkingu sem
ekki hafi Iokið formlegu námi. Þetta
sé kjörin leið fyrir þann hóp.
Lokaárið í viðskiptafræðináminu
er hins vegar sameiginlegt hefð-
bundna náminu og segir Agnar
ástæðuna vera þá að sérhæfing sé þá
meiri og ekki hægt að leysa slíkt með
öðrum hætti. Annirnar verða þrjár í
stað tveggja í venjubundnu námi,
þannig að svipuðum fjölda eininga er
lokið á ári og í venjulegu námi, þrátt
fyrir að færri einingar séu teknar á
önn. Skólagjöld eru 79 þúsund á önn
Guðfinna Bjarnadóttir rektor Háskólans í Reykjavík og Agnar Hansson deildarforseti við-
skiptadeildar bjóða upp á viðskiptanám sem hægt er að stunda með vinnu.
og segir Agnar það fara í vöxt að at- við atvinnulífið og erum að svara
vinnurekendur styrki starfsmenn til kalli þess og kröfum um aukna
náms. „Við erum í góðum tengslum menntun starfsfólks." ■
Hj úkrunarfr æðingar
hóta raðverkföllum
Spá í mörg tveggja daga verkföll. „Prufukeyrsla" ad baki. Miða sig við framhaldsskólakennara
11 t
VIÐ HÖFUÐSTÖÐVAR PLO í JERÚSALEM
Mikíl sorg var á meðal Palestínumanna í
Jerúsalem, en Husseini var yfirmaður PLO
þar I borg.
Palestínumenn syrgia
leiðtoga:
Husseini
látinn
kjaramál Hjúkrunarfræðingar eru
mjög alvarlega að hugsa um að grípa
til „raðverkfalla" í framhaldi af tveg-
gja daga verkfalli þeirra sem lauk í
gær ef samningar takast ekki. í þeim
hugmyndum er m.a. rætt um að boða
til margra tveggja daga verkfalla á
vikufresti. Herdís Sveinsdóttir for-
maður Félags íslenskra hjúkrunar-
fræðinga segist
ekki heyra annað
frá sínum félags-
fólki en að það vilji
einhverjar aðgerðir
til að knýja ríkið til
samninga. Hún seg-
ir að hjúkrunar-
fræðingar sætti sig
ekki við það sem
ríkið hefur boðið
þeim til þessa. Sem
dæmi hefur ríkið
boðið þeim 23 þús-
und krónum minna í
byrjunarlaun en
framhaldsskóla-
kennarar hafa fengið, eða 147 þúsund
krónur í byrjunarlaun fyrir nýútskrif-
aða hjúkrunarfræðinga.
Formaður Félags ísl. hjúkrunar-
fræðinga segir að félagsfólki lítist
mjög vel á það að fara í stutt verkföll,
enda hafa þau mikil áhrif að hennar
mati. Hún bendir á að nýafstaðið tveg-
gja daga verkfall sé aðeins „prufu-
keyrsla" á það sem kann að verða ef
Hjúkrunarfor-
stjóri Landsspít-
ala - háskóla-
sjúkrahúss segir
að miðað við
aðstæður hafi
starfsemi
sjúkrahússins
gengið alveg
sæmilega og
áfallalítið í verk-
falli hjúkrunar-
fræðinga
—♦—
kuwait, ap. Faisal Husseini, yfirmaður
Frelsissamtaka Palestínu í Jerúsal-
em, lést eftir hjartaáfall í gær í
Kuwait, sextugur að aldri. Lengi
hafði verið horft til Husseini sem
mögulegs eftirmanns Yasser Arafat,
en hann tók meðal annars þátt í frið-
arviðræðunum í Madrid árið 1991 og
þótti alla tíð friðarsinnaður. Afstaða
hans er þó talin hafa harðnað undan-
farna mánuði.
Yasser Arafat var staddur í Brus-
sel á ferð sinni um Evrópu en sneri
samstundis til Amman í Jórdaníu þar
sem hann mun fylgja jarðneskum
leifum Husseini frá Amman til Ram-
allah á Vesturbakkanum. Aðalsamn-
ingamaður Palestínumanna, Saeb Er-
ekat, sagði dauða Husseini „ekki að-
eins mikinn missi fyrir Palestínu,
heldur fyrir allar arabaþjóðir." ■
ekkert gengur í gerð nýs kjarasamn-
ings. Það sé hins vegar ekki búið að
taka neina ákvörðun um það hvort til
slíkra verkfalla verður boðað til í
sumar eða jafnvel í haust. Herdís við-
urkennir að sumarið sé ekki góður
tími tii verkfalla vegna sumarleyfa
starfsfólks. Hún segir að það þurfi
ekki nema eina atkvæðagreiðslu um
boðun slíkra „raðverkfalla" ef ákvörð-
un verður tekin um það. Töluvert hef-
ur verið um undanþágur í nýafstöðnu
verkfalli hjúkrunarfræðinga og m.a.
vegna þess að ríkið hafði ekki endur-
nýjað öryggislista síðan árið 1995.
HJÚKRUNARFRÆÐINGAR
Þeir miða kröfur sínar við það þau kjör
sem framhaldsskólakennarar fengu í
samningum sínum við ríkið í vetur
Anna Stefánsdóttir hjúkrunarfor-
stjóri Landsspítala - háskólasjúkra-
húss segir að miðað við aðstæður
hefði starfsemi sjúkrahússins gengið
alveg sæmilega og áfallalítið í verk-
falli hjúkrunarfræðinga. Henni líst
ekki á að hjúkrunarfræðingar fari út í
„raðverkfölT', enda þoli stofnunin
mjög illa allar slíkar aðgerðir.
-grh@frettabladid.is
O SÝNINGAR
HÁTÍÐ 004FSIIXIS
Sjómannadagurinn » Hafnardagurinn
Dagskrá hátíðarinnar 9. til 10. júní er á vefnum: www.rvk.is/hofnin
Makedónía:
Stefnubreyting forsætisráðherra
skopje. ap. Forsætisráðherra Make-
dóníu, Ljubco Georgievski, hefur
breytt verulegu um stefnu í málefn-
um Makedóníu ef marka má ummæli
sem sjónvarpað var í gær. f þeim seg-
ir hann að ef koma eigi í veg fyrir
frekari átök í landinu í framtíðinni
verði að breyta stjórnarskrá lands-
ins, en sú er ein aðalkrafa skærulið-
anna sem barist hafa á landamærum
Makedóníu.
Meðal breytinga sem Georgievski
nefndi að hugsanlegar væru eru að
albanska þjóðarbrotið verði jafnrétt-
há og slavneski meirihlutinn. Al-
banska yrði einnig opinbert tungu-
mál. Ef að breytingunum verður mun
rétttrúnaðarkirkjan ekki lengur
njóta þeirrar sérstöðu sem hún hefur
núna, nokkuð sem víst er að ergja
mun slavana. Albanir munu hins veg-
ar væntanlega iýsa yfir ánægju sinni
með breytingarnar, en þeir eru flest-
ir múslimar.
Leiðtogi slavnesks samstarfs-
flokks Georgievski í stjórn, Branko
Crvenkovski, var ekki par hrifinn af
ummælunum, sagði þau gætu haft
stjórnarslit í för með sér. Einn lykil-
stjórnmálamaður Albana, Aziz
Polozhani, gaf í skyn að stefnubreyt-
ing Georgievskis væri eingöngu til-
komin vegna þrýstings frá Vestur-
löndum og myndi því líklega bara
gera illt verra.
Á þriðja tug manns hafa fallið síð-
an átök brutust út. Um 18 þúsund
manns hafi flúið landið síðan átök
hófust og að níu þúsund manns til
viðbótar hafa þurft að yfirgefa heim-
ili sín. Mannréttindasamtök segja að
þau hafi sannanir fyrir því að farið sé
illa með flóttamenn og að þeim hafi
ALBANIR A FLÓTTA
Talið er að um tíu þúsund borgarar séu
fastir I þorpum í norðurhluta Makedóniu
sem eru á valdi skæruliða af albönsku
bergi brotnu.
verið misþyrmt af makedónískum
hermönnum meðan á búferlaflutn-
ingum stóð. ■
- úti og
Varanleg lausn
inm
Gegnheilar útiflísar á svalir,
+
AP/ALEXANDER ZEMLIANICHENKO