Fréttablaðið - 01.06.2001, Side 18
18
FRÉTTABLAÐIÐ
1. júní 2001 FÖSTUPAGUR
HVER ER TILCANCUR LÍFSIN?
Jónína Benediktsdóttir
íþróttafræðingur
Ég held að tilgangur lífsins sé að kynnast
sinu rétta eðli og lifa samkvæmt eigin
sannfæringu. Ef fólk gerir það uppsker
það hamingjuna.
Metsölulisti:
Skáldskapur
og sjálfshjálp
bækur Á metsölulista Amazon.com
kennir margra grasa eins og venju-
lega. Bænabókin kunna The Prayer
of Jabez hefur verið meira og minna
á toppnum í margar vikur. Fjórar
bækur eru á listanum sem flokkast
undir skáldsogur, þótt ólíkar séu, og
eru tvær þeirra ekki enn komnar út.
Gaman er að sjá gamla vini, Hobbitt-
inn og Hringadróttinssögu, hér sam-
an í kassa, á listanum. Þessar bækur
Tolkiens eru greinilega orðnar
klassík. Loks er að geta sjálfshjálpar-
bókanna sem jafnan njóte vinsælda,
líklega ekki síst á vorin. í þeim flok-
ki bóka er bæði að finna stuttar leið-
beiningar til hamingjuríks lífs og
„krass kúrs“ í að bæði líða stórkost-
lega og líta stórkostlega út. ■
| IVIETSÖLUBÆKURNÁrI
MESTSELDU BÆKURNAR
Á AMAZON.COM
David Kopp og
Bruce H. Wilkinson:
THE PRAYER OF JABEZ:
BREAKINC THROUCH TO THE
BLESSED LIFE
^ David McCuliough:
JOHN ADAMS
fí) Hampton Sides:
CHOST SOLDIERS: THE FOR-
COTTEN EPIC STORY OG
WORLD WAR ll'S MOST
DRAMATIC MISSION
© Anne Tyler:
BACK WHEN WE WERE
CROWNUPS
Sue Crafton:
P IS FOR PERIL
(kemur út 4. júní)
Anna Quindlen:
A SHORT GUIDE TO A HAPPY
LIFE
fí) Nora Roberts:
DANCE UPON THE AIR
(kemur út 5. júnQ
Diane Irons:
DIANE IRONS' 14-DAY
BEAUTY BOOT CAMP: THE
CRASH COURSE TO LOOKING
AND FEELINC GREAT
0 Spencer Johnson og Kenneth H.
Blanchard:
WHO MOVED MY CHEESE?:
AN AMAZING WAY TO DEAL
WITH CHANGES IN YOUR
WORK AND IN YOUR LIFE
5J J. R. R. Tolkien:
‘s THE HOBBIT AND THE LORD
OF THE RINGS (SAMAN l'
KASSA)
Herbalife
Hafðu samband
við mig ef þig
vantar vörur
Eyrún Anna Einarsdóttir
sjálfstæður Herbalife
dreifingar aðili
sími 8616837 VISA - euro
Plötusnúðurinn Óli Palli í Rokklandi:
Það má kalla mig Billy the Kid
rokklanp Ólafur Páll Gunnarsson er
íslendingum góðkunnur sem út-
varpsmaðurinn Óli Palli í Rokklandi.
Hann byrjaði snemma að hlusta á
tónlist og ólíkt öðrum strákum fór
hann ekki í bílaleik eða út að leika,
hann hlustaði á tónlist.
Óli er nú að ljúka við að lesa bók
sem ber nafnið Last night a DJ saved
my life. í inngangskafla bókarinnar
er sagt hvað DJ’ar eða plötusnúðar
eiga sameiginlegt. Það er þörfin fyr-
ir að leyfa öðrum að heyra hvaða tón-
list þeir eru að hlusta á. Nokkurskon-
ar trúboðastarf. Þannig byrjaði ein-
mitt plötusnúðaferill hans. Þá gekk
hann á milli vina sinna með kassettur
og neyddi tónlist sína uppá þá.
Óli Palli byrjaði með tónlistar-
þætti í útvarpi allra landsmanna, Rás
2, fyrir um tíu árum síðan. Þá fékk
hann tækifæri til að leyfa hlustend-
um að heyra alla þá tónlist sem hann
var að hlusta á, en aðeins hálftíma í
senn á viku hverri. Síðan þá hefur
hann verið tíður gestur í viðtækjun-
um og hefur verið í loftinu í allt að 80
klukkustundir í mánuði. Nú sendir
hann bara út fjórtán tíma á viku.
En Óli Palli lætur sér það ekki
nægja. Um helgar spilar hann tónlist-
ina sína á veitingastaðnum 22, og
festir sig ekki við eina ákveðna teg-
und tónlistar líkt og gengur og gerist
í þessum bransa. rÉg spila allt milli
himins og jarðar. Eg er ekki besti bít-
mixari í heimi, en ég þekki heilmikið
af tónlist sem ég er búinn að vera
drekka í mig undanfarin 30 ár“ segir
Óli Palli „Ég reyni auðvitað að halda
fólkinu í fíling á dansgólfinu og það
er aðalmálið. Eins og þeir í Lónlí Blús
Bojs sögðu Stuð Stuð Stuð.“
Flestir plötusnúðar bera eitthvert
plötusnúðanafn s.s. DJ Tommy
White, DJ Ghost eða PS Daði. Óli er
lítið fyrir slíkar nafngiftir. „Eins og
Megas sagði þá má fólk kalla mig
Billy the Kid ef það vill.“ ■
BOÐBERI TÓNLISTAR
- Óli Palli hefur verið viðriðinn tónlist
undanfarin 30 ár og það er síður en
svo farið að draga af honum.
FÖSTUDAGURINN
ÍTTUNI
FYRIRLESTRAR______________________
10.00 flytur Matthías Sveinbjörnsson
fyrirlestur til meistaraprófs við
verkfræðideild Háskóla íslands.
Fyrirlesturinn fjallar um skamm-
tímaáhrif eldgosa á Íslandí á
flugumferð og flugumferðar-
stjórn á Norður-Atlantshafi.
Matthias skoðaði hættur sem
stafa af eldgosum fyrir flugumferð
og áhrif þeirra á flugumferðar-
stjórn með þvi að herma flugum-
ferð og dreifingu öskuskýs sam-
an.ÝFyrirlesturinn verður fluttur í
VR-II, stofu 157.
TÓNLEIKAR______________________________
12.00 Hádegisandakt í Hallgrímskirkju.
Andaktin er helguð minningu
Gísla Magnússonar píanóleikara
sem lést á mánudaginn.
18.00 hefjast stórtónleikarnir Poppfrelsi
í Laugardalshöll þar sem margir
af vinsælustu poppurum landsins
koma saman til styrktar SÁA.
Meðal þeirra sem koma fram eru
Land og synir, Buttercup, Sól-
dögg, írafár, Einar Ágúst, Páll
Óskar, Two Tricky, Ensími og
Andlát. Allur ágóði rennur til
meðferðar- og göngudeilda fyrir
unglinga, en ríflega 500 unglingar
á aldrinum 14 til 19 ára leita eftir
meðferð hjá SÁÁ á ári hverju.
Langt er síðan svo margir íslenskir
flytjendur hafa komið saman á
tónleikum og verði er mjög stillt í
hóf, aðeins 1500 krónur miðinn.
Forsala aðgöngumiða er í verslun-
um Skífunnar og aldurstakmark er
14 ár.
21.00 verða tónleikar sönghópsins Nor-
dic Voices frá Osló á Kirkjulista-
hátíð í Hallgrímskirkju. Þessir
sex ungu söngvarar hafa á fáum
árum getið sér mjög gott orð fyrir
ferskan og vandaðan söng. Að
þessu sinni verður farið yfir víðan
völl í tíma og rúmi og flutt tónlist
eftir m.a. Purcell, Schiitz, Reger
og Messiaen.
22.00 Hljómsveitirnar Stjörnukisi, Fidel
og Theyr Theyr Thorsteinsson
verða með tónleika á Grand
rokk. Miðaverð er aðeins 600 kr.
00.00 hljómsveitin Sixties spilar á Kaffi
Reykjavík.
00.30 hljómsveitin Sóldögg verður á
Gauknum í kvöld og spilar fram á
rauðan morgun.
Nýtt íslenskt dansverk
á listahátíð erlendis:
Ovænt
uppá-
koma
listdans íslenski dansflokkurinn sýn-
ir þrjú dansverk á listahátíð í
Salisbury á Englandi í dag. Listahá-
tíðin í Salisbury er gamalgróin al-
hliða listahátíð, var fyrst haldin árið
1973 en hefur aukist mjög að um-
fangi hin síðari ár. Hátíðin hófst 25.
maí og stendur til 10. júní.
Verkin sem íslenski dansflokkur-
inn sýnir eru annars vegar verk sem
voru á dagskrá dansflokksins í vetur
sem leið, Kraak eftir Jo Strömgren
og Pocket Ocean eftir Rui Horta, og
hins vegar nýtt íslenskt dansverk
eftir Ólöfu Ingólfsdóttur sem frum-
sýnt verður hér heima í haust.
Verk Ólafar nefnist Plan B og er
ballett fyrir sjö dansara, fjórar kon-
ur og þrjá karlmenn og fjallar um
dansflokk sem lendir í óvæntri upp-
ákomu og er undirbúinn undir það.
„Þetta er hópverk en bæði með
dúettum og sólóum," segir Ólöf.
„Plan A gildir þegar allt gengur upp
en plan B er gert til að mæta hinu
óvacnta."
íslenski dansflokkurinn hefur
verið að kynna sig í auknum mæli er-
lendis og er þátttaka hans í listahá-
tíðinni í Salisbury afrakstur þeirrar
vinnu. „Það er sterkur norrænn
prófíll á hátíðinni í ár þannig að ís-
land passar vel inn í hann.“
Þegar lá fyrir að Dansflokkurinn
færi til Salisbury var ákveðið að
flýta æfingum á verki Ólafar sem til
stóð að byrja að æfa upp í vor þannig
að flokkurinn væri með eitt íslenskt
verk á dagskránni. Þetta er ekki í
fyrsta sinn sem Dansflokkurinn fer
utan með verk eftir Ólöfu því fyrir
tveimur árum samdi hún verk fyrir
flokkinn sem sýnt var víða erlendis.
Auk þess hefur Ólöf verið í sam-
starfi við aðra aðila og sýnt verk sýn
erlendis á eigin vegum. Dansflokk-
urinn hélt utan í gær og var Ólöf með
í för. „Það verður bara að koma í ljós
hvort þetta leiðir til einhvers," sagði
Ólöf þegar hún var spurð hvort hún
teldi að flutningur Plan B í Salisbury
hefðu áhrif á feril hennar sem dans-
höfundar.
sýningunni eru Friðrik Friðriksson
og Kjartan Guðjónsson.
20.00 Einn vinsælasti söngleikur liðinnar
aldar, Syngjandi í rigningunní, er
sýndur á Stóra sviði Þjóðleik-
hússins, söngur, dans og róman-
tík.
20.00 Feðgar á ferð er sprellfjörug
kvöldstund í Iðnó sem feðgarnir
Árni Tryggvason og Örn Árnason
hafa samið og flytja einnig. Þetta
er upprifjun á brotum úr gömlum
revíum sem voru ein vinsælasta
skemmtun íslendinga um miðja
síðustu öld.
Halldóra Geirharðsdóttir, Jóhanna
Vigdís Arnardóttir og Sóley Elías-
dóttir.
20.00 Gamanleikritið Fífl í hófi er sýnt í
húsi íslensku óperunnar. Þetta
er meinfyndinn leikur sem notið
hefur mikilla vinsælda.
LEIKSÝNINGAR____________________
12.00 Rúm fyrir einn er sýnt í Hádegis-
leikhúsi Iðnó. Leikritið er eftir
Hallgrím Helgason og leikarar í
20.00 Stórfarsinn Með vífið i lúkunum
er sýndur i Borgarleikhúsinu.
Höfundurinn er Ray Cooney og
með hlutverk fara helstu gaman-
leikarar landsins.
20.00 Píkusögur eru sýndar á þriðju
hæð Borgarleikhússins. Höfund-
ur leikritsins er Eve Ensler og Sig-
rún Edda Björnsdóttir leikstýrir.
Með hlutverkin fara leikkonurnar
SÝNINGAR______________________
Sumarstarfsemin hefst í Árbæjarsafni í
dag. Gömlu húsin verða opnuð á nýjan
leik, leiðsögumenn klæðast búningum
Thorvaldsensbazar í Austurstræti:
Sjálfboðavinna í heila öld
góðgerðarstarf Konurnar sem vinna í
Thorvaldsensbazar í Austurstræti
eru stoltar af starfi sínu. f dag bjóða
þær hverjum sem þiggja vill upp á
kaffi með pönnukökum og kleinum í
tilefni af hundrað ára afmæli versl-
unarinnar. Verslunin verður skreytt
blómum og borðum, félagskonur
verða við afgreiðslu og munu klæð-
ast peysufötum eða upphlutum. í
Austurstræti verður fánaborg og
stúlknakór Reykjavíkur syngur um
fjögurleytið
„Thorvaldsensbazar var stofnaður
til þess að hjálpa fólki til að hjálpa
STOLTAR AFGREIÐSLUKONUR
Thorvaldsensbazar fer á Netið í tilefni af
100 ára afmælinu, auk þess að bjóða upp
á kaffi, kleinur og pönnukökur í dag.
sjálfu sér,“ segir Kristín Fjólmunds-
dóttir verslunarstjóri. „Ýmis konar
varningur var þá tekinn í umboðs-
sölu, bæði prjónles og silfursmíði og
alls konar trésmíði ásamt ýmsu fleiru
sem fólk vildi selja. Konurnar 1 Thor-
valdsensfélaginu unnu þetta allt sam-
an í sjálfboðavinnu til þess að afla
fjár handa veikum börnum og stórum
fjölskyldum. Síðan hefur þetta þróast
í að það hefur mikið verið hlúð að
barnadeildum sjúkrahúsanna, sér-
staklega núna á Borgarspítalanum.
Þar er mikið af tækjum og rúmum og
öllu mögulegu á barnadeildinni sem
Thorvaldsensfélagið hefur gefið.
Einnig hefur það verið þannig að fólk
sem hefur lent í fjárhagsvandræðum
út af veikindum barna sinna hefur
getað leitað til félagsins." ■