Fréttablaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 22.06.2001, Blaðsíða 10
10 FRÉTTABLAÐIÐ 22. júni 2001 FÖSTUPAGUR Breski íhaldsflokkurinn: Fjórði frambjóðandi til formennsku Skólar í Grafarholti: Kenndir við Ingunni og Sæmund gwunnskóli Þórhallur Vilmundarson prófessor hefur lagt fram tillögur um nöfn á tvo nýja grunnskóla í Grafarholti. Annars vegar Ingunn- arskóli og hins vegar Sæmundar- skóli. Guðrún Sturlaugsdóttir skóla- stjóri hefur mælt með því við fræðsluráð að skólinn sem hún hef- ur verið ráðin að verði nefndur Ing- unnarskóli. Á síðasta fundi fræðslu- ráðs var ekki tekin afstaða til þess- ara tillagna Þórhalls og var af- greiðslu frestað til næsta fundar. ■ LONPON. ap. Enn einn frambjóðandi til formannsembættis íhalds- flokksins slóst í hóp hinna þriggja í gær. Michael Ancram, fyrrum ráð- herra í ríkisstjórn Johns Majors, tilkynnti formlega um framboð sitt. „Ég fer ekki í framboð vegna persónulegs metnaðar heldur til að Ihaldsflokknum standi til boða leið einingar, að grípa tækifærið til umhugsunar í stað þess að grípa til skyndiaðgerða og til að endurnýja tengsl okkar við fólkið án þess að slíta ræturnar," sagði Ancram við blaðamenn í gær. Skilja mátti orð hans sem sneið til Michael Portillo, sem enn er tal- inn sigurstranglegastur frambjóð- enda, en hann hefur mikið talað um að íhaldsflokkurinn þurfi algerrar endurskoðunar við. Breska dagblaðið The Daily Tel- egraph sagði í gær að Ancram gæti hugsanlega verið sá leiðtogi sem íhaldsflokkurinn þarf á að halda til að byggja upp flokkinn á nýjan leik. Aðrir sem hafa tilkynnt fram- boð sitt eru Iain Duncan Smith og David Davis. Þingmenn íhalds- flokksins munu velja tvo fram- bjóðendur sem flokksmenn munu á endanum kjósa á milli. ■ BLAIR OG HAGUE Það fór vel á með þeim Tony Blair og William Hague við ræðu drotttningar í fyrradag. Sá síðarnefndi sagði af sér að kosningum loknum. Sólarplús í tvær vikur 46.200.. ----- miðað við ferð fyrir 2 fullorðna og 2 börn 2ja -11 ára. Innifalið er flug, gisting Istaðfestur gististaður viku fyrir brottför), ferðir til og frá flugvelli erlendis, íslenskir fararstjórar og allir flugvallarskattar. Ef 2 ferðast saman er verðið 62.465 kr. www.plusferdir. is Blönduás Borgames Isafjörður Sauðirkrókur Akureyri Egilsstaðir Selfoss Vestmannaeyjar Keflavík Grindavík S: 452 4168 S:437 1040 S: 456 5111 S: 453 6262 S: 585 4200 S: 471 2000 S:4821666 S:481 1450 S: 585 4250 S: 426 8060 Söluskrifstofur Plúsferða: Faxafeni 5 • 108 Reykjavík og Hliðasmára 15 • 200 Kópavogi Sími 535 2100 • Fax 53^ 2110 • Netfang plusf@plusferdir.is • Veffang www.plusferdir.is Dalvegur 16A%202 RVAN C L1 Í- 5MIS' A !M KIKT f HIMINGEIMINN Jim Kolesar, vísindamaður frá Williams háskóla í Massachusetts í Bandaríkjunum stillir myndavél sina áður en sólmyrkvinn á sér stað. Kolesar er í hópi vísindamanna frá háskólanum sem ætlar sér að rannsaka sólmyrkvann. Fyrsti sólmyrkvi aldarinnar Þúsundir ferðamanna flykkjast til Afríku. Fólk varað við því að horfa á sólmyrkvann án hlífðargleraugna. lusaka, ZAMBlu, AR. Þúsundir ferða- manna, vísindamanna og nýaldar- gúrúa hafa undanfarna daga safnast saman í Zambíu í suðurhluta Afríku til að fylgjast með fyrsta sólmyrkva aldarinnar. Hótel í Lukasa, höfuðborg landsins, voru fullbókuð og leigðu bændur út land fyrir tjaldstæði. Stjórnvöld eiga von á meira en 20 þúsund ferðamönnum og hafa aldrei fleiri ferðamenn komið til landsins í einu. Ákváðu stjórnvöld Zambíu að gefa frí í tilefni dagsins í gær þegar sólmyrkvinn átti að hefjast. 2500 lög- reglumenn vöktuðu götur og ferða- mannasvæði í Lukasa og mun sól- myrkvinn sjást þar í alls 10 daga, en lengst mun hann sjást í Angóla. Ekki er hins vegar búist við mörgum ferðamönnum þangað sökum borg- arastríðs sem staðið hefur yfir þar í landi í 25 ár. Sólmyrkvinn mun einnig sjást í fleiri löndum í suðurhluta Afr- íku, en áhyggjur hafa verið uppi um að fjölmargir Afríkubúar muni skaða augun við það að reyna að sjá sól- myrkvann þar sem þeir hafi ekki efni á því að kaupa sér hlífðargleraugu. Síðasti sólmyrkvi í heiminum var í Evrópu í ágústmánuði árið 1999, en sá næsti mun einnig sjást í suður- hluta Afríku í desember á næsta ári, en ekki er búist við að hann sjáist vel vegna rigningatímabilsins sem þá mun standa yfir. í Zimbabwe hafa ættbálkahöfð- ingjar varað við sólmyrkvanum og sagt hann vera tákn um að forfeður þeirra væru óánægðir með að þjóðin hafi horfið frá aldagömlum afrískum gildum eins og friði og samkennd. í hefndarskyni vilji þeir því auka á þjáningar þjóðarinnar sem þegar hefur þurft að glíma við vandræði af pólitískum-og efnahagslegum toga auk útbreiðslu alnæmisplágunnar. ■ Þjófnaðarmál: Kvikmynd þjófnaður Kvikmyndavél með dýr- mætri filmu var stolið úr húsakynn- um Kvikmyndaskóla íslands í vik- unni. „Þetta var ótrúlega bíræfið, ég var í næsta herbergi meðan þjófnað- urinn var framinn, og það var ekki nema hálftími eða svo sem ég brá mér þangað inn“, segir Árni Sveins- son. Hann hefur ásamt systur sinni Hrönn og Böðvari Bjarka Pétursson unnið að gerð heimildamyndar um unga stúlku sem ákveður að taka þátt í fegurðarsamkeppni. „Ég hafði verið að skoða filmu með upptökum í uppnámi í vélinni og hún var tekin með. Við hreinlega verðum að fá filmuna aft- ur áður en tökur hefjast að nýju í júlí, en tryggingar bæta víst ekki vélina þegar stolið er úr húsi sem er opið. Þetta er mikið tjón“, segir Arm sem vonast til þess að skilvíst fólk verði vart við það ef reynt verði að koma vélinni í umferð eða sá sem hana tók sjái að sér og skili henni. Lögregla mun telja vafasamt að hún hafi tíma eða mannskap til þess að sinna máli af þessu tagi. ■ www.whalewatdhing.is MIÐNÆTURSIGLING á Jónsmessunótt Siglt verdur um sundin blá og inn i Hvalfjörð, við dynjandi harmonikku tónlist. Brottför frá Reykjavikurhöfn Ægisgardi, laugardagskvöldið 23. júni ki: 22:00 panntanir i síma 421-2660 Hvalaskoðun fra Reykjavikurhöfn alla daga W. 10:30

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.